Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Page 36
Það sem olli þátttakendum sjaldnast álagi voru tungu-
málaerfiðleikar við annað starfsfólk og erfiðleikar við að leið-
beina nemum. Rúm 70% (71,1%) sagði að það ylli sér sjald-
an eða aldrei álagi að leiðbeina nemum og 76,7% sagði að
tungumálaerfiðleikar við annað starfsfólk yllu sér sjaldan eða
aldrei álagi. Hafa ber í huga þegar þessar niðurstöður eru
túlkaðar að aðstæðurnar, sem spurt er um, eiga ekki við
nema hluta hjúkrunarfræðinganna. Því er líklegt að margir
þátttakendur hafi svarað því að tungumálaerfiðleikar eða leið-
beining nema valdi þeim aldrei eða sjaldan álagi einfaldlega
vegna þess að þeir komast sjaldan eða aldrei í þær aðstæður
sem spurt er um. Að slepptum þessum tveimur spurningum
olli hjúkrun aldraðra sjúklinga þátttakendum sjaldnast álagi en
aðeins 5,1% sögðu að það ylli sér oft eða alltaf álagi en
68,0% sögðu að það ylli sér sjaldan eða aldrei álagi.
Þátta- og innihaldsgreining á spurningalistanum Álags-
þættir í hjúkrun ieiddi í Ijós fjóra meginmælikvarða: a) mæli-
kvarða sem mælir álagsþætti tengda samstarfi og sam-
vinnu, b) mælikvarða sem mælir álagsþætti tengda beinni
umönnun sjúklinga, c) mælikvarða sem mælir þætti tengda
vinnuálagi og d) mælikvarða sem snýr að tækni- og tækja-
búnaði. Nánari greining leiddi í Ijós 4 undirþætti mælikvarða
a) og þrjá undirþætti mælikvarða b) (sjá töflu 6).
Tafla 6. Meðalgildi á spurningalistanum Álagsþættir
í hjúkrun og undirþáttum hans
Hversu oft valda eftirtaldir þættir þér álagi? Meðal- gildi* Staðal- frávik
Álagsþættir í hjúkrun, allur spurningalistinn (50 sp.**) 2,36 0,50
Álagsþættir í umönnun sjúklinga (18 sp.) 2,55 0,61
Þjáning og sársauki sjúklinga (7 sp.) 2,69 0,75
Andlegur stuðningur við sjúklinga (5 sp.) 2,60 0,73
Klínísk vandamál í hjúkrunar- meðferð (6 sp.) 2,35 0,57
Álagsþættir í samstarfi og samvinnu (22 sp.) 2,19 0,49
Skortur á faglegum stuðningi (3 sp.) 2,36 0,68
Almennt samstarf og starfsandi (10 sp.) 2,17 0,50
Meðferðarsamstarf - ágreiningur um meðferð (6 sp.) 2,15 0,63
Samskipti við stjórnendur (3 sp.) 2,14 0,70
Vinnuálag (7 sp.) 2,75 0,73
Tækni- og tækjabúnaður (3 sp.) 2,18 0,72
Hærra gildi gefur til kynna meira álag.
Sp. stendur fyrir spurningar. Þannig er t.d. undirþátturinn Álagsþættir í
umönnun sjúklinga samsettur úr átján spurningum af heildarlistanum.
324
Tafla 5 sýnir að vinnuálag er sá þáttur sem veldur hjúkr-
unarfræðingum mestu álagi en fast á eftir kemur þjáning
sjúklinga og það að veita andlegan stuðning, en ætla má
að tveir síðasttöldu þættirnir séu nátengdir. Meðalgildi á
mælikvörðum þessara þriggja framantöldu þátta eru tölu-
vert hærri en meðalgildi spurningalistans í heild. Til saman-
burðar eru gildi á kvörðunum sem mæla skort á faglegum
stuðningi og klínísk vandamál nærri jöfn og meðalgildi
spurningalistans í heild, en gildi á mælikvörðunum, sem
mæla álag tengt samstarfi og tækni og tækjum, eru tölu-
vert lægri. Af þessu má draga þá ályktun að vinnuálag og
þjáning sjúklinga valdi hlutfallslega meira álagi á hjúkrunar-
fræðinga en þættir tengdir samstarfi við annað fagfólk og
yfirmenn. Álag vegna klínískra vandamála og vegna skorts
á stuðningi við lausn þeirra liggur þarna á milli.
Skortur á hjúkrunarfræðingum og áiagsþættir í hjúkrun
Skortur á hjúkrunarfræðingum hafði áhrif á álagsþætti í
hjúkrun og því fleiri stöðugildi sem voru ómönnuð á vinnu-
stað þátttakenda því hærri gildi fengu þeir á spurningalist-
anum Álagsþættir í hjúkrun. Þannig var meðalgildi listans á
vinnustöðum, þar sem allar stöður hjúkrunarfræðinga voru
mannaðar, 2,17 samanborið við 2,54 þar sem vantaði fólk
í 5 eða fleiri stöður (sjá töflu 7). Þessi munur var tölfræði-
lega marktækur (einhliða dreifigreining: F=6,63; df=3/148;
p<0,001).
Tafla 7. Meðalgildi á spurningalistanum Álagsþættir
í hjúkrun eftir skorti á hjúkrunarfræðingum
Meðalgildi* SD
Allar stöður eru skipaðar 2,17 0,47
1 -2 stöður ómannaðar 2,45 0,50
3-4 stöður ómannaðar 2,59 0,42
5 eða fleiri stöður ómannaðar 2,54 0,45
* Hærra gildi gefur til kynna meira álag.
Einhliða dreifigreining sýnir einnig að tölfræðilega mark-
tækur munur er á meðalgildum flestra undirþátta spurn-
ingalistans. Vinnuálag vex í réttu hlutfalli við skort á hjúkr-
unarfræðingum sem og álag tengt umönnun sjúklinga.
Sama á við um álag tengt þjáningu og sársauka sjúklinga,
álag vegna andlegs stuðnings við sjúklinga og álag vegna
klínískra vandamála í hjúkrunarmeðferð, en álag vegna
þessara þátta vex í réttu hlutfalli við skort á hjúkrunarfræð-
ingum. Skortur á þeim reyndist einnig hafa tölfræðilega
marktæk áhrif á álagsþætti sem tengjast samstarfi og
samvinnu við annað fagfólk.
Fjölgun innlagna og álagsþættir I hjúkrun
Þátttakendur greindu frá tölfræðilega marktækt auknu
álagi eftir því hvort innlögnum fjölgaði mikið þar sem þeir
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001