Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Blaðsíða 15
UM HJÓNAVÍGSLU AF UPPGJAFAPHESTI.
7
fá vitneskju um, livernig á því hafi staðið, að uppgjafapresturinn 1870-
hafi getað komizt inn í kirkjuna án leyfis og vitundar sóknar- ie. febníar.
prestsins, til þess að framkvæma þar prestsverk, og leitaði jafn-
framt álits yðar, háæruverðugi herra, um það, á hverju sú mein-
ing yðar væri byggð, að uppgjafaprestum á lslandi yfirhöfuð væri
heimilt að fremja öll prestsverk, og þá einkum, hvort íslenzk lög
væri til þess. þér hafið því næst sent hingað eptirrit af skýrslu
frá svaramönnunum og skýrslu frá eigendum Eyrar kirkju, sem
sýnir, að þeir liafa látið uppgjafaprest Hjalta þorláksson eptir
beiðni hans komast í Mrkjuna, í trausti þess, að hann liefði leyíi
sóknarprestsins til að gefa saman fyi-nefnd hjón, og jafnframt
þessu hafið þér í bréfi yðar 18. oktbrm. f. á., livað hið fyrra atriði
snertir, látið í ljósi, að þareð sú kirkja, sem hjónavígslan fór
fram í, væri bænda kirkja, hafi eigendurnir liaft vald til þess að
opna kirkjuna og leyfa uppgjafaprestinum inngöngu án leyfis og
vitundar sóknarprestsins, og hvað hið síðara atriði snertir: að
enginn efi, að svo miklu leyti sem menn viti til, liafi leikið á því,
að það væri rétt, að öll þau prestsverk, sem uppgjafaprestur .
fremdi, væri gild; að það sé mörg dæmi til á íslandi, að upp-
gjafaprestar í forföllum sóknarprestsins hafi framið prestsverk, án
þess að nokkur hafi efað, að þau hefði fullt gildi að lögum, og
enn fremur, a ð það sé samkvæmt eðli málsins, að sá prestur, sem
segir af sér embætti, eigi þar fyrir missi réttindi prestsstéttarinnar,
svo framarlega sem liann eigi gjðrir sig óverðugan til þess að
halda þeim.
Um leiö og þess er getið, að málið, að því er snertir svara-
mennina, er sent dómsmálastjórninni, skal yður það til vitundar
gefiö, að stjórnarráðið, samkvæmt tillögum yðar í bréfi 5. júnim. þ.
á., leyíir, eptir því sem komiö er, að eigi verði höfðað mál gegn
uppgjafapresti Hjalta þorlákssyni fyrir þetta tiltælri hans, með því
skilyrði, að honum verði bannað að bera messuklæði og framkvæma
prestsverk, og eru það þar að auki tilmæli stjórnarráðsins, að þér,
háæruverðugi herra, ávítið sóknarprestinu, Eyjólf Jónsson, fyrir
varúðarleysi hans í þessu efni. Jafnframt og stjórnarráðið getur
þess, eptir tilefni í síðasta bréfi yðar, að það er eigi komið til
umtals, lnort hjónabandiö sjálft, sem hér er framkvæmt, sé gilt