Fréttablaðið - 22.04.2017, Qupperneq 80
Farþegarnir setjast um borð í lestarvagninn sem rennur rólega af stað. Leiðin liggur upp í mót með skrúfgangi upp í 200 metra hæð.
Ferðalagið tekur tuttugu mínútur,
en allir kæra sig kollótta um það
enda útsýnið stórkostlegt úr stál-
grindarturninum. Á toppi turnsins
er glæsilegur útsýnispallur, lýstur
upp með þúsundum rafljósa og efst
trónir stytta af hinum goðsagna-
kennda Atlas með Jörðina á herðum
sér. Farþegarnir mega þó ekki drolla
lengi á pallinum, því gert er ráð
fyrir að tólf þúsund gestir streymi
í gegnum turninn á hverri einustu
klukkustund.
Eitthvað á þessa leið hefði lýs-
ingin á Johnstone-turninum sem
til stóð að reisa í Chicago árið 1893
getað hljóðað. Tilefnið var heims-
sýningin í borginni sama ár og til-
lagan var aðeins ein af mörgum
hugmyndum um stóreflis turnbygg-
ingar á sýningarsvæðinu. Ástæðan
var augljós: á heimssýningunni í
París fjórum árum fyrr hafði Eiffel-
turninn stolið senunni. Stálvirkið
var hæsta mannvirki í heimi, gnæfði
300 metra upp í loftið og varð sam-
stundis það kennileiti sem flestir
tengdu heimssýninguna við.
Skiljanlega fannst skipuleggjend-
unum í Chicago að þeir þyrftu líka
að reisa turn, helst enn hærri eða í
það minnsta tæknilega fullkomn-
ari, til dæmis með lestarvögnum
fyrir gesti. Sá ljóður var þó á þeirri
ráðagerð að Parísarsýningin gat
gengið í digra sjóði franska ríkis-
ins, en vestanhafs átti einkafram-
takið að bera hitann og þungann af
kostnaðinum. Eiffel-turninn franski
fékk líka að standa eftir að sýning-
unni lauk, þótt ætlunin væri að rífa
hann með tímanum og skapaði því
tekjur á næstu árum. Borgaryfirvöld
í Chicago tóku hins vegar ekki í mál
að slíkar turnbyggingar fengju að
standa til frambúðar, svo ljóst var
að sala aðgöngumiða upp í turninn
á sýningartímanum yrði að standa
alfarið straum af byggingu hans.
Það dæmi gat aldrei gengið upp,
hversu mikið sem menn reiknuðu.
Johnstone-turninn varð því aldrei
annað en metnaðarfullar teikn-
ingar á blaði.
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um arkitekt og
Íslandsvin.
Stóra myndin
Til skamms tíma höfðu sárafáir
Íslendingar heyrt getið um arki-
tektinn Råvad og tengingu hans
við sögu íslenskrar byggingarlistar.
Úr því var þó bætt í nýlegum og
vinsælum sjónvarpsþáttum Péturs
Ármannssonar og Egils Helgason-
ar, Steinsteypuöldinni. Råvad var
fyrstur allra til að skrifa fræðilega
um skipulagsmál á Íslandi og setti
fram hugmyndir sem líklega höfðu
talsverð óbein áhrif.
Alfred Råvad fæddist hið örlaga-
ríka ár í Evrópusögunni 1848 og hét
þá einfaldlega Alfred Jensen. Að
loknu námi í byggingarlist áttaði
hann sig hins vegar skjótt á ókost-
um þess að heita svo hversdagslegu
nafni, en í Kaupmannahöfn einni
voru þrír aðrir arkitektar sem
kölluðust A. Jensen. Hann sótti því
um að fá að kenna sig við fæðingar-
staðinn Raadvad, sem breyttist í
Råvad með örlitlum lagfæringum.
Meðan á Bandaríkjadvölinni stóð
breyttist rithátturinn í Roewade, til
samræmis við enskan framburð og
það er nafnið sem afkomendurnir
notast við í dag.
Snemma varð ljóst að Råvad væri
miklum hæfileikum gæddur sem
arkitekt, en jafnframt komu fram
önnur skapgerðareinkenni hans
sem áttu eftir að móta starfsferil-
inn. Råvad var hálfgerður sveim-
hugi sem átti bágt með að festa
hugann lengi við smáatriði. Þótt
eftir hann lægju nokkrar ágætar
byggingar, var hann miklu áhuga-
samari um stóru myndina: skipulag
stærri svæða, bæjarhluta eða heilu
borganna. Hann var sérstaklega
áhugasamur um áhrif skipulags
og byggingarlistar á samfélagið og
voru hugmyndir hans á sviði skipu-
lagsmála um margt langt á undan
sinni samtíð.
Að mati Råvads var skortur á
góðu heildarskipulagi mesta mein-
semd Kaupmannahafnar og þegar
árið 1886 útbjó hann sinn fyrsta
skipulagsuppdrátt fyrir borgina.
Stjórnendur Kaupmannahafnar
höfðu á hinn bóginn lítinn skilning
á þörfinni og margir áratugir áttu
eftir að líða uns fyrsta heildarskipu-
lagið var samþykkt fyrir höfuðborg
Danmerkur.
Áhugaleysi Dana á skipulags-
málum átti vafalítið stóran þátt í
að Råvad ákvað árið 1890 að flytja
með fjölskylduna vestur um haf,
rúmlega fertugur að aldri. Heims-
sýningin sem verið var að undir-
búa í Chicago átti þó vafalaust
einnig stóran hlut að máli. Hvergi
á byggðu bóli var jafn mikil og
stórhuga uppbygging og í Chicago.
Tækifærin fyrir snjalla arkitekta og
verkfræðinga voru þar á hverju strái
og nýjasta tækni var allsráðandi við
alla hönnun og framkvæmdir.
Af öllum þeim afburðamönnum
sem að uppbyggingunni komu í
borginni var enginn frægari en
Daniel Burnham. Honum er eign-
aður heiðurinn af aðalskipulagi
Chicago-borgar og skipulagi heims-
sýningarinnar, auk þess sem eftir
hann stendur fjöldi skýjakljúfa og
annarra stórhýsa í Chicago og fleiri
bandarískum stórborgum. Enginn
nemandi í skipulagsfræðum og
sögu nútímabyggingarlistar kemst
hjá því að læra um Daniel Burn-
ham.
Eins og gefur að skilja hafði jafn
afkastamikill arkitekt og Burnham
fjölda aðstoðarmanna sér við hlið.
Sjálfur var hann löngum stundum
frekar í hlutverki stjórnmála-
manns, sem hafði það aðalhlut-
verk að sannfæra yfirvöld og fjár-
festa um ágæti tillagna sinna, þótt
meira sé á huldu um það hverjir
í aðstoðarliðinu fengu einstakar
hugmyndir og sáu um útfærslu
þeirra.
Alfred Råvad, eða Roewade
eins og hann nefndist á Ameríku-
árunum, var um alllangt skeið sam-
verkamaður Burnhams og vilja
ýmsir söguáhugamenn (einkum
danskir) eigna honum stóra hluti
í hinu fræga borgarskipulagi
Chicago. Telja þessir sömu aðilar
mikið óréttlæti að heilu bækurnar
séu ritaðar um Burnham á meðan
færslan um Råvad á ensku Wiki-
pediunni telur 2-3 línur.
En sagan spyr ekki um sanngirni
og tilgangslaust er að sýta það
að bandarískar sögubækur geri
mikið úr afrekum áberandi og lit-
ríks heimamanns, en gleymi hæv-
erskum aðkomumanni sem fluttist
aftur úr landi fáeinum árum síðar.
Frá risaturnum
til torfbæja
Turninn sem aldrei varð átti að
heita eftir milljónamæringnum
sem hugðist fjármagna ævintýrið
og verða heimsfrægur í leiðinni. Og
ekki hefði frægð bandaríska verk-
fræðingsins sem hannaði tækni-
undrið orðið minni, né danska
arkitektsins sem réð útlitinu. Sá
hét Alfred Råvad og átti sér merki-
lega sögu.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust
út ákvað Alfred Råvad nefnilega að
fósturjörðin þarfnaðist hans og hélt
aftur til Evrópu.
Bróðir athafnamannsins
Á leiðinni heim ákvað Råvad að
heimsækja bróður sinn í Reykjavík,
kaupmanninn og útgerðarmann-
inn Thor Jensen. Vegna stríðsins
varð hann innlyksa á Íslandi í heil-
an vetur árið 1915, gafst honum því
rúmur tími til að kynna sér landið
og sögu þess, en Råvad hafði alla
tíð brennandi áhuga á norrænum
fræðum.
Þegar til Danmerkur var komið
setti Råvad saman stutta ritgerð
um byggingarlist Íslendinga sem
Dansk-íslenska félagið gaf út á
báðum tungumálum.
Þótt ritgerðin sé fáar síður er
hún stórmerkileg. Höfundurinn
gerir sér grein fyrir því að íslensk
húsagerð standi á krossgötum.
Íslendingar muni á næstu árum og
áratugum reisa fjölda stórhýsa, en
hafi ekki miklar fyrirmyndir. Sér-
kenni byggingasögu landsmanna
séu gömlu torfbæirnir og torfkirkj-
urnar, sem augljóslega geti ekki
svarað kalli tímans og þá sé hætt
við að útkoman verði smágerðar
eftirlíkingar af evrópskum kirkjum
og bárujárnsklædd timburhús
með pappaklæðningum að innan,
án nokkurra tengsla við íslenskar
hefðir.
Svar Råvads var að leggja til að
form torfbæjanna og -kirknanna
yrði varðveitt þótt byggingarefnin
væru látin víkja. Þykkir veggir og
háir og hvassir húsgaflar myndu
skapa sterkt séríslenskt yfirbragð
húsa og halda þannig tryggð við
ræturnar. Til að útskýra hugmynd
sína betur lét arkitektinn fylgja
grunnteikningar að sveitakirkju
og íbúðarhúsi.
Ekki þarf að rýna lengi í teikn-
ingarnar til að sjá skyldleikann
við ýmis verka Guðjóns Samúels-
sonar, sem hefð er fyrir að eigna
hugmyndina að því að endurvekja
burstabæjarformið í íslenskum
arkitektúr. Á þessi tengsl var rétti-
lega bent í þáttunum um Stein-
steypuöldina.
Til að sinna stærri opinberum
verkefnum á Íslandi, taldi Råvad
þörf á fjórum menntuðum arki-
tektum í landinu, til að tryggja að
unnt væri að halda samkeppnir
um verkefni og koma í veg fyrir að
sami maður sæti að öllum húsun-
um. Helsta áskorun þessara manna
yrði að þróa séríslenskan bygg-
ingarstíl, en tilgangslaust væri að
horfa þar til eldri stórhýsa á borð
við Alþingishúsið og Landsbóka-
safnið, til þess væri stíll þeirra of
evrópskur.
Ekki gat Råvad stillt sig um að
ráða Reykvíkingum heilt í skipu-
lagsmálum. Taldi hann einsýnt
að framtíðarvöxtur bæjarins ætti
að vera til suðurs í átt til Hafnar-
fjarðar, sem að lokum myndi
renna saman í eina samfellda
byggð, en ekki til austurs. Öflugar
sporvagnasamgöngur myndu svo
tengja höfuðborgarsvæðið saman
frá suðri til norðurs. Þótt gerð
Reykjavíkurhafnar væri byrjuð,
taldi hann ekki of seint að hætta
við og endurvekja hugmyndir um
hafnargerð í Skerjafirði. Öskjuhlíð
og svæðið í grennd við hana yrði
svo tilvalið fyrir stórbyggingar á
borð við háskólabyggingu, nýja
sóknarkirkju Reykvíkinga, ýmis
konar söfn og skrúðgarða.
Frá sjónarhorni skipulagsfræð-
innar voru tillögurnar vafalítið
bráðsnjallar, en fátt bendir til að
ráðamenn hafi tekið þær alvarlega.
Langþráð hafnargerðin var farin af
stað og enginn áhugi á að slá henni
á frest. Sum svæðanna sem Råvad
sá fyrir sér sem uppbyggingarreiti
tilheyrðu ekki einu sinni Reykja-
víkurbæ og uppbygging bæjar-
landsins mótaðist fremur af því
hvaða lendur væru í eigu bæjar-
sjóðs en að djúp hugmyndafræði
lægi að baki. En hver veit nema
gesturinn danski fái uppreisn æru
á næstu árum ef hugmyndir um
borgarlínu verða að veruleika?
Öflugar SPorvagna-
SamgÖngur myndu Svo
tengja hÖfuðborgar-
Svæðið Saman frá Suðri
til norðurS.
ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN
SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR!
ÞAÐ ER RAUNVERULEGA HÆGT AÐ
FJARLÆGJA REYKINGAHRUKKURNAR
Fyrir Eftir
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
Snyrtistofan Hafblik
2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r36 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
B
2
-1
0
8
8
1
C
B
2
-0
F
4
C
1
C
B
2
-0
E
1
0
1
C
B
2
-0
C
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K