Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Blaðsíða 55
vinna í sporakerfinu, sem er byggt á 12 spora kerfi AA-
samtakanna, er þaö eina sem dugir mér. Og það gagnast
mér líka að trúa á æðri mátt, ég er ekki eins klár og ég hef
haldið, ég tek þetta miklu alvarlegar en áður, offitan styttir
líf mitt, ég var t.d. komin með allt of háan blóðsykur en
síðastliðið eitt og hálft ár er hann kominn í gott lag.
Ég hef miklu meiri starfsorku, er með mann og þrjú
börn og var alltaf þreytt hér áður að loknum vinnudegi.
Afköstin hafa aukist mikið hjá mér og allt er á uppieið. Mér
líður miklu betur, líður mjög vel, ótrúlega vel. Einn félagi
minn, sem hefur verið með mér í samtökunum, lýsti þess-
ari velllíðan sem fæst með því að stunda OA-samtökin
þannig að honum fyndist hann vera á bleiku skýi og var
hræddur við að hrapa niður af því. En svo uppgötvaði
hann að líklega líður heilbrigðu fólki bara svona daglega og
að það er allt í lagi að líða svona!
Ég er búin að komast að raun um að það að grennast er
ekki spurning um viljastyrk eða greind, í OA-samtökunum
eru bæði greindir og viljasterkir einstaklingar en þeir ráða
einfaldlega ekki við þessa fíkn án aðstoðar. Lífið er líka allt
svo miklu skemmtilegra, ég þarf aldrei aftur að fara í megrun
og það er mikið frelsi! Ég er skemmtilegri fyrir börnin mín og
á auðveldara með að hafa samskipti við annað fólk. Ég hvet
því fólk eindregið til að lesa bókina og snúa sér svo til OA-
samtakanna ef það telur sig hafa gagn af því. Heimasíða
OA-samtakanna er www.OA.is og á vegum alþjóðasamtak-
anna www.overeatersanonymous.org er einnig síða sem er
ætluð heilbrigðisstarfsfólki," segir hún að lokum.
Gleðilegjól!
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur ákveðið að senda
ekki jólakort til félaga og velunnara innanlands heldur
styrkja Styrk, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda
þeirra, um 50.000 krónur. Jólakort Styrks, Við Ægisíðuna
eftir Bjarna Jónsson, voru keypt til að senda félögum erlend-
is. Félagið óskar öllum velunnurum gleðilegra jóla.
Bækur og bæklingar
„Ósýnilegar fjöl-
skyldur" nefnist bók
sem er nýkomin út á
vegum Háskóla-
útgáfunnar. Höfundar
eru Hanna Björg
Sigurjónsdóttur og
Rannveig Trausta-
dóttir. í bókinni er
fjallað um seinfærar/
þroskaheftar mæður
og börn þeirra. Bókin
er byggð á meist-
araprófsrannsókn
Hönnu Bjargar í uppeldis- og menntunarfræði við
Háskóla íslands undir handleiðslu Rannveigar Trausta-
dóttur. í rannsókninni, sem kynnt er í bókinni, er sagt
frá 10 konum á ólíkum aldri sem bjuggu við
mismunandi aðstæður. Elsta konan var 83 ára þegar
talað var við hana og sú yngsta 26 ára. Konurnar áttu
börn sín um og upp úr 1950 en yngsta barn í rann-
sókninni fæddist árið 2000. Barneignir kvennanna ná
því yfir 50 ára tímabil og töldu rannsakendur mikilvægt
að ná yfir þetta tímabil, m.a. til að öðlast skilning á því
hvaða áhrif breytingar á ýmsum félagslegum þáttum
hafa haft á líf seinfærra/þroskaheftra kvenna og
möguleika þeirra til barneigna og fjölskyldulífs, svo
sem viðhorf til þroskaheftra, hugmyndafræði, opinbera
stefnu og þróun félagslegrar þjónustu. Auk kvennanna
er rætt við þrjú uppkomin börn elstu mæðranna í
rannsókninni. Bókin er 226 bls. og fæst í öllum helstu
bókabúðum.
Viltu hætta
að reykja?
Ef áhugi reynist fyrir hendi
verður hjúkrunarfræðingum,
sem reykja, boðið upp á
hópmeðferð gegn reykleysi.
Leiðbeinandi verður Dagmar Jónsdóttir. Þeir
sem hafa áhuga á slíkri meðferð eru beðnir
um að hafa samband við Dagmar í netfangi
dagmarj@heimsnet.is fyrir áramótin.
OsÝNILEGAR FJÖLSKYLDUR
Seinfærar/þroskaheftar mæður og bórn þeirra
Hanna Bjórg Sigurjónsdóttir
Rannveig Traustadóttir
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001
343