Fréttablaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 78
leikvangurinn
E l Clásico, s t æ r s t i f ó t -b o l t a -l e i k u r h v e r s
árs, verður leik-
inn á Santiago
Bernabeu þar sem
S p á n a r t i t i l l i n n
er nánast í veði.
Real Madrid hefur
þriggja stiga forustu
á Barcelona og á leik
til góða. Vinni Real
verða þeir meistarar.
Vinni Barcelona er titil-
baráttan galopin.
Gallinn er að líkurnar á
sigri Barcelona eru ákaflega
litlar. Þeir hafa verið skelfilega
lélegir á útivöllum þegar kemur að
stórleikjum. Þeir hafa tapað fyrir
Manchester City, PSG og Juventus
í Meistaradeildinni og verða án
Neymar, sem blótaði dómaranum
svo mikið í 2:0 tapi fyrir Malaga
um daginn að hann uppskar rautt
spjald. Svo það sé sagt á hreinni
íslensku, þegar mikið liggur við þá
er Barcelona ekki nægilega gott, sé
spilað á útivelli.
Real Madrid hefur hins vegar
tekið á sig rögg þegar mikið liggur
við og aðallega maður að nafni
Cristiano Ronaldo. Hann er búinn
að skora 28 mörk í 37 leikjum, sem
er kannski ekki það mesta sem
hann hefur skorað á ferlinum, en
mörkin hans hafa oftar en ekki
skipt máli.
Í hinu liðinu er svo Lionel Messi
sem hefur skorað 45 mörk og lagt
upp 14 mörk. Samt hefur Messi
verið mikið gagnrýndur á þessu
tímabili. Aðallega fyrir framistöðu
sína í stóru leikjunum. Þar virðist
hann ekki lengur vera aðalmaður-
inn.
Svo miklu meira en
bara leikur
Saga rígsins á
milli liðanna
Sumir hafa sagt að hægt sé að
rekja hatrið á milli liðanna aftur
um 300 ár þegar Barcelona féll
árið 1714 eftir 15 ára stríð og
tveggja ára umsátur. Katalónska
var í kjölfarið bönnuð í skólum.
Ekki skánaði hagur Katalóníu
undir stjórn Francos en hann leit
á Katalóníu sem ógn við stjórn
sína. Varð Real Madrid hans lið,
andlit hans út á við, á meðan
Barcelona varð merki þeirra sem
vildu losna undan einræðisherr-
anum.
Um sögufræga viðureign er að
ræða á milli tveggja langstærstu
liða Spánar sem hafa nánast ein-
okað spænska meistaratitilinn frá
upphafi. Undanfarna þrjá áratugi
hafa aðeins fimm liðum tekist að
skáka þeim í titilbaráttunni.
Barcelona hefur haft yfir-
höndina síðustu ár en síðan 2008
hefur liðið orðið sex sinnum
meistari – Real Madrid aðeins
einu sinni. En nú virðist sem
Madrídingar hafi yfirhöndina
og tala sérfræðingar um að taka
þurfi til í herbúðum Barcelona.
Miðlungsmenn hafa verið keyptir
í staðinn fyrir að gefa La Masia
skólakrökkum tækifæri, en nýr
þjálfari mun taka við í sumar.
Sjónvarpsútsending El Clásico
650
milljónir manna eru sagðar horfa.
185
lönd munu sýna frá leiknum.
30
sérútbúnar myndavélar
verða á vellinum.
12
4k myndavélar fylgjast
með öllum hreyfingum.
2
myndavélar munu bara fylgja
Ronaldo og Messi.
38
myndavélar verða með 360°
tækni sem Intel hefur hannað.
400
manns sinna útsendingunni
fyrir rétthafann.
1.500
fermetrar er bílastæðið fyrir
sjónvarpsbílana á vellinum.
600
fréttamenn verða á staðnum.
El Clásico fer fram á sunnudag en það er stærsti ein-
staki deildarleikur hvers árs. Hatrið milli félaganna er
mikið og nær langt aftur í tímann. Leikurinn skiptir
öllu máli fyrir deildina en vinni Real Madrid eru
þeir svo gott sem orðnir meistarar.
En leikurinn er svo miklu stærri
en að hann snúist bara um Messi
og Ronaldo. Þetta er einn af þessum
fótboltaleikjum sem er ekki bara
leikur. Liðin sem ganga út á völl eru
metin á vel yfir 150 milljarða. Það
er eins og heildarfjárfesting Taconic
Capital, bandaríska vogunarsjóðs-
ins sem tók þátt í kaupum á Arion
banka á dögunum, hér á landi eða
fimmtugfaldur arður HB Granda á
síðasta ári.
Neymar, krónprins Barcelona,
hefur spilað 26 leiki og skorað níu
mörk og lagt upp
önnur níu. Sam-
kvæmt tölfræði
hefur hann búið
til 79 færi fyrir
félaga sína og átt
70 lykilsend-
ingar. Hans
verður því sárt
saknað enda
var það hann
sem stýrði endur-
komunni ótrúlegu
á Nou Camp þegar
PSG var slegið út.
Annar sem hugsan-
lega verður frá er
Gareth Bale. Hann
hefur verið töluvert
meiddur á þessu tíma-
bili og virkað eins og hann
sé alltaf á 90 prósent hraða og krafti.
En Real Madrid hefur aðeins tapað
þremur leikjum það sem af er tíma-
bili. Og Bale hefur ekki verið með í
þeim leikjum. Líklegt er þó að hann
skokki inn á frá byrjun í staðinn
fyrir að byrja sem varamaður.
Breiddin er einmitt svo miklu
meiri hjá Real Madrid en Barce-
lona. Gegn Juventus skipti Luis
Enrique aðeins einu sinni og hann
hefur sjaldan notað 14 leikmenn í
leik. Andre Gomes, Paco Alcacer og
Denis Suarez eru góðir leikmenn
en þeir eiga ekki heima í einu
stærsta liði heims. Langt frá því.
Á meðan hefur Zinedine Zidane oft
hent Isco, James Rodriguez, Marco
Asensio eða Alvaro Morata inn á og
bjargað stigi eða jafnvel stigum.
Leikmenn Real munu koma í
þennan leik fullir sjálfstrausts á
meðan Barcelona-liðar eru hnípnir
og brotnir eftir niðurlæginguna gegn
Juventus. Það segir þó sitt um styrk
Barcelona að vinni þeir þennan leik
þá er titilbaráttan enn galopin. Jafn-
vel þótt þeir séu búnir að spila jafn
illa og raun ber vitni. Vinni Real leik-
inn munu liðið án efa fagna Spánar-
titlinum og hringja gleðiklukkunum
það sem eftir er tímabils. – bb
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r34 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
B
1
-F
C
C
8
1
C
B
1
-F
B
8
C
1
C
B
1
-F
A
5
0
1
C
B
1
-F
9
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K