Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Blaðsíða 35
Vinnustaðurinn og streituvaldar í vinnu
Eðli vinnustaðarins sjálfs hefur einnig áhrif á streituvalda.
Þannig greindu þátttakendur, sem starfa á sjúkrahúsi, frá
tölfræðilega marktækt meiri streitu í samskiptum við sjúkl-
inga og aðstandendur (t=2,07; (<0,05) og vegna öryggis og
aðbúnaðar á vinnustað (t=2,02; (<0,05) en þeir sem starfa á
öðrum vinnustöðum. Hins vegar greindu þátttakendur sem
starfa á sjúkrahúsum, frá minni streitu en aðrir hvað varðar
tilbreytingarleysi og einhæfni í störfum (t=2,63; (<0,01).
Streita tengd tiibreytingarleysi og einhæfni í starfi mældist
aftur á móti mest meðal þeirra sem unnu á hjúkrunar- og
dvalarheimilum og mældist hún að meðaltali 2,52 (SD=0,93)
meðal þeirra samanborið við 1,90 (SD=0,75) hjá þeim sem
ekki unnu á hjúkrunar- og dvalarheimilum (t=3,90; (<0,001).
Lengd vinnutíma og streituvaldar í vinnu
Tölfræðilega marktæk fylgni reyndist vera á milli lengdar
vinnutíma og streituvalda í vinnu (tafla 4) og mældist streita
þeirra þátttakenda, sem voru í 50% starfi eða minna, mun
minni en þeirra sem voru í 60% starfi eða meira (F=3,92;
df=3/183 (<0,01).
Tafla 4. Meðalgildi á spurningalistanum Streitu-
valdar í vinnu eftir starfshlutfalli
Meðalgildi* SD
100% starf við hjúkrun 2,27 0,40
80-90% 2,28 0,45
60-75% 2,27 0,50
50% eða minna 1,92 0,42
* Hærra gildi gefur til kynna meiri streitu.
Þegar undirþættir sþurningalistans eru skoðaðir
sérstaklega með tilliti til starfshlutfalls kemur í Ijós að sterk-
ust tölfræðileg fylgni er á milli starfshlutfalls og streituþátta
sem snúa að samstarfi. Það eru einkum þeir sem vinna
50% starf eða minna sem skera sig úr heildinni en streita
tengd samstarfi mælist áþekk meðal hinna flokkanna.
Þannig mældist streita tengd samstarfi og samstarfs-
örðugleikum að meðaltali 1,91 hjá þeim sem vinna 50%
eða minna en 2,31 hjá þeim sem vinna 60-75%, 2,36 hjá
þeim sem vinna 80-90% og 2,39 hjá þeim sem eru í fullu
starfi (F=3,94; df=3/191; p<0,05).
Streita tengd samstarfi virðist leggjast þyngra á stjórn-
endur en almenna hjúkrunarfræðinga. Þannig mældist
streita tengd samstarfi og samstarfsörðugleikum að meðal-
tali 2,20 hjá almennum hjúkrunarfræðingum samanborið við
2,49 hjá aðstoðardeildarstjórum, 2,48 hjá deildarstjórum og
2,44 hjá öðrum stjórnendum (F=3,52; df=3/185; p<0,05).
Aldur, starfsatdur og streituvaldar í vinnu
Aldur þátttakenda hafði áhrif á streituvalda sem tengjast
samstarfi og samstarfsörðugleikum og starfsaldur hafði
áhrif á streituvalda sem tengjast samskiptum við sjúklinga
og aðstandendur (tafla 5). Streituvaldar tengdir samstarfs-
örðugleikum mældust lægstir (1,92) í yngsta aldurshópn-
um en hæstir (2,44 og 2,45) í elsta aldursflokknum og í
aldursflokknum 40 til 49 ára (F=4,91; df=4/193; p<0,01).
Streita tengd samstarfi leggst líka þyngra á stjórnendur en
almenna hjúkrunarfræðinga. Þannig mældist streita tengd
samstarfi og samstarfsörðugleikum að meðaltali 2,20 hjá
almennum hjúkrunarfræðingum samanborið við 2,49 hjá
aðstoðardeildarstjórum, 2,48 hjá deildarstjórum og 2,44
hjá öðrum stjórnendum.
Streita tengd samskiptum við sjúklinga og aðstand-
endur fer aftur á móti tölfræðilega marktækt minnkandi
eftir starfsaldri, mældist langhæst (2,40) meðal þátttak-
enda sem höfðu unnið 5 ár eða skemur í hjúkrun en
langlægst (1,77) meðal þeirra sem höfðu unnið í 26 ár eða
lengur (F=6,5; df=3/187; p<0,001).
Tafia 5. Meðalgildi á mælikvarðanum „streita tengd
samskiptum við sjúklinga og aðstandendur11 eftir
starfsaldri
Meðalgildi* SD
Starfað við hjúkrun í
5 ár eða skemur 2,40 0,74
Starfað við hjúkrun í 6-15 ár 2,10 0,59
Starfað við hjúkrun í 16-25 ár 2,01 0,59
Starfað við hjúkrun í 26 ár
eða lengur 1,77 0,63
* Hærra gildi gefur til kynna meiri streitu.
Álagsþættir í hjúkrun
Til að mæla álagsþætti í hjúkrun var notaður 57 sþurninga
spurningalisti sem upphaflega var saminn af Wynne,
Clarkin og McNieve (1993) og þýddur og staðfærður af
sérfræðingahópnum sem undirbjó rannsóknina. Sam-
kvæmt svörum við spurningalistanum veldur mestu álagi í
hjúkrun að horfa á sjúklinga þjást en fjórðungur þátttak-
enda (25,1%) sagði að það ylli sér oft eða alltaf álagi og
rúmlega 2/5 (42,5%) að það ylli sér stundum álagi. Næst-
mestu álagi veldur ónógur tími til að sinna hjúkrunarstörf-
um en tæpur þriðjungur (29,3%) telur að það valdi sér
alltaf eða oft álagi og rúmur þriðjungur (35,2%) að það
valdi sér stundum álagi. Skortur á tíma til að veita sjúklingi
andlega aðhlynningu olli ámóta miklu álagi en 29,7%
þátttakenda sögðu það oft eða alltaf valda sér álagi og
rúmur þriðjungur (35,6%) að það ylli sér stundum álagi. í
fjórða sæti álagsþátta í hjúkrun er ónóg mönnun á deildum
en rúmur þriðjungur (35,2%) sagði ónóga mönnun oft eða
alltaf valda sér álagi og fjórðungur (25,1%) að hún gerði
það stundum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001
323