Fréttablaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 30
Bíddu, ég þarf aðeins að laga keðjurnar,“ segir Aron Can þegar upp-takan byrjar að rúlla. Við erum nýkomin niður af þakinu á Hótel
Holti þar sem vindhviða var næstum
búin að feykja tónlistarmanninum af
hinu bleika íkoníska merki hótelsins
og niður á malbikið fjórum hæðum
neðar. Það er svo sem engin góð
tímasetning til að lenda í örkuml-
andi slysi, en þennan miðvikudag er
ný plata Arons að koma út og því sér-
staklega mikilvægt að fara varlega.
Það er rétt rúmt ár síðan Aron gaf
út sitt fyrsta lag, Þekkir stráginn, en
þó nýja platan sé númer tvö til að
koma út frá honum er þetta í fyrsta
sinn sem Aron gefur út plötu sem
er í alvöru hægt að halda á, snerta,
skoða, fletta og setja á fóninn. „Við
strákarnir töluðum alveg um þetta
og vorum á báðum áttum en kom-
umst svo að þeirri niðurstöðu að
okkur langaði að gera diska. Fyrst
ætluðum við bara að henda þessu
á netið eins og við gerðum með
síðustu plötu en þessi er svo miklu
stærra verk. Mig langaði að eiga hana
svo ég geti haldið á henni og skoðað.
Mér þykir alveg ótrúlega vænt um
þessa plötu. Og svo ég tali út frá
minni eigin reynslu þá hefur mér
alltaf þótt gaman að eiga bæði diska
og vínyl. Það eru verk sem mér þykir
vænt um og finnst gaman að eiga,“
segir Aron.
Á þessu eina ári hefur hann troðið
upp á helstu tónlistarhátíðum lands-
ins, átt aðallag kvikmyndarinnar
Eiðsins eftir Baltasar Kormák og var
á Íslensku tónlistarverðlaununum
tilnefndur fyrir hiphop-lag og plötu
ársins, auk þess sem að vera til-
nefndur sem bjartasta vonin. Lagið
Silfurskotta eftir Emmsjé Gauta,
sem Aron syngur í, hlaut Íslensku
tónlistarverðlaunin sem hiphop-
lag ársins. Sagan segir einmitt að við
tökur á því lagi hafi Gauti og félagi
hans sótt hinn þá sextán ára gamla
Aron í Grafarvoginn, þar sem hann
er fæddur og uppalinn, til að syngja
sinn hluta í laginu. Aron hafi sungið
lagið í einni töku, lagað keðjurnar og
farið. Fullskapaður.
Tyrkland í blóðinu
„Ég er alinn upp í Grafarvogi og hef
alltaf búið þar. Mér líður langbest
þar. Þar byrjaði þetta allt,“ segir
Aron.
Faðir hans er tyrkneskur veit-
ingahúsarekandi og á meðal ann-
ars Kebabhúsið í Austurstræti og
veitingahúsið Meze á Laugavegi. „Ég
á heila fjölskyldu í Tyrklandi. Þar
vaknar maður bara með hlaðborð
fyrir framan sig. En ég hef aðallega
alist upp í kringum kebab og ham-
borgara.
Ég hef fengið að kynnast Tyrklandi
á svo allt öðruvísi hátt. Það eru svo
margir með einhverjar hugmyndir
um það hvernig Tyrkland er, sérstak-
lega krakkar á mínum aldri sem gera
sér ekki alveg grein fyrir því hvernig
landið er í raun og veru, en ég hef
verið þarna svo ótrúlega mikið. Ég
á stærri fjölskyldu þar en hér og
það skiptir mig máli að þekkja lífið
í Tyrklandi, hvernig fólk er í sam-
félaginu, ekki bara það sem þú sérð í
fréttunum. Ég á mitt fólk þar.“
Aron segist samt aldrei hafa
fundið fyrir neinum fordómum út
af upprunanum. „Ég kann tyrknesku
en ég gæti aldrei rappað á tyrknesku,
eða borið fram lög eða samið neitt.
Eða jú, ég gæti gert það, en það væri
ömurlegt. Ég hugsa á íslensku og hef
auðvitað bara alltaf búið hér. En
fyrsta rappið sem ég hlustaði á var
tyrkneskt.“
Í hátölurunum á Prikinu í Banka-
strætinu ómar þungt hiphop. „Tyrk-
nesk tónlist hefur gert alveg ótrúlega
mikið fyrir mig. Söngurinn er allt
öðru vísi framborinn. Röddin miklu
melódískari. Pabbi vill meina að sú
tenging sé það sem geri tóninn minn
öðruvísi en annað hér. Öll fjölskyld-
an mín í Tyrklandi hlustar á sönginn
minn og segir: Já, þetta, þetta er frá
okkur.“
Reif sig upp úr ruglinu
Það vilja oft verða til gróusögur um
fólk sem verður þekkt á einni nóttu. Í
vissum kreðsum hefur verið þrálátur
orðrómur um að Aroni fylgi neysla
fíkniefna og almennt vesen. Hann
segir ekkert til í því.
„Auðvitað þegar þetta gerðist allt á
einni nóttu þá fór ég ekkert hárrétta
leið strax. Ég kunni ekki alveg að vera
allt þetta. Ég get alveg viðurkennt að
ég hef gert hluti sem ég sé kannski
eftir og ég hef gert mistök. En sem
betur fer náði ég að laga það strax
áður en það varð of seint. Ég náði að
koma mér á rétta braut og lærði ótrú-
lega mikið. Ég fór að einbeita mér
miklu meira að tónlistinni.“
Nýja platan er einmitt um þennan
tíma sem liðið hefur síðan fyrsta
lagið náði vinsældum. „Þetta albúm
er í raun bara allt sem ég hef upp-
lifað síðan. Til dæmis þegar ég var
alls ekki á góðum stað. Ég fer alveg
djúpt inn í það og tímabilið þar
sem ég var að koma mér úr vissum
málum. Þegar ég var að koma heim
úr skólanum og mamma var alltaf
með eitthvað nýtt til að spyrja mig
um sem hún hafði frétt. Oft eitthvað
alveg fráleitt. Það lét mig smá sjá að
þegar þetta var byrjað að hafa áhrif
á fjölskylduna mína og móður mína,
þá vaknar maður. Þannig að í heild-
ina er þessi plata um allt sem hefur
verið að frétta.“
Hann segist að mestu leyti hafa
sjálfur rifið sig upp úr ruglinu. „Já,
ég og fjölskyldan mín. Ég á bestu
mömmu í heimi og svo hefur kær-
astan mín líka hjálpað mikið. Ég á
ótrúlega mikið af góðu fólki að.“
Enginn krakki
Aron þurfti einmitt að fá skriflegt
leyfi frá mömmu sinni til að troða
upp á Ísafirði um páskahelgina.
Hann segist samt aldrei finna fyrir
því að komið sé fram við hann eins
og einhvern krakka. „Jú, kannski fólk
sem þekkir mig ekki, fólk sem talar
um mig og hefur ekki hitt mig. Ég
skil það alveg. Ef það væri einhver
sautján ára dude orðinn eitthvað, þá
myndi ég líka örugglega kalla hann
krakka. En mér finnst allir sem ég
hef kynnst, sérstaklega hér á Prikinu,
vera alveg ótrúlega gott fólk og góðir
vinir manns. Hingað til hafa allir
verið ótrúlega hlýir. Þetta snýst bara
um að vera góður.“
Hann talar einmitt um að hafa
engan sérstakan áhuga á því að vera
þekktur fyrir eitthvað sem engu
máli skiptir. „Ég vil bara að tónlistin
sé fræg. Það er það sem er svo mikið
að frétta. Tónlistin er stór, lögin sjálf.
Ef tónlistin er alltaf á sínum stað, þá
líður mér ótrúlega vel.“
Og rétt í því uppfærðust hlust-
unartölur fyrir lagið Enginn mórall.
Lagið hefur rúllað ríflega milljón
sinnum á Spotify.
„Ég er bara í skýjunum. Fólki má
alveg finnast það sem því finnst og
ég veit alveg að það elska ekkert allir
tónlistina mína. Það er heldur ekki
hægt að búast við því. En mér finnst
fátt skemmtilegra en að lesa einhver
komment og sjá eitthvert lið vera
bara alveg ógeðslega reitt út í mig.
Eins og ég hafi gert þeim eitthvað.
Það hlýtur að vera eitthvað miklu
verra að gerast hjá þeim en mér.“
Tíu ára planið inniheldur hús, bíl
og útrás. „Lífið mitt er bara rétt að
byrja. Mig langar að fara út í heim,
ferðast og taka upp úti. Við strák-
arnir erum ekkert að ýta tónlistinni
neitt mikið út núna en seinna meir
viljum við fara á erlenda markaði.
Svo er bara að halda áfram að gera
það sem mér finnst gaman og restin
sér um sig sjálf. Í heildina eru allir að
sýna alveg ótrúlega mikla ást. Sér-
staklega fólkið sem ég vil að sé að
sýna ást. Fólkið, sem mér finnst mik-
ilvægt að fíli þetta, er að fíla þetta.“
Mamma heyrði allar sögurnar
Aron Can segir að fjölskylda hans í Tyrklandi heyri greinilega áhrifin þaðan í melódískri raddbeitingunni, sem gefur tónlistinni þennan sérstaka tón sem hefur vakið svo mikla athygli. FRéTTAblAðið/EyþóR
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Ef það væri EinhvEr
sautján ára dudE
orðinn Eitthvað, þá
myndi ég líka örugg-
lEga kalla hann
krakka.
aron Can reif sig
sjálfur upp eftir að
hafa misstigið sig á
fyrstu dögum ferils-
ins. Sérstakur tónn
í tónlistinni kemur
frá tyrkneskum
uppruna sem veitir
honum innblástur.
2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r30 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
1
-E
4
1
8
1
C
B
1
-E
2
D
C
1
C
B
1
-E
1
A
0
1
C
B
1
-E
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K