Fréttablaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 8
Landsbankinn greiðir 6.000 kr. mótframlag þegar
fermingarbörn leggja 30.000 kr. eða meira inn á
Framtíðargrunn eða í verðbréfasjóð. Ef báðir kostir
eru nýttir leggur Landsbankinn því til 12.000 kr. í
mótframlag. Þannig viljum við hvetja til sparnaðar.
Sparaðu og við
hvetjum þig áfram
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Frakkland Á morgun ganga Frakkar
að kjörborðinu og kjósa þann fram-
bjóðanda sem þeim líst best á í fyrri
umferð forsetakosninga. Ellefu fram-
bjóðendur verða á kjörseðlinum en
fjórir mælast með mun meira fylgi
en aðrir.
Tveir hlutskörpustu munu mætast
í síðari umferð forsetakosninga, það
er að segja ef enginn frambjóðandi
fær meira en helming atkvæða á
morgun.
Lengi vel naut Marine Le Pen,
frambjóðandi Frönsku þjóðfylk-
ingarinnar, mests stuðnings. Allt frá
því í ágúst og fram undir lok mars
mældist hún efst.
Eftir að upp komst að frambjóð-
andi Repúblikana, Francois Fillon,
hefði mögulega greitt fjölskyldu
sinni laun fyrir uppskálduð störf
sem aðstoðarmenn hans, missti
hann talsvert fylgi til hins frjálslynda
Emmanuels Macron, frambjóðanda
En Marché!. Nú mælist Macron
efstur.
Þá hefur sósíalistinn Jean-Luc
Mélenchon, frambjóðandi La France
Insoumise, sótt í sig veðrið undanfar-
ið og siglt upp að hlið þeirra þriggja
fyrrnefndu.
Benoit Hamon, frambjóðandi
Sósíalistaflokksins, flokks Francois
Hollande forseta, mælist hins vegar
með innan við helming fylgis fjór-
menninganna.
Macron mælist með 24 prósent
samkvæmt meðaltali skoðanakann-
ana sem The Financial Times tekur
saman. Le Pen er með 22 prósent,
Fillon og Mélenchon með 19 prósent
en Hamon ekki nema átta prósent.
Sé litið til kannana á fylgi fram-
bjóðenda í seinni umferð mælist
Le Pen jafnvel ekki. Hún mælist um
tuttugu prósentustigum veikari en
Fillon og Mélenchon og þrjátíu pró-
sentustigum neðar en Macron. Fillon
mælist fjórtán prósentustigum neðar
en Mélenchon og 32 neðar en Mac-
ron.
Þá er ótalin hugsanleg barátta
milli Macrons og Mélenchons en
þar mælist Macron með 59 prósenta
fylgi en Mélenchon 41 prósent.
Ljóst er því að miðað við skoðana-
kannanir stefnir ekki í spennandi
kosningabaráttu í seinni umferð.
Óljóst er hvaða áhrif skotárás
fimmtudagsins mun hafa á kosning-
arnar.
Þá skaut 39 ára maður að nafni
Karim Cheurfi lögreglumann til
bana. Er hann talinn íslamskur öfga-
maður og fannst haglabyssa og hníf-
ar í bíl hans. Hollande forseti kallaði
árásina hryðjuverk og hefur Íslamska
ríkið lýst yfir ábyrgð á henni.
Varð árásin þess valdandi að Le
Pen, Fillon og Macron aflýstu síðustu
kosningafundum sínum og hvöttu
stjórnvöld til aðgerða til að fyrir-
byggja frekari árásir.
Le Pen sagði á blaðamannafundi
að herða ætti landamæraeftirlit og
vísa innflytjendum á eftirlitslistum
lögreglu úr landi.
Fillon sagði að baráttan gegn ísl-
ömskum öfgamönnum ætti að vera
forgangsatriði næsta forseta á meðan
Macron hvatti Frakka til að láta ótt-
ann ekki heltaka sig.
thorgnyr@frettabladid.is
Útlit fyrir afar spennandi fyrri umferð
Emmanuel Macron
En Marche! – 24%
l Fjárfesting fyrir 5.800 milljarða
króna í innviðum og endur-
nýjanlegri orku
l Gjaldfrjáls gleraugu, heyrnar-
tæki og tannlækningar
l Lækka skatta á fyrirtæki
l Minnka atvinnuleysi
Marine Le Pen
Franska þjóðfylkingin – 22%
l Þjóðaratkvæðagreiðsla um út-
göngu úr ESB
l Vísa ólöglegum innflytjendum
úr landi
l Loka moskum íslamskra öfga-
manna
l Setja Frakka í forgang þegar
kemur að félagslegu húsnæði
Francois Fillon
Repúblikanar – 19%
l Fækka um hálfa milljón störfum
hjá hinu opinbera
l Afnema eignaskatt
l Afnema ríkisborgararétt
íslamskra öfgamanna
l Berjast með Bashar al-Assad Sýr-
landsforseta gegn ISIS
Jean-Luc Mélenchon
La France Insoumise – 19%
l Lækka kosningaaldur í sextán ár
l Færa meiri völd til þingsins og
breyta forsetaþingræðisfyrir-
komulaginu
l Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta á
öllum sviðum
l Uppræta heimilisleysi í Frakk-
landi
Helstu baráttumál frambjóðenda
22% segjast ætla að kjósa Marine Le
Pen, frambjóðanda Frönsku
þjóðfylkingarinnar.
24% segjast ætla að kjósa Emmanuel
Macron, frambjóðanda En
Marche!
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Fyrri umferð forseta-
kosninga í Frakklandi
fer fram á morgun. Fjórir
eiga raunhæfan mögu-
leika á að komast áfram
í aðra umferð. Kannanir
benda ekki til spenn-
andi seinni umferðar,
sama hverjir verða þar.
Arftaki Hollande mælist
með minna fylgi.
2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
2
-0
6
A
8
1
C
B
2
-0
5
6
C
1
C
B
2
-0
4
3
0
1
C
B
2
-0
2
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K