Fréttablaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 36
Valgerður Guðnadóttir söng-kona er leikstjóri verksins. Hún segir söngleikinn ótrú-
lega fjörugan og skemmtilegan en
þetta sé í fyrsta skipti sem hann er
settur á svið á Íslandi. „Öll lög og
textar eru eftir Dolly Parton en Þór
Breiðfjörð söngvari hefur gert glæ-
nýja þýðingu á þeim ásamt Karli
Pálssyni.“
Þetta er fjórða starfsár söng-
leikjadeildarinnar sem hefur sett
upp nokkra frábæra söngleiki.
„Núna langaði okkur að gera
stóra uppfærslu þar sem konur
væru fjölmennar. Það eru tuttugu
nemendur í söngleikjadeildinni,
meirihluti konur þótt strákum sé
alltaf að fjölga,“ segir Valgerður.
„Okkur fannst þetta verk henta vel
fyrir deildina auk þess sem það
er stórskemmtilegt. Margir muna
eftir bíómyndinni Nine to Five og
þótt hún hafi komið út árið 1980
og sé að mörgu leyti barn síns tíma
þá stendur hún alveg fyrir sínu.
Það er mikið líf og fjör á skrifstofu
Sameignar, eins og við köllum
fyrirtækið í sýningunni. Fjóla, Dóra
Lín og Sissa vilja finna leið til að ná
sér niðri á fordómafulla, sjálfselska
karlrembusvíninu Friðjóni sem er
yfirmaður þeirra. Þótt tímarnir hafi
breyst frá árinu 1980 erum við enn
að berjast við launamun kynjanna
og verkið er því hárbeitt ádeila á
misréttið,“ útskýrir Valgerður.
Samstarf við fjölbraut
Söngleikurinn verður settur upp í
Fjölbrautaskólanum í Ármúla en
ástæðu þess má rekja til upphafs
að samstarfi. Næsta vetur geta
nemendur í söngleikjadeildinni
tekið allt að fjórðung eininga til
stúdentsprófs í skólanum. Það er
í fyrsta skipti sem boðið er upp á
slíkt nám í framhaldsskóla og eykst
þar með val nemenda. „Þetta eykur
möguleika nemenda til mikilla
muna. Deildin okkar hefur mikla
sérstöðu þar sem hún er sú eina
sinnar tegundar á Íslandi, nú fær
hún að springa enn frekar út,“ segir
Valgerður sem er upphafsmaður
söngleikjadeildarinnar ásamt Þór
Breiðfjörð og Jóhönnu Þórhalls-
dóttur.
„Við erum með harðduglega nem-
endur því þeir sauma búninga,
gera leikmynd auk þess að leika og
syngja. Við fengum Auði Snorra-
dóttur til að aðstoða okkur við
dansa og hreyfingar í nokkrum at-
riðum og ljósahönnun er í umsjá Jó-
hanns Bjarna Pálmasonar. Ég dáist
að því hvað nemendur eru fjölhæfir
og geta gengið í hin ýmsu störf.
Það hefur verið sívaxandi áhugi á
söngleikjadeildinni, rétt eins og
það er mikill áhugi í þjóðfélaginu
fyrir söngleikjum sem settir eru
á svið hér á landi. Við verðum
með inntökuprufur í lok maí en
þær eru alltaf vel sóttar,“ útskýrir
Valgerður. „Námið er mjög góður
undirbúningur fyrir frekara nám
í leiklist, söng eða söngleikjum.
Nokkrir nemendur okkar eru núna
í mjög góðum skólum erlendis og
aðrir á leiðinni til Englands. Þetta
er því frábær leið til að þjálfa sig í
söngleikjaforminu sem er söngur
og leikur á sviði.“
Valgerður og Þór eru bæði söng-
menntuð og hafa mikla reynslu af
söngleikjum. Nemendur í söng-
leikjadeildinni eru á aldrinum
16 ára og upp í þrítugt. „Þetta
er krefjandi nám og það þarf að
vera ákveðinn þroski í röddinni.
Nemendur henda sér beint í djúpu
laugina með því að koma á svið og
syngja en söngleikir spanna mjög
breitt tónlistarsvið,“ segir Val-
gerður.
Sjóðheitur tangó
Á undanförnum árum hefur Val-
gerður sinnt kennslunni í Söng-
leikjadeildina ásamt mörgum
öðrum verkefnum en hún ætlar í
leyfi næsta vetur til að sinna öðrum
áhugamálum. „Leik- og söngkonan
Jana María Guðmundsdóttir leysir
mig af á meðan,“ segir hún. „Ég
var svo heppin að fá starfslaun
listamanna í eitt ár í fyrsta skipti
en það er mikill heiður. Ég verð
með tónleika næsta vetur og flyt
meðal annars lög af plötu sem ég
gaf út árið 2010 en einnig mun ég
syngja með Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Þá fer ég sömuleiðis með
til Færeyjaverk eftir Þorvald Bjarna
Þorvaldsson sem heitir Völuspá,“
segir Valgerður en hún fer með eina
hlutverkið í sýningunni ásamt kór
og hljómsveit.
„Síðan hef ég verið að stúdera
argentínskan tangó og músíkina í
kringum dansinn. Ég er í kvartett
sem kallast Kurr en við flytjum
djass, gömul dægur- og þjóðlög
og svo höfum við verið að taka
sjóðheitan tangó. Við verðum með
tónleika í ágúst og aftur næsta
vetur. Einnig stendur til að setja
upp tangódagskrá með Bjarna Þór
Jónatanssyni píanóleikara og fleiri
tónlistarmönnum,“ segir Valgerður.
„Mig langar mikið að skella mér
til Argentínu og læra tangó. Ég
kynntist Snorra Sigfúsi Birgissyni
sem er eldheitur áhugamaður um
tangó og er að spá í að biðja hann
að taka mig á tangónámskeið. Ég er
mikill dansari og finnst þetta afar
spennandi,“ segir söngkonan sem
er óhrædd við að takast á við nýja
hluti.
Sýningar í næstu viku
Valgerður hefur mikið sungið
á undanförnum árum, bæði á
tónleikum, í Óperunni og leikhús-
unum. Hún var síðast með hlutverk
í Rakaranum frá Sevilla þar sem
hún fór með hlutverk Bertu. Hún
var aðeins 18 ára þegar hún fór
með hlutverk Maríu í West Side
Story í Þjóðleikhúsinu en þá hafði
hún áður farið með hlutverk Maríu
Magdalenu í Jesus Christ Superstar.
Valgerður hlaut Grímuna, Íslensku
leiklistarverðlaunin, sem Söngvari
ársins 2009 fyrir hlutverk sitt sem
María í Söngvaseiði. Hún stundaði
nám við Söngskólann í Reykjavík
hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur
en að því loknu stundaði hún söng-
nám í Guildhall School of Music
and Drama í London.
Þegar Valgerður er spurð hvernig
helginni verði varið, svarar hún:
„Ég verð á fullu við undirbúning
Nine to Five en sýningar verða 26.
og 27. apríl í salnum í Ármúlaskóla.
Söngleikurinn hennar Dollyar
Parton gengur fyrir öllu núna,“ segir
hún.
Þess má geta að bíómyndin Nine
to Five var ákaflega vinsæl og
hlaut nokkur verðlaun á sínum
tíma. Með aðalhlutverkin fóru auk
Dollyar Jane Fonda og Lily Tomlin.
Dolly Parton er 71 árs og er enn á
fullu í tónlist.
Valgerður, Þór Breiðfjörð og nemendur söngleikjadeildar sem koma að sýningunni. MYND/STEFÁN
Valgerður var meðal þeirra sem
stofnuðu Söngleikjadeildina en
vaxandi áhugi er hjá nemendum.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Margir muna eftir
bíómyndinni Nine
to Five og þótt hún hafi
komið út árið 1980 og sé
að mörgu leyti barn síns
tíma þá stendur hún
alveg fyrir sínu. Það er
mikið líf og fjör í þessari
sýningu.
Valgerður Guðnadóttir
FRÁBÆR
KÍNVERSKU
R
VEITINGAST
AÐUR
Í MEIRA EN
30 ÁR
Krakkar að 5 ára aldri borða frítt
5 -12 ára börn 1.200kr.
HLAÐBORÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:00 - 14:00
Verð kr. 2.100
Veglegt hlaðborð með
fjölbreyttum og bragðgóðum réttum
Tilvalið fyrir fjölskyldur!
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
8 rétta
hlaðborð í
hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.590.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga.
ekki um helgar.
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l kinahofid@kinahofid.is l Sími 554 5022
www.kinahofid.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . a p r Í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
2
-2
E
2
8
1
C
B
2
-2
C
E
C
1
C
B
2
-2
B
B
0
1
C
B
2
-2
A
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K