Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Page 51
Asta Thoroddsen
hjúkrunarfræðingur
Frá Landlæknísembættinu
Vinnuhópur um skráningu hjúkrunar á vegum Landlæknis-
embættisins hefur að undanförnu unnið að þýðingum á nýjum
og breyttum hjúkrunargreiningum frá NANDA-samtökunum.
Að þessu sinni bættust við sjö nýjar hjúkrunargreiningar:
hætta á streitu í kjölfar flutnings, sjálfsvígshætta, sjálfsmis-
þyrming, hætta á vanmáttarkennd, hætta á lítilli sjálfsvirðingu
vegna aðstæðna, ráf og dettni. Að auki voru gerðar breytingar
á fjölda annarra hjúkrunargreininga (sjá meðfylgjandi töflu).
Umtalsverðar breytingar hafa orðið á NANDA-flokkunarkerfinu
frá síðustu uppfærslu. Hin níu mannlegu viðbrögð, sem allar
hjúkrunaragreiningar voru flokkaðar undir, hafa verið lagðar
niður. í staðinn hefur NANDA tekið upp flokkun sem byggist á
heilsufarslyklum Gordons. Númerakerfi (kóðar) greininganna
hefur einnig breyst eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Eldra
númerakerfið hefur því verið lagt niður.
Landlæknisembættið gaf út handbókina Skráning hjúkr-
unar árið 1997. Sú bók er uppseld en unnið er að nýrri
útgáfu. Að auki var gefinn út 90 blaðsíðna viðauki árið 2000 í
sama broti og sú bók. Ákveðið hefur verið að bjóða
viðaukann á sérstöku verði fram yfir áramót og kostar hann
nú um 1000 krónur. Hann fæst á skrifstofu Landlæknis-
embættisins og Bóksölu stúdenta.
Ný tilmæli um lágmarksskráningu vistunarupplýsinga á
sjúkrahúsum komu frá Landlæknisembættinu 1. apríl 2001
þar sem fjallað er um hjúkrunarskráningu. Tilgangur lág-
marksskráningar er:
að skráning endurspegli sem best starfsemi á íslenskum
sjúkrahúsum, heilsuvanda sjúklinga og úrlausnir sem þeir
hljóta
að skráning sé sambærileg á öllum íslenskum sjúkrahúsum
að skráning sé sambærileg á milli landa
að fylgjast með tíðni heilbrigðisvandamála og úrlausn á
þeim
að fylgjast með þjónustu sjúkrahúsa, s.s. rými og mannafla
að fylgjast með umfangi þjónustu, s.s. fjölda inn- og
útskrifta og legudaga.
Mörg ný atriði í skráningu vistunarupplýsinga snerta hjúkr-
unarfræðinga. Meðal atriða, sem ávallt eiga að koma fram,
eru hvaða hjúkrunarfræðingur eða Ijósmóðir er ábyrg fyrir
sjúklingum á stofnuninni. Einnig skal skrá hjúkrunarvandamál,
sem greind eru, og hjúkrunarmeðferð, sem sjúklingar fá, og
hvaða hjúkrunarfræðingur skráir og veitir hjúkrunarmeðferð.
Tiltekið er að nota skuli flokkunarkerfið NANDA við skráningu
hjúkrunargreininga og flokkunarkerfið NIC (Nursing Interven-
tion Classification) við skráningu úrlausna eða hjúkrunar-
meðferðar. Nánari upplýsingar um NANDA og NIC má sjá á
heimasíðu Landlæknisembættisins http://www.landlaeknir.is
(undir Upplýsingar og síðan Stofnskrár). Upplýsingar um
lágmarksskráningu vistunarupplýsinga á sjúkrahúsum má
einnig sjá á heimasíðunni (undir Upplýsingar og síðan Útgáfa).
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að kynna sér þær breyt-
ingar, sem farið er fram á við hjúkrunarskráningu, sem og
breytingar sem hafa orðið á flokkunarkerfi hjúkrunargreininga.
Listi yfir NANDA-hjúkrunargreiningar árið 2001
Eldri nr. 2001 Heiti skv. NANDA 2001
1.1.2.1 1 Næring meiri en líkamsþörf
1.1.2.2 2 Næring minni en líkamsþörf
1.1.2.3 3 Hætta á neyslu umfram líkamsþörf
1.2.1.1 4 Hætta á sýkingu
1.2.2.1 5 Hætta á óstöðugum líkamshita
1.2.2.2 6 Lækkun á líkamshita
1.2.2.3 7 Hækkun á líkamshita
1.2.2.4 8 Ófullnægjandi stjórnun líkamshita
1.2.3.1 9 Skaðleg ósjálfráð taugaviðbrögð
(dysreflexia)
1.2.3.2 10
1.3.1.1 11
1.3.1.1.1 12
1.3.1.2 13
1.3.1.3 14
1.3.1.4 15
1.3.2 16
1.3.2.1.1 17
1.3.2.1.2 18
1.3.2.1.3 19
1.3.2.1.4 20
1.3.2.1.5 21
1.3.2.1.6 22
1.3.2.2 23
1.4.1.1 24
1.4.1.2 25
1.4.1.2.1 26
1.4.1.2.2.1 27
1.4.1.2.2.2 28
1.4.2.1 29
1.5.1.1 30
1.5.1.2 31
1.5.1.3 32
1.5.1.3.1 33
1.5.1.3.2 34
1.6.1 35
1.6.1.1 36
1.6.1.2 37
1.6.1.3 38
Hætta á skaðlegum ósjálfráðum
taugaviðbrögðum
Hægðatregða
Einstaklingur telur sig vera með
hægðatregðu
Niðurgangur
Hægðaleki
Hætta á hægðatregðu
Truflun á þvaglátum
Álagsþvagleki
Þvagleki - ósjálfrátt viðbragð
Bráðaþvagleki
Starfrænn þvagleki
Stöðugur þvagleki
Hætta á bráðaþvagleka
Þvagtregða
Ónógt flæði til vefja
Hætta á vökvaójafnvægi
Vökvasöfnun
Vökvaskortur
Hætta á vökvaskorti
Minnkað útfall hjarta
Trufluð loftskipti
Ófullnægjandi hreinsun öndunarvega
Ófullnægjandi öndun
Viðheldur ekki sjálfkrafa öndun
Trufluð viðbrögð við að venja úr öndunarvél
Hætta á skaða
Hætta á köfnun
Hætta á eitrun
Hætta á meiðslum
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001
339