Fréttablaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 18
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Víkingur R.
9. ÍBV
10. ÍA
11. Grindavík
12. Víkingur Ólafsvík
Spá 2017
ÍBV: Á svipuðum slóðum og í fyrra Markaðurinn Þjálfarinn
Íþróttadeild 365 heldur áfram
niðurtalningu fyrir nýtt keppnis-
tímabil í Pepsi-deild karla í dag
með árlegri spá sinni um deildina.
Spánni verða gerð skil í öllum
miðlum okkar – hún birtist fyrst í
Fréttablaðinu en verður svo fylgt
eftir í ítarlegri útgáfu á Vísi sem
og í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Íþróttadeild 365 spáir ÍBV 9.
sæti deildarinnar, sama sæti
og liðið endaði í í fyrra.
Kristján Guðmundsson
er nýr þjálfari ÍBV en hann
var síðast í Pepsi-deildinni
með lið Keflavíkur,
sumarið sem liðið féll úr
deildinni.
Eins og Óskar Hrafn
Þorvaldsson, einn sérfræðingur
Pepsi-markanna, bendir á heldur
liðið miðvarðaparinu sínu sem
var besti hluti liðsins í fyrra. En
það séu stærri spurningamerki við
sóknarleik liðsins.
„Þeir eru að treysta að nokkru
leyti á Arnór Gauta Ragnarsson,
ungan strák sem var með Sel-
fossi í fyrra. Hann gæti fundið
fyrir því að það er munur á
því að spila í Inkasso-deild-
inni og Pepsi-deildinni,“
sagði Óskar Hrafn.
Stemningin í Eyjum er
rómuð þegar vel gengur
en getur verið fljót að
fara með versnandi
gengi.
komnir
Alvaro Montejo Calleja (Fylkir)
Arnór Gauti Ragnarsson (Breiðablik)
Atli Arnarson (Leiknir R.)
Jónas Þór Næs (B36)
Kaj Leo í Bartalsstovu (FH)
Viktor Adebahr (Svíþjóð)
Farnir
Aron Bjarnason (Breiðablik)
Benedikt Októ Bjarnason (Fram)
Guðmundur Steinn Hafsteinsson
(Víkingur Ó.)
Jonathan Barden (Mees Siers)
Simon Smidt (Fram)
Sören Andreasen
kristján Guðmundsson
Fimmta árið í röð
hefja Eyjamenn
leik með nýjan
þjálfara. Kristján
var hársbreidd
frá því að gera
Keflavík að Ís-
landsmeistara árið 2008 en hefur
síðan þá stýrt Val og Leikni.
Þrír sem stólað er á
l Hafsteinn Briem
l Avni Pepa
l Pablo Punyed
pepSi-deildin
Besti og versti mögulegi árangur 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12.
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12.
Víkingur R.: Hvernig verða nýju mennirnir? Markaðurinn Þjálfarinn
Íþróttadeild 365 heldur áfram
niðurtalningu fyrir nýtt keppnis-
tímabil í Pepsi-deild karla í dag
með árlegri spá sinni um deildina.
Spánni verða gerð skil í öllum
miðlum okkar – hún birtist fyrst í
Fréttablaðinu en verður svo fylgt
eftir í ítarlegri útgáfu á Vísi sem
og í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Íþróttadeild 365 spáir
Víkingi 8. sæti Pepsi-
deildarinnar. Liðið náði
ekki að standa undir
miklum væntingum
í fyrra þrátt fyrir að
hafa sett persónu-
legt stigamet.
Liðið hefur fengið
nokkra nýja leikmenn,
þar af þrjá erlenda sem verða í
stóru hlutverki ef af líkum lætur.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, sér-
fræðingur í Pepsi-mörkunum,
segir nauðsynlegt að þeir eigi
toppsumar en setur spurning-
armerki við varnarleikinn.
„Hverjir verða miðverðir?
Verða það Halldór Smári
og Alan Lowing? Er það
nógu sterkt par til að fara
þangað sem Víkingur vill
fara?“ segir hann.
Víkingar hafa burði til
að vera um miðja deild
og gott betur ef allt
gengur upp. En ef illa
fer gæti liðið sogast í
fallslag.
komnir
Geoffrey Castillion (Debrecen)
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
(Haukar)
Muhammed Mert (Holland)
Milos Ozegovic (Radnicki Pirot)
Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Örvar Eggertsson (Breiðablik)
Farnir
Gary Martin (Lokeren)
Igor Taskovic (Fjölnir)
Josip Fucek (Rúmenía)
Kristófer Páll Viðarsson (KA, á láni)
Marko Perkovic
Óttar Magnús Karlsson (Molde)
Stefán Þór Pálsson (ÍR)
Viktor Jónsson (Þrótt R.)
milos milojevic
Þjálfari Víkings er
Milos Milojevic.
Serbinn tók einn
við liðinu á miðju
sumri 2015 þegar
Ólafur Þórðarson
var látinn fara
og setti stigamet á sinni fyrstu
heilu leiktíð einn sem aðalþjálfari
liðsins.
Þrír sem stólað er á
l Róbert Örn Óskarsson
l Alex Freyr Hilmarsson
l Vladimir Tufegdzic
Besti og versti mögulegi árangur
Fótbolti Íþróttadeild 365 opin-
berar hér að ofan og neðan hvaða
liðum hún spáir 8. og 9. sæti Pepsi-
deildar karla í fótbolta í sumar.
Víkingar í Reykjavík og Eyjamenn
halda sætum sínum en eins og kom
fram á síðustu dögum er Grindavík
og Ólafsvíkingum spáð falli en ÍA
gælir við það og hafnar í 10. sæti ef
spáin rætist.
Fallbaráttan gæti orðið spenn-
andi í sumar en aðeins annar nýlið-
inn, Grindavík, er talinn þurfa að
berjast við falldrauginn. KA-menn
koma mun betur mannaðir til leiks
og hafa ekki enn birst í spá íþrótta-
deildar.
Fiskiþorpin falla
Grindvíkingar hafa styrkt sig ágæt-
lega en byggja ekki á sama svaka-
lega grunni og Akureyringarnir. Í
liðinu er mikið um leikmenn sem
hafa aldrei sannað sig í deild þeirra
bestu og má búast við erfiðu sumri
í Grindavík.
Það sama má segja um Ólafsvík
en lærisveinar Ejubs Purisevic eru
í neðsta sæti í flestum spám sem
birst hafa fyrir mótið. Þeir hafa
misst sterka leikmenn og lofa ekki
nógu góðu fyrir sumarið. Liðið hélt
sér í raun uppi á frábærri byrjun á
síðustu leiktíð og mörkum Hrjve
Tokic sem er nú farinn frá liðinu í
Breiðablik.
Ólafsvíkurliðið skoraði ekki nema
23 mörk í fyrra og hefur ekki bætt
við sig alvöru markaskorurum. Það
bendir því ekkert til þess að liðið
geti leikið sama leik og í byrjun
mótsins í fyrra. Það vann svo ekki í
tíu leikjum í röð í seinni hlutanum
áður en það hélt sér uppi.
Sama góða sagan á Skaganum?
Skagamenn urðu fyrir miklu áfalli
við að missa Ármann Smára Björns-
son og Iain Williamson fyrir mótið
en báðir lögðu skóna á hilluna.
Skagamenn þurftu að leita út fyrir
landsteinana til að fylla í skörðin
og eru því meira spurningarmerki
en áður.
Þrír af fjórum bestu leikmönnum
Skagans í fyrra; Árni Snær í markinu
og tveir fyrrnefndir, eru allir frá en
Ingvar Þór Kale er mættur í markið
á Skaganum.
Gunnlaugur Jónsson hefur gert
ótrúlega hluti með ÍA-liðið og gæti
gert aðra eins hluti af erlendu leik-
mennirnir standa sig, en stuðnings-
menn ÍA ættu ekki að búast við allt-
of góðu tímabili þetta sumarið.
Erfitt sumar í
fiskibæjunum
Grindvíkingar og Ólafsvíkingar kveðja Pepsi-deild-
ina ef spá íþróttadeildar 365 rætist þetta sumarið.
Ejub Purisevic og lærisveinar hans í Ólafsvík kveðja deildina ef spáin rætist að
þessu sinni en Ólsarar voru nýliðar í fyrra. FréttaBlaðið/EyþÓr
aftur nýr þjálfari
Fimmta árið í röð mætir ÍBV með
nýjan þjálfara til leiks en Kristján
Guðmundsson er tekinn við liðinu.
Kristján hefur sjálfur ýmislegt að
sanna en lítið hefur gerst hjá honum
síðan hann gerði Keflavík næstum
því að Íslandsmeistara árið 2008.
Eyjamenn eru áfram með mjög
sterka varnarlínu en þá vantar
markaskorara. Mættur til starfa er
tvítugur Bliki, Arnór Gauti Ragnars-
son og vonast er til þess að Gunnar
Heiðar Þorvaldsson geti beitt sér
eitthvað af viti.
Eyjamenn fá mjög þægilega byrj-
un á mótinu þar sem þeir verða að
safna stigum en svo þarf stemningin
að halda því þrátt fyrir góða byrjun í
fyrra voru Eyjamenn hársbreidd frá
því að falla en björguðu sér á loka-
metrunum. tomas@365.is
Grindavík - kr 88-89
Grindavík: Lewis Clinch Jr. 33/4 fráköst/7
stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 21/12 frá-
köst, Dagur Kár Jónsson 15/5 fráköst, Þor-
steinn Finnbogason 7/6 fráköst, Ómar Örn
Sævarsson 4/14 fráköst, Þorleifur Ólafsson
4, Ingvi Þór Guðmundsson 4/6 fráköst.
Grindavík: Jón Arnór Stefánsson 24/5 frá-
köst, Brynjar Þór Björnsson 18/5 fráköst/6
stoðsendingar, Philip Alawoya 14/10 frá-
köst/5 stoðsendingar, Kristófer Acox 9/13
fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 8, Darri
Hilmarsson 7/5 fráköst, Pavel Ermolinskij
5, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 4/4
fráköst.
Staðan í einvíginu er 2-0, KR í vil.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Lokaúrslit, 2. leikur
Um helgina
Stöð 2 Sport:
l 09.00 Estrella Damm Golfst.
l 13.25 Frankf. - augsburg Sport 3
l 13.25 Bayern - mainz Sport
l 13.50 Swansea - Stoke Sport 2
l 16.05 Chelsea - Spurs Sport 2
l 17.00 Valero texas open Golfst.
S 09.00 Estrella Damm Golfst.
S 13.05 Burnley - man Utd Sport
S 13.50 arsenal - m. City Sport 2
S 15.20 liverpool - C. Palace Sport
S 17.00 Valero texas open Golfst.
S 18.40 r. madrid - Barca Sport 2
S 18.50 Snæfell - keflavík Sport
S 19.30 okC - Houston Sport 3
Frumsýningar á leikjum:
l 16.15 West Ham - Everton Sport
l 18.15 B’mouth - Boro Sport 2
l 20.00 Hull - Watford Sport2
olís-deild karla - undaúrslit:
l 15.00 afturelding - FH Varmá
Áskorendabikar karla - undaúrslit:
l 18.00 Valur - Potaissa Valshöll
olís-deild kvenna - undaúrslit:
S 14.00 Grótta - Stjarnan Hertzhöll
S 16.00 Haukar - Fram Ásvellir
Domino’s-deild kvenna - lokaúrs.:
S 19.15 Snæfell - keflav. Stykkish.
Úrslit lengjubikarsins á Valsvelli
m 16.00 Valur-Breiðablik Kvenna
m 19.15 Grindavík - kr Karla
VALdÍS ÞÓRA ÁFRAM
Valdís Þóra Jónsdóttir lék annan
hringinn á Estrella damm-mótinu
á Spáni á einu höggi yfir pari. Hún
er samtals á tveimur höggum undir
og komst auðveldlega í gegnum
niðurskurðinn sem miðaðist við
tvö högg yfir pari. Valdís er í 22.-
29. sæti á mótinu, sem er hennar
þriðja í Evrópumótaröðinni í golfi.
Sýnt verður frá mótinu á Golf-
stöðinni um helgina.
2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r18 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
1
-D
5
4
8
1
C
B
1
-D
4
0
C
1
C
B
1
-D
2
D
0
1
C
B
1
-D
1
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K