Fréttablaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 33
átt svolítið athvarf þar og ég flutti
þangað af því að mamma fór út í nám.
Það var fínt að búa hjá þeim, en eins
og gengur um ungt fólk á þessum aldri
þá vildi ég auðvitað meira frelsi.
Svo tók ég bílpróf. Ég hafði trú á mér
í það að ég gæti gert það. Það gekk
mjög vel. Ég tók bara allan þann tíma
sem ég þurfti. Ég fékk fyrst úthlutað
íbúð í Skipholti og þar bjó ég í fjögur
ár. Síðan fékk ég íbúðina sem ég bý í
dag í Árbænum. Mér finnst voða fínt
að búa einn og bjóða vinum í mat
þegar hentar. Mér finnst gaman að
elda. Skemmtilegast finnst mér að
grilla fyrir félagana. Ég geri það allt
árið þótt mér finnist skemmtilegt að
sólin sé farin að skína,“ segir Áki sem
segist heppinn. Staða margra félaga
hans í Átaki sé hörmuleg þegar kemur
að húsnæðismálum.
Stjórnvöld girði sig í brók
„Húsnæðismálin eru í skelfilegu
ástandi. Það er talið að það séu á milli
400-500 manns á biðlista hjá Reykja-
víkurborg. Þar erum við bæði að tala
um fatlaða og ófatlaða. Stjórnvöld
verða að fara að girða sig í brók. Það
er ekki í lagi að fötluðu fólki sé boðið
að búa með fólki sem það þekkir ekki.
Eða það sé flutt á milli staða eftir því
hvernig efnahagurinn er í samfélaginu.
Ófötluð manneskja myndi ekki láta
sér lynda þetta. Fatlað fólk á rétt á því
að búa þar sem það vill með þeim sem
það vill búa með,“ segir Áki og nefnir
nokkur dæmi.
„Ég þekki sjálfur nokkra sem búa
heima hjá foreldrum sínum. Og
nokkra sem hafa gert það alla sína
ævi. Þá fær ein félagskona í Átaki
ekki að ráða því hvernig og hvar hún
býr og stendur í baráttu. Fólk er oft
skikkað til að gera hitt og þetta til að
þjóna samfélaginu. Það á auðvitað
ekki að bjóða fötluðu fólki að búa á
einhverjum hópheimilum af því það
hentar öðrum eða er hagkvæmt. Fólk
á bara að fá að ráða því sjálft.“
Brestir á vinnumarkaði
Atvinnumálum fatlaðra segir Áki
ekki síður brýnt að greiða úr.„Það
er skelfilegt hvað verndaðir vinnu-
staðir eru að borga lág laun. Það er
eitthvað sem þarf að skoða. Það er
líka alvarlegt að fatlaðir á sumum
vinnustöðum virðast ekki vera að fá
greidd laun heldur er skammtaður
einhver vasapeningur eftir hentisemi
eða geðþótta. Þetta viðgengst þrátt
fyrir að fjallað hafi verið ítarlega um
málin í fjölmiðlum,“ bendir Áki á og
segir hluta vandans mega rekja til lítils
eftirlits með þjónustu til fatlaðra. „Það
myndi hjálpa að hafa þjónustuna í
bæjarfélögunum en ekki langt í burtu.
Í fjarlægð frá mannlífi.“
Brotin skólaganga fatlaðra
Nú um þessar mundir hvíla mennta-
málin þungt á meðlimum í Átaki.
Nýverið var skorið niður í myndlist-
arnámi til fatlaðra. „Það er ömurlegt
hvað við þurfum stöðugt að berjast
fyrir jafnrétti til náms. Við höfum
ekki gott aðgengi að námi. Skólaganga
okkar er í flestum tilfellum brotin.
Þetta á bara að vera í lagi. Við eigum
rétt á að mennta okkur, finna okkar
styrkleika og fylgja áhugamálum
okkar. Ég myndi vilja læra eitthvað í
háskólanum. Ég hef hins vegar ekki
haft tækifæri til að klára stúdents-
prófið. Ég myndi vilja fá aðstoð við
það, klára prófið með utanumhaldi.
Fá að vera í námi á mínum tíma með
réttri aðstoð. Það vantar algjörlega
úrræði og þannig hefur það verið í
tugi ára,“ segir Áki.
„Það er líka ekki nóg að lofa enda-
laust upp í ermina á sér. Við viljum
efndir og úrræði. Okkar líf snýst alltaf
um að bíða og vona. Vona að árferðið
verði gott svo að það sé hægt að virkja
eitthvað úrræði handa okkur.
Mér finnst ófatlaðir stundum finn-
ast það allt í lagi að líf okkar fatlaðra
sé einhver tilraun. Við erum alltaf í
endalausu tilraunaverkefni, maður
bara spyr sig er líf okkar tilraun?“
Vill skoða Tryggingastofnun
Hann skorar einnig á mikilvægar
stofnanir, svo sem Tryggingastofnun,
að leita til Átaks. Bæði til fræðslu og
til þess félagsmenn Átaks geti bent
þeim á hvernig þjónustan geti verið
betri. „Mig langar til að skoða Trygg-
ingastofnun og hvernig má bæta
það kerfi. Ég myndi vilja að það væri
leitað til okkar um ýmis málefni er
okkur varða. Við þurfum að standa
saman,“ leggur Áki áherslu á. Hann
segir marga félagsmenn í Átaki lenda í
vandræðum við að þiggja þjónustu frá
Tryggingastofnun og vilji bæta úr því.
Lífssögur mikilvægar
Áki er sannfærður um að það styrki
baráttu fatlaðra að ófatlaðir hlusti á
lífssögur þeirra. Þemað í stoltgöng-
unni í ár eru lífssögur fatlaðs fólks. „Ég
mun segja fyrstur frá og hlakka bara
til. Vil bara hvetja aðra til að vera með
og þá sem vilja styrkja okkur að hafa
samband. Þetta er mitt hjartans mál.
Öll eigum við okkar lífssögu, fatlaðir
og ófatlaðir. Þetta er mín.“
Áki segist standa í þakkarskuld
við fjölskyldu sína. Hann reiðir sig
oft á systur sína, Helgu Arnardóttur,
dagskrárgerðarkonu sem starfar í
Kastljósi. „Hún á stóran þátt í því að
hvetja mig Áfram í lífinu. Mamma
líka, þær báðar hafa gefið mér góð
ráð í gegnum árin. Ég hlusta á ráð frá
þeim og líka vinum, félögum og félags-
mönnum í Átaki því ég ætla að leggja
allt í sölurnar til þess að efla starfið í
Átaki,“ segir Áki sem segir félagið vera
með vandaða og góða dagskrá sem
fleiri ættu að sækja. „Við ætlum líka
að halda í sjálfstæði félagsins og vera
stolt og sýnileg. Látum ekkert brjóta
okkur niður!“Áka finnst gaman að grilla og bjóða vinum í heimsókn. FréTTaBLaðið/Eyþór
Yfirlit yfir starfsemi
Orkurannsóknasjóðs 2007 – 2017
Sveinbjörn Björnsson, formaður
stjórnar Orkurannsóknasjóðs.
→
→
→ Pallborðsumræður um hlutverk sjóðsins.
Kynning nokkurra rannsóknaverkefna sem sjóðurinn hefur styrkt:
—
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar
var stofnaður árið 2007 og hefur
því starfað í 10 ár. Árlega veitir
sjóðurinn styrki til framhaldsnáms
og rannsókna á sviði umhverfis-
og orkumála.
STUÐNINGUR Í 10 ÁR
Opinn fundur í Veröld, Húsi Vigdísar
24. maí kl. 14 – 16.
Vistkerfisbreytingar á
hálendi norðan Langjökuls
síðustu árþúsund.
Vetrarís á Þingvallavatni.
Gönguhegðun urriða í
Efra-Sogi og Úlfljótsvatni.
Umhverfisrannsóknir
í Lagarfljóti.
Guðrún Marteinsdóttir.
Yan Lavallée
Sigurður Markússon
flytur.
Jóhann Örlygsson.
Tómas Jóhannesson.
Guðrún Gísladóttir.
Einar Sveinbjörnsson.
Jóhannes Sturlaugsson.
Hrund Ó. Andradóttir.
Vistfræðileg tengsl ferskvatns-
rennslis til sjávar og hrygningar
og klaks þorsks.
Mechanical and permeability con-
straints for improved geothermal
reservoir exploitation at Krafla,
Iceland.
Next Generation Biofuels
from Protein-rich Biomass.
Mælingar á yfirborði og yfirborðs-
breytingum íslenskra jökla með
leysimælingum.
1
2
3
4
5
6
7
8
Dagskrá
Skráning á landsvirkjun.is→
8
5 7
4
3
1
2
6
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 33l A U g A R D A g U R 2 0 . m A í 2 0 1 7
2
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
5
-9
9
8
8
1
C
E
5
-9
8
4
C
1
C
E
5
-9
7
1
0
1
C
E
5
-9
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K