Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Side 28
Vinnudagurinn hefst á fundi kl. 7.30 þar sem farið er yfir aðgerðir dagsins.
Hanna útskýrir að góður undirbúningur fyrir aðgerð sé
eitt at því sem þurfi að vanda mjög vel til að tryggja öryggi
sjúklingsins. „Við erum í raun með líf sjúklingsins í hönd-
unum," segir hún. „Og það dugar ekki minna en að vera
vel undirþúin og vakandi. Tæknin hefur gert það að verk-
um að sífellt eru gerðar stærri og flóknari aðgerðir og á
sjúkrahúsin koma þeir allra veikustu, hinir fara í aðgerðir á
stofu úti í bæ.“
En nú er komið að því að fylgja Kristínu inn á skurð-
stofu.
í júlíhefti Tímarits hjúkrunarfræðinga var fjallað um starf
skurðhjúkrunarfræðinga og þá var fylgst með aðgerð á
Landspítala í Fossvogi. Hvort líta megi á það sem kald-
hæðni örlaganna eða eitthvað annað þá atvikaðist það svo
að sú sem þetta ritar þurfti sjálf að gangast undir aðgerð á
spítalanum í Fossvogi skömmu eftir að hafa verið þar til að
fylgjast með störfum skurðhjúkrunarfræðinga og hefur því
kynnst skurðstofunni sem sjúklingur líka - að vísu er sá
hængur á að eina minningin frá skurðstofunni sem
sjúklingur er að vera lyft yfir á skurðarbekkinn og svo ekki
meir. Ætli ekki sé óhætt að segja að þar hafi svæfingin
tekist vel.
Aðgerðin þennan morgun er þrottnám blöðruhálskirtils
og við Hanna förum á móttökuherbergið til að hitta sjúkl-
inginn, m.a. til að spyrja hann hvort í lagi sé að blaða-
maður fylgist með aðgerðinni. „Alveg sjálfsagt," er svarið. í
móttökuherberginu er það Sólrún Björnsdóttir, svæfingar-
hjúkrunarfræðingur, sem tekur á móti sjúklingum sem eru
að fara í aðgerð. Hún skráir upplýsingar, s.s. nafn
sjúklingsins og kennitölu, hvenær hann borðaði eða drakk
síðast, ofnæmi og í hvaða aðgerð hann er að fara. í
móttökunni er sérútbúin aðstaða fyrir börn. Þar gera
barnamyndir og leikföng svæðið aðlaðandi fyrir þau litlu.
„Þetta er mikill munur frá því sem áður var,“ segir Hanna.
„Hérna fá börnin líka kæruleysislyf sem gerir það að
verkum að þeim er alveg sama þó pabbi og mamma fari.
316
Það er mun léttbærara fyrir foreldrana að börnin séu ekki
hágrátandi eða sýni vanlíðan á annan hátt.“
Teymi sem vinnur sem einn maður
Á skurðstofunni er Kristín búin að taka til á vinnuborð allt
það sem hún þarf að hafa til reiðu fyrir svæfinguna og í
vinnuborðinu eru að auki þau tæki og lyf sem hugsanlega
þarf á að halda í svæfingu. Hjördís Smith er svæfingar-
læknir á stofunni og saman fara þær Kristín yfir það sem
fram undan er. Okkar sjúklingur fær utanbastsdeyfingu
(epidural), en það er hluti af verkjameðferð, og verður
síðan deyfður.
Kristín og skurðhjúkrunarfræðingarnir fara einnig sam-
Kristín hefur lokið öllum undirbúningi fyrir svæfingu og
deyfingu.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001