Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Síða 37
störfuðu (F=4,67; df=3/110; p<0,01) (tafla 8). Einhliða
dreifigreining sýndi einnig marktækan mun á meðalgildi
flestra undirþátta spurningalistans. Fylgnin á milli fleiri inn-
lagna og álagsþátta í hjúkrun reyndist þó í fæstum tilfellum
fullkomlega línuleg því þó að álagið mældist mest þar sem
innlagnir jukust mikið þá var álagið hlutfallslega meira þar
sem innlagnir stóðu í stað eða þeim fækkaði en þar sem
þær jukust lítið. Eini álagsþátturinn, sem hafði bein línuleg
tölfræðilega marktæk tengsl við fjölgun innlagna, var álag
tengt tækni- og tækjabúnaði.
Tafla 8. Meðalgildi á spurningalistanum Álagsþættir
í hjúkrun eftir fjölgun innlagna
Meðalgildi* SD
Innlagnir jukust mikið 2,75 0,50
Innlagnir jukust nokkuð 2,42 0,40
Innlagnir jukust lítið 2,38 0,43
Innlagnir stóðu í stað eða
minnkuðu 2,45 0,34
* Hærra gildi gefur tii kynna meira álag.
Álag vegna álagsþátta, sem tengjast samstarfi við
annað fagfólk, reyndist tölfræðilega marktækt meira þar
sem innlagnir jukust mikið en þar sem þær jukust lítið eða
ekkert (F=5,01; df=3/115; p<0,01). Sama á við um álag í
samskiptum við stjórnendur (F=5,37; df=3/115; p<0,01).
Aðrir álagsþættir, sem tengdust fjölgun innlagna á töl-
fræðilega marktækan hátt, voru álagsþættir sem tengjast
því að veita sjúklingum andlegan stuðning (F=2,87;
df=3/116; p<0,05), meðferðarsamstarfi og ágreiningi um
meðferð (F=3,39; df=3/117; p<0,05) og almennt auknu
vinnuálagi (F=3,31; df=3/118; p<0,05).
Tölfræðilega marktæk fylgni er einnig á milli álagsþátta í
hjúkrun og fjölda þeirra aukarúma sem sett voru upp á
vinnustöðum þátttakenda vikuna áður en þeir svöruðu
spurningalistanum. Marktæk fylgni mældist bæði við
spurningalistann í heild (p=0,33; p<0,001; N=117) og
flesta undirþætti hans. Þessi fylgni var mest hvað varðar
álag tengt umönnun sjúklinga (p=0,31; p<0,001; N=119),
því að veita andlegan stuðning (p=0,30; p<0,001; N=121)
og klínískum vandamálum í hjúkrunarmeðferð (p=0,26;
p<0,01; N=121). Lægri fylgni en þó tölfræðilega marktæk
mældist á milli fjölda aukarúma og eftirtalinna álagsþátta í
hjúkrun: samstarf við annað fagfólk, meðferðarsamstarf og
ágreiningur um meðferð, samskipti við stjórnendur, og
tækni- og tækjabúnaður.
Vinnustaður og álagsþættir í hjúkrun
Álagsþættir í hjúkrun mældust tölfræðilega marktækt
minnstir hjá þeim þátttakendum sem vinna í heilsugæslu
og á það bæði við um spurningalistann í heild og flesta
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001
undirþætti hans. Þessi munur er mestur á álagsþáttum í
hjúkrun sem mæla umönnun sjúklinga og þjáningu og
sársauka sjúklinga. Það þýðir að þeir sem vinna ekki við
heilsugæslu greina frá meira álagi vegna þátta sem mæla
umönnun sjúklinga (2,61 á móti 2,12; t=3,58; p<0,001) og
þjáningu og sársauka sjúklinga (2,77 á móti 2,14; t=3,87;
p<0,001). Munurinn á milli þeirra sem vinna í heilsugæslu
og hinna er líka mikill á meðalgildi á spurningalistanum í
heild (2,07 á móti 2,43; t=3,30; p<0,01) og á álagsþáttum
sem tengjast almennt auknu vinnuálagi (2,24 á móti 2,81;
t=3,87; p<0,01), klínískum vandamálum í hjúkrunarmeðferð
(1,97 á móti 2,39; t=3,38; p<0,01) og meðferðarsamstarfi
og ágreiningi um meðferð (1,79 á móti 2,20; t=2,90;
p<0,01). Minni munur greindist á milli hópanna tveggja á
álagsþáttum sem tengjast því að veita sjúklingum andlegan
stuðning, almennu samstarfi og starfsanda og samstarfi við
annað fagfólk. Enginn marktækur munur mældist á þáttum
sem tengjast tækni- og tækjabúnaði, samskiptum við
stjórnendur og skorti á faglegum stuðningi.
Undirmönnun og álagsþættir í hjúkrun
Fljúkrunarfræðingar, sem telja of fáliðað á sínum vinnustað,
greindu frá tölfræðilega marktækt meira álagi en þeir sem
ekki telja of fáliðað (tafla 9). Þessi munur kemur fram á öllum
álagsþáttum nema þeim sem snúa að klínísku samstarfi.
Mestur munur, sem mældist á milli þessara tveggja hópa, er
á álagsþáttum í hjúkrun sem mæla vinnuálag, umönnun
sjúklinga, og þjáningu og sársauka sjúklinga en minnstur á
álagsþáttum sem tengjast samstarfi (sjá töflu 11).
Tafla 9. Tengsl milli undirmönnunar og álagsþátta í
hjúkrun
meðal- staðal- t-
N gildi-t- frávik gildi
Álagsþættir í hjúkrun
Of fáliðað 123 2,50 0,45
Ekki of fáliðað 51 2,17 0,52 4,24***
Almennt aukið vinnuálag
Of fáliðað 125 2,99 0,62
Ekki of fáliðað 52 2,25 0,68 7,09***
Umönnun sjúklinga
Of fáliðað 121 2,67 0,60
Ekki of fáliðað 51 2,32 0,58 3,39***
Andlegur stuðningur við sjúklinga
Of fáliðað 123 2,72 0,73
Ekki of fáliðað 52 2,35 0,66 3,17**
Klínísk vandamál í hjúkrunarmeðferð
Of fáliðað 123 2,42 0,54
Ekki of fáliðað 54 2,16 0,55 3,02**
Tækni- og tækjabúnaður
Of fáliðað 125 2,27 0,69
Ekki of fáliðað 52 1,94 0,74 2,87**
325