Fréttablaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 2
Mikill viðbúnaður var hjá sérsveit ríkislögreglustjóra í gær er fregnir bárust af manni á Grettisötu sem talinn var ætla að vinna sjálfum sér mein.
Höfðu sérsveitarmennirnir meðferðis ýmis verkfæri, til að mynda gula höggboltabyssu. Aðgerðirnar vöktu nokkur ónot meðal vegfarenda.
Veður
Austlæg eða breytileg átt, víða
hæg. Él í flestum landshlutum og
dálítil snjókoma syðst á landinu
um kvöldið. Hiti víða 0 til 5 stig að
deginum. sjá síðu 44
Viðskipti Að mati Tryggva Axels-
sonar, forstjóra Neytendastofu,
skortir mannafla til að taka á duldum
auglýsingum áhrifavalda á samfélags-
miðlum á borð við Instagram.
„Við erum með 15 stöðugildi á
Neytendastofu og starfsemi okkar er
svo víðtæk þannig að það gefur auga-
leið að það er skortur, það þarf auk-
inn kraft í þessa hluti,“ segir Tryggvi.
Stöðugt þurfi að forgangsraða.
„Það eru ekki bara auglýsingar
þarna heldur líka verðmerkinga-
eftirlit. Við erum að fá fleiri og fleiri
eftirlitsverkefni. Þetta er mjög víðtæk
starfsemi,“ segir Tryggvi.
Greint var frá því í gær að samtök-
in Public Citizen í Bandaríkjunum
hefðu sent yfir 90 erindi til svokall-
aðra áhrifavalda: Hollywood-stjarna,
íþróttamanna og fyrirsæta, til að
ítreka að þeir ættu að taka það fram
í upphafi hvers innleggs á Instagram
ef verið væri að auglýsa vörur.
„Við gáfum út leiðbeiningar árið
2015 og sendum á fjölmiðla og ein-
hverja bloggara. En við höfum ekki
farið af stað aftur með svona kynn-
ingarátak,“ segir Daði Ólafsson, lög-
fræðingur hjá Neytendastofu.
Daði segir Neytendastofu nú með
eitt mál í gangi sem augljóst sé að
tilefni hafi verið til að skoða. Fyrir-
tæki auglýsti á Instagram og voru
innleggin ekki nægilega vel merkt.
Neytendastofa getur gefið fyrirmæli
um breytingar og lagt á sektir.
Að sögn Daða hefur Neytenda-
stofa fengið margar fyrirspurnir um
hvernig eigi að standa að þessu.
„Þó að við sjáum að framkvæmdin
sé ekki alveg fullkomin þá virðist
þetta vera að mjakast í rétta átt
miðað við hvernig ástandið var
áður.“ saeunn@frettabladid.is
Hér skortir eftirlit með
duldum auglýsingum
Forstjóri Neytendastofu segir þörf á meiri mannafla vegna dulinna auglýsinga
á samfélagsmiðlum. Neytendastofa hefur ekki haft samband við áhrifavalda á
samfélagsmiðlum vegna dulinna auglýsinga líkt og bandarísk yfirvöld hafa gert.
Auglýsingar oft skýrari á bloggum en Instagram
Athygli var vakin á því í byrjun þessa mánaðar að veitingastaðurinn
Þrastarlundur væri að bjóða mörgum áhrifavöldum á samfélagsmiðlum
til sín í bröns. Þegar áhrifavaldar auglýstu svo staðinn í bloggfærslum og
á myndum á Instagram var það ekki alltaf tekið skýrt fram, sérstaklega
ekki á Instagram.
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir, eða Heidi Ola eins og hún er þekkt, er ein
þeirra sem var boðið og bloggaði um staðinn í færslu sem tekið var fram
að var kostuð og setti mynd á Instagram. „Ég held að við megum alveg
bara pósta myndum, eins og við viljum það eru hvergi til reglur um það."
samgöngur „Það er ekki búið að
taka saman hversu mikið tjónið er
en ég get sagt að kostnaður verður
yfir 100 milljónir króna,“ segir Svan-
hvít Friðriksdóttir, upplýsingafull-
trúi WOW air, en ein af þremur Air-
bus A330 breiðþotum flugfélagsins
skemmdist eftir að farangursvagn
frá IGS, dótturfélagi Icelandair, fauk
á hana í óveðrinu á annan í páskum.
Vegna atviksins varð keðjuverkun
þannig að fjölmargir farþegar kom-
ust ekki til Íslands á réttum tíma og
munu síðustu farþegarnir lenda í
dag.
Flugfélagið þurfti að leigja 529
sæta tveggja hæða breiðþotu til að
koma strandaglópunum til landsins.
Svanhvít segir að starfsfólk WOW
air sé búið að vinna hörðum hönd-
um að því að leysa málin síðan flug-
vélin skemmdist. „Fjöldi starfsfólks
WOW air hefur unnið í þessu máli,
dag og nótt síðustu daga. Starfsfólk
okkar hefur eftir fremsta megni
reynt að koma farþegum til landsins
sem fyrst en þetta hefur verið erfitt
og flókið mál.“
Lokið var við viðgerð og yfirferð
breiðþotu WOW í morgun og mun
vélin hefja áætlunarflug síðar í dag.
– bb
Tjón WOW yfir
100 milljónir
Kostnaðarsamt óhapp varð í óveðri.
Fréttablaðið/Vilhelm
UP!LAGÐUR
Við látum framtíðina rætast.
Nýr up! frá aðeins
1.890.000 kr.
margir áhrifavaldar auglýstu Þrastarlund í
merktum bloggfærslum en tóku ekki fram
að þetta væri auglýsing á instagram.
Svanhvít Friðriks-
dóttir, upplýs-
ingafulltrúi
WOW air.
Gráir fyrir járnum á Grettisgötu
Dómsmál Hæstiréttur staðfesti
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um að tugmilljóna króna Tesla-bif-
reið stofnanda United Silicon á
Íslandi yrði áfram í haldi yfirvalda.
Stofnandinn, Magnús Ólafur
Garðarsson, er grunaður um „stór-
felldan og ítrekaðan hraðakstur“ á
bílnum sem og að hafa valdið slysi
á Reykjanesbrautinni þann 20. des-
ember síðastliðinn.
Í dómsgögnum segir að Magnús
sé sakaður um að hafa keyrt of hratt
vestur eftir Reykjanesbrautinni í
slæmum aðstæðum. Magnús hafi
misst stjórn á bílnum og ekið utan
í annan bíl. Í dómnum kemur fram
að Magnús segi málið einfalt. Hann
hafi misst stjórn á bílnum vegna ytri
aðstæðna. Saksóknarar telja bílinn
hafa sönnunargildi og segja líklegt að
gerð verði krafa um að bíllinn verði
gerður upptækur. – þea
Tugmilljóna bíll
ekki afhentur
2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
1
-C
B
6
8
1
C
B
1
-C
A
2
C
1
C
B
1
-C
8
F
0
1
C
B
1
-C
7
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K