Fréttablaðið - 22.04.2017, Side 20
Hugmyndin að vís-indagöngu á Degi jarðar kviknaði í Bandaríkjunum í tilefni af ákvörð-unum Donalds
Trump um að virða vísindi á
sviði loftslagsmála að vettugi. Úr
henni varð alþjóðahreyfing svo í
dag verður gengið víða um lönd
í þágu vísindanna. Í Reykjavík
verður lagt upp frá Skólavörðuholti
klukkan 13.
Erna Magnúsdóttir er forseti Vís-
indafélags Íslendinga. Hún segir
niðurskurð fjármagns til vísindaiðk-
ana í Bandaríkjunum hafa víðtæk
áhrif og takmarka möguleika fólks
til að stunda rannsóknir og miðla
þekkingu sinni.
„Ef Bandaríkjastjórn ætlar í alvör-
unni að afneita loftslagsvísindum þá
snertir það alla á jörðinni, meðal
annars okkur Íslendinga,“ segir
hún og heldur áfram: „Bandaríkja-
menn setja tóninn í stóru sam-
hengi, bæði menga þeir þjóða mest
en hafa líka verið leiðandi á flestum
sviðum vísinda lengi, þannig að ef
þeir draga úr stuðningi við rann-
sóknir og uppgötvanir þá hefur það
áhrif um allan heim.“
Erna segir háskólana hér á
landi búa við viðvarandi niður-
skurð sem einnig hafi áhrif á rann-
sóknir. „Búið er að gefa okkur loforð
í meira en áratug um að við ætlum
að ná meðaltali OECD-landanna
í fjárframlögum til vísinda en það
er alltaf svikið. Ný ríkisstjórnar-
áætlun sýnir svart á hvítu að ekki
eigi að standa við þau nú. Það telst
ekki metnaðarfull stefna því
mörg OECD-landanna eru mun
fátækari en Ísland.“
Annað sem gangan stendur fyrir
er krafa um að teknar séu upp-
lýstar ákvarðanir sem byggja á stað-
reyndum, meðal annars á Alþingi
að sögn Ernu. „Það er ekki nóg að
hlusta á fræðafólk þegar það hentar
og tala það svo niður þegar rann-
sóknir þess passa ekki eigin skoð-
unum. Skemmst er að minnast
umræðunnar á þingi um nýlegt
áfengisfrumvarp. Þar var gert lítið
úr faraldsfræðilegum niðurstöðum
rannsókna á sölu áfengis í matvöru-
verslunum. Við viljum koma vísind-
um á dagskrá því við notum vísindi í
lífinu, sama hvað okkur finnst.“
gun@frettabladid.is
Ganga fyrir vísindi
Gengið verður frá Skólavörðuholti klukkan 13 í dag, á Degi jarðar.
Eftir gönguna er efnt til fundar í Iðnó um stöðu vísinda í heiminum.
Kalina Karpalova vísindamaður við Líffræðideild HÍ, Anna Heiða Ólafsdóttir, í stjórn Samtaka kvenna í vísindum, Bryn-
dís Marteinsdóttir, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, Erna Magnúsdóttir, forseti Vísindafélags Íslendinga,
Sigrún Ólafsdóttir, félagsfræðingur og prófessor við HÍ, og Henning Úlfarsson, stærðfræðingur og lektor við HR.
FRéttABLAðið/GVA
Það er ekki nóg
að hlusta á
fræðafólk Þegar Það
hentar og tala Það svo
niður Þegar rannsókn-
ir Þess passa ekki eigin
skoðunum.
Ertu að
flytja til
Noregs, Danmerkur
eða Svíþjóðar?
27. apríl n.k. kl. 17:00 býður Norræna félagið,
í samstarfi við Halló Norðurlönd, og EURES
evrópsk vinnumiðlun upp á upplýsingafund
þar sem farið verður yfir hagnýt atriði
varðandi flutning, atvinnuleit og nám í
Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Fulltrúar frá
EURES, Halló Norðurlönd og Ríkisskattstjóra
verða með kynningu og sérfræðingur frá
Rannís kynnir upplýsingastofu um nám
erlendis og Europass.
Fundur er haldinn í húsnæði Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1,
103 Reykjavík í fundarsal á 1. hæð. Gestir eru hvattir til að mæta
stundvíslega.
Skráning á fund fer fram með því að senda tölvupóst
á netfangið: eures@vmst.is fyrir 26. apríl.
333 krá dag*
365.is Sími 1817
*9.990.- á mánuði.
2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r20 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
helgin
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
1
-E
9
0
8
1
C
B
1
-E
7
C
C
1
C
B
1
-E
6
9
0
1
C
B
1
-E
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K