Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.04.2017, Qupperneq 100

Fréttablaðið - 22.04.2017, Qupperneq 100
Upplýsingar vegna kosningar vígslubiskups í Skálholti Vakin er athygli á því að samkvæmt nýjum starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa, nr. 333/2017 mun nú í fyrsta sinn fara fram forval (tilnefning) áður en kosning vígslubiskups fer fram. Rétt til tilnefningar hafa eingöngu þeir vígðu menn sem kosningarréttar njóta, skv. 4. gr., sbr. 3. gr. fyrrnefndra starfsreglna. Heimilt er að tilnefna allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla kjörgengisskilyrði skv. 1. gr. starfsreglnanna. Tilnefningin mun verða rafræn og standa frá kl. 12:00 þann 23. ágúst 2017 og ljúka kl. 12:00 þann 28. ágúst 2017. Í 1. mgr. 13. gr. starfsreglna nr. 333/2017 segir: Þeir þrír einstaklingar sem flestar tilnefningar fá, að teknu tilliti til 3. mgr., eru í kjöri til biskups Íslands eða vígslubiskups. Ef tveir eða fleiri fá sama fjölda tilnefninga skulu þeir báðir eða allir vera í kjöri. Séu tilnefndir færri einstaklingar en þrír eru þeir allir í kjöri að teknu tilliti til 3. mgr. Ákveðið hefur verið að kosning til vígslubiskups í Skálholti fari fram dagana 28. september til og með 9. október 2017, en um er að ræða póstkosningu. Um kosningarrétt við kjör vígslubiskups er fjallað í 4., sbr. 3. gr. starfsreglna nr. 333/2017 og eru ákvæðin svohljóðandi: 3. gr. Kosningarréttur við kjör biskups Íslands. A. Kosningarréttur vígðra: Biskup Íslands og vígslubiskupar eiga kosningarrétt við biskupskjör. Auk þeirra á kosningarrétt hver sá sem vígslu hefur hlotið og er: a) þjónandi prestur eða djákni íslensku þjóðkirkjunnar eða hjá íslenskum söfnuði þjóðkirkjunnar erlendis og er í föstu og launuðu starfi sem slíkur, eða b) þjónandi prestur eða djákni sem lýtur tilsjón biskups Íslands og er í föstu og launuðu starfi á vegum stofnunar og/eða félagasamtaka hér á landi. Prestur eða djákni í tímabundnu leyfi, allt að tveimur árum, nýtur kosningarréttar. Prestur sem settur er til þjónustu tímabundið nýtur ekki kosningarréttar nema í þeim tilfellum þar sem ekki er skipaður prestur fyrir. Prestur, sem sinnir aukaþjónustu, nýtur ekki kosningarréttar fyrir það embætti sem hann sinnir aukaþjónustu í. Djákni skal vera ráðinn til a.m.k. eins árs eða ótímabundið til að njóta kosningarréttar. Prestur eða djákni sem látið hefur af þjónustu nýtur ekki kosningarréttar. Kosningarrétt eiga vígðir kennarar í föstu starfi við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands og vígðir starfsmenn á biskupsstofu sem eru í föstu starfi. B. Kosningarréttur leikmanna: a) kjörmenn prestakalla, sbr. 7. gr. starfsreglna um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016, með síðari breytingum, b) þeir leikmenn sem sæti eiga í kirkjuráði og á kirkjuþingi. 4. gr. Kosningarréttur við kjör vígslubiskupa. Kosningarrétt við vígslubiskupskjör eiga þeir sömu og réttinn eiga skv. 3. gr. og tilheyra prófastsdæmi sem er í því umdæmi vígslubiskups sem kosið er í. Þjónandi prestur eða djákni hjá íslenskum söfnuði þjóðkirkjunnar erlendis, sbr. a) lið 1. mgr. 3. gr., nýtur kosningarréttar í umdæmi vígslubiskups í Skálholti. Þjónandi prestur eða djákni, sbr. b) lið 1. mgr. 3. gr., nýtur kosningarréttar í því umdæmi vígslubiskups sem viðkomandi starfar. Kosningarrétt eiga kirkjuþingsmenn, kirkjuráðsmenn, vígðir kennarar í föstu starfi við guðfræði- og trúarbragðafræði- deild Háskóla Íslands og vígðir starfsmenn á biskupsstofu sem eru í föstu starfi. Kjörskrá vegna kosningar vígslubiskups í Skálholti verður lögð fram 9. ágúst 2017, kl. 12:00 og skulu skilyrði kosningarréttar þá hafa verið uppfyllt frá 2. ágúst 2017. Almennar upplýsingar um fyrirkomulag og framkvæmd tilnefninga og kosninga er í starfsreglum nr. 333/2017, sem unnt er að nálgast á eftirfarandi vefslóð: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=a8b0f2cd-30d4-489c-acf2-2888200169d8 Fyrirkomulag tilnefningarinnar og kosningarinnar mun verða auglýst nánar þegar nær dregur. Reykjavík, 21. apríl 2017 f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar Hjördís Stefánsdóttir, formaður Af því að hún er sterk og flott kona og fyrir-mynd, hver önnur er drottning fönk-, diskó- og soul-tón-listar? Hún er ein- faldlega dívan,“ segir söngkonan Þórunn Antonía spurð út í af hverju hún heillist svona af Chaka Khan. „Það er ekki auðvelt að velja eitt uppáhaldslag vegna þess að það er sama hvað Chaka Khan syngur, það er bara geggjað. Það sem heillar mig mest við hana er krafturinn og gleðin … þessi rödd getur fært fjöll úr stað! Ef ég á að velja lag í dag þá er það I Feel for You,“ segir Bryndís Ásmundsdóttir, söng- og leikkona. „Ég byrjaði að hlusta á fönk á þessum tíma sem Rufus ft. Chaka Khan Street Life kemur út. Ég féll algjörlega fyrir henni og platan fór ekki af fóninum. Hún var svo „stand up“ og sexí að maður bar ómælda virðingu fyrir henni,“ segir söngvar- inn Helgi Björnsson sem mun hita upp fyrir dívuna með sveit sinni SSSól. Þau geta ekki beðið eftir komu Chaka Khan til landsins Dívan og fönkdrottningin Chaka Khan mun opna Secret Solstice-tónlistarhátíðina í sumar. Nú bíða margir spenntir eftir að sjá hana í allri sinni dýrð enda er hún þekkt fyrir að halda uppi stuðinu á einstakan hátt. Save the Children á Íslandi Þórunn Antonía lítur upp til Chaka Khan. Bryndís Ásmundsdótt- ir segir tónlist Chaka Khan geta fært fjöll. Helgi Björnsson hefur verið aðdá- andi dívunnar Chaka Khan lengi. Ég fÉll algjörlega fyrir henni og platan fór eKKi af fóninum. hún var svo „stand up“ og sexí að maður bar ómælda virðingu fyrir henni. Það sem heillar mig mest við hana er Kraftur- inn og gleðin … Þessi rödd getur fært fjöll úr stað! af Því að hún er sterK og flott Kona og fyrirmynd, hver önnur er drottning funK-, disKó- og soul-tónlistar? hún er ein- faldlega dívan. 2 2 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r56 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð Lífið 2 2 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 5 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C B 1 -E D F 8 1 C B 1 -E C B C 1 C B 1 -E B 8 0 1 C B 1 -E A 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.