Fréttablaðið - 22.04.2017, Page 30

Fréttablaðið - 22.04.2017, Page 30
Bíddu, ég þarf aðeins að laga keðjurnar,“ segir Aron Can þegar upp-takan byrjar að rúlla. Við erum nýkomin niður af þakinu á Hótel Holti þar sem vindhviða var næstum búin að feykja tónlistarmanninum af hinu bleika íkoníska merki hótelsins og niður á malbikið fjórum hæðum neðar. Það er svo sem engin góð tímasetning til að lenda í örkuml- andi slysi, en þennan miðvikudag er ný plata Arons að koma út og því sér- staklega mikilvægt að fara varlega. Það er rétt rúmt ár síðan Aron gaf út sitt fyrsta lag, Þekkir stráginn, en þó nýja platan sé númer tvö til að koma út frá honum er þetta í fyrsta sinn sem Aron gefur út plötu sem er í alvöru hægt að halda á, snerta, skoða, fletta og setja á fóninn. „Við strákarnir töluðum alveg um þetta og vorum á báðum áttum en kom- umst svo að þeirri niðurstöðu að okkur langaði að gera diska. Fyrst ætluðum við bara að henda þessu á netið eins og við gerðum með síðustu plötu en þessi er svo miklu stærra verk. Mig langaði að eiga hana svo ég geti haldið á henni og skoðað. Mér þykir alveg ótrúlega vænt um þessa plötu. Og svo ég tali út frá minni eigin reynslu þá hefur mér alltaf þótt gaman að eiga bæði diska og vínyl. Það eru verk sem mér þykir vænt um og finnst gaman að eiga,“ segir Aron. Á þessu eina ári hefur hann troðið upp á helstu tónlistarhátíðum lands- ins, átt aðallag kvikmyndarinnar Eiðsins eftir Baltasar Kormák og var á Íslensku tónlistarverðlaununum tilnefndur fyrir hiphop-lag og plötu ársins, auk þess sem að vera til- nefndur sem bjartasta vonin. Lagið Silfurskotta eftir Emmsjé Gauta, sem Aron syngur í, hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem hiphop- lag ársins. Sagan segir einmitt að við tökur á því lagi hafi Gauti og félagi hans sótt hinn þá sextán ára gamla Aron í Grafarvoginn, þar sem hann er fæddur og uppalinn, til að syngja sinn hluta í laginu. Aron hafi sungið lagið í einni töku, lagað keðjurnar og farið. Fullskapaður. Tyrkland í blóðinu „Ég er alinn upp í Grafarvogi og hef alltaf búið þar. Mér líður langbest þar. Þar byrjaði þetta allt,“ segir Aron. Faðir hans er tyrkneskur veit- ingahúsarekandi og á meðal ann- ars Kebabhúsið í Austurstræti og veitingahúsið Meze á Laugavegi. „Ég á heila fjölskyldu í Tyrklandi. Þar vaknar maður bara með hlaðborð fyrir framan sig. En ég hef aðallega alist upp í kringum kebab og ham- borgara. Ég hef fengið að kynnast Tyrklandi á svo allt öðruvísi hátt. Það eru svo margir með einhverjar hugmyndir um það hvernig Tyrkland er, sérstak- lega krakkar á mínum aldri sem gera sér ekki alveg grein fyrir því hvernig landið er í raun og veru, en ég hef verið þarna svo ótrúlega mikið. Ég á stærri fjölskyldu þar en hér og það skiptir mig máli að þekkja lífið í Tyrklandi, hvernig fólk er í sam- félaginu, ekki bara það sem þú sérð í fréttunum. Ég á mitt fólk þar.“ Aron segist samt aldrei hafa fundið fyrir neinum fordómum út af upprunanum. „Ég kann tyrknesku en ég gæti aldrei rappað á tyrknesku, eða borið fram lög eða samið neitt. Eða jú, ég gæti gert það, en það væri ömurlegt. Ég hugsa á íslensku og hef auðvitað bara alltaf búið hér. En fyrsta rappið sem ég hlustaði á var tyrkneskt.“ Í hátölurunum á Prikinu í Banka- strætinu ómar þungt hiphop. „Tyrk- nesk tónlist hefur gert alveg ótrúlega mikið fyrir mig. Söngurinn er allt öðru vísi framborinn. Röddin miklu melódískari. Pabbi vill meina að sú tenging sé það sem geri tóninn minn öðruvísi en annað hér. Öll fjölskyld- an mín í Tyrklandi hlustar á sönginn minn og segir: Já, þetta, þetta er frá okkur.“ Reif sig upp úr ruglinu Það vilja oft verða til gróusögur um fólk sem verður þekkt á einni nóttu. Í vissum kreðsum hefur verið þrálátur orðrómur um að Aroni fylgi neysla fíkniefna og almennt vesen. Hann segir ekkert til í því. „Auðvitað þegar þetta gerðist allt á einni nóttu þá fór ég ekkert hárrétta leið strax. Ég kunni ekki alveg að vera allt þetta. Ég get alveg viðurkennt að ég hef gert hluti sem ég sé kannski eftir og ég hef gert mistök. En sem betur fer náði ég að laga það strax áður en það varð of seint. Ég náði að koma mér á rétta braut og lærði ótrú- lega mikið. Ég fór að einbeita mér miklu meira að tónlistinni.“ Nýja platan er einmitt um þennan tíma sem liðið hefur síðan fyrsta lagið náði vinsældum. „Þetta albúm er í raun bara allt sem ég hef upp- lifað síðan. Til dæmis þegar ég var alls ekki á góðum stað. Ég fer alveg djúpt inn í það og tímabilið þar sem ég var að koma mér úr vissum málum. Þegar ég var að koma heim úr skólanum og mamma var alltaf með eitthvað nýtt til að spyrja mig um sem hún hafði frétt. Oft eitthvað alveg fráleitt. Það lét mig smá sjá að þegar þetta var byrjað að hafa áhrif á fjölskylduna mína og móður mína, þá vaknar maður. Þannig að í heild- ina er þessi plata um allt sem hefur verið að frétta.“ Hann segist að mestu leyti hafa sjálfur rifið sig upp úr ruglinu. „Já, ég og fjölskyldan mín. Ég á bestu mömmu í heimi og svo hefur kær- astan mín líka hjálpað mikið. Ég á ótrúlega mikið af góðu fólki að.“ Enginn krakki Aron þurfti einmitt að fá skriflegt leyfi frá mömmu sinni til að troða upp á Ísafirði um páskahelgina. Hann segist samt aldrei finna fyrir því að komið sé fram við hann eins og einhvern krakka. „Jú, kannski fólk sem þekkir mig ekki, fólk sem talar um mig og hefur ekki hitt mig. Ég skil það alveg. Ef það væri einhver sautján ára dude orðinn eitthvað, þá myndi ég líka örugglega kalla hann krakka. En mér finnst allir sem ég hef kynnst, sérstaklega hér á Prikinu, vera alveg ótrúlega gott fólk og góðir vinir manns. Hingað til hafa allir verið ótrúlega hlýir. Þetta snýst bara um að vera góður.“ Hann talar einmitt um að hafa engan sérstakan áhuga á því að vera þekktur fyrir eitthvað sem engu máli skiptir. „Ég vil bara að tónlistin sé fræg. Það er það sem er svo mikið að frétta. Tónlistin er stór, lögin sjálf. Ef tónlistin er alltaf á sínum stað, þá líður mér ótrúlega vel.“ Og rétt í því uppfærðust hlust- unartölur fyrir lagið Enginn mórall. Lagið hefur rúllað ríflega milljón sinnum á Spotify. „Ég er bara í skýjunum. Fólki má alveg finnast það sem því finnst og ég veit alveg að það elska ekkert allir tónlistina mína. Það er heldur ekki hægt að búast við því. En mér finnst fátt skemmtilegra en að lesa einhver komment og sjá eitthvert lið vera bara alveg ógeðslega reitt út í mig. Eins og ég hafi gert þeim eitthvað. Það hlýtur að vera eitthvað miklu verra að gerast hjá þeim en mér.“ Tíu ára planið inniheldur hús, bíl og útrás. „Lífið mitt er bara rétt að byrja. Mig langar að fara út í heim, ferðast og taka upp úti. Við strák- arnir erum ekkert að ýta tónlistinni neitt mikið út núna en seinna meir viljum við fara á erlenda markaði. Svo er bara að halda áfram að gera það sem mér finnst gaman og restin sér um sig sjálf. Í heildina eru allir að sýna alveg ótrúlega mikla ást. Sér- staklega fólkið sem ég vil að sé að sýna ást. Fólkið, sem mér finnst mik- ilvægt að fíli þetta, er að fíla þetta.“ Mamma heyrði allar sögurnar Aron Can segir að fjölskylda hans í Tyrklandi heyri greinilega áhrifin þaðan í melódískri raddbeitingunni, sem gefur tónlistinni þennan sérstaka tón sem hefur vakið svo mikla athygli. FRéTTAblAðið/EyþóR Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is Ef það væri EinhvEr sautján ára dudE orðinn Eitthvað, þá myndi ég líka örugg- lEga kalla hann krakka. aron Can reif sig sjálfur upp eftir að hafa misstigið sig á fyrstu dögum ferils- ins. Sérstakur tónn í tónlistinni kemur frá tyrkneskum uppruna sem veitir honum innblástur. 2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r30 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 2 2 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C B 1 -E 4 1 8 1 C B 1 -E 2 D C 1 C B 1 -E 1 A 0 1 C B 1 -E 0 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.