Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 195
OM HÚSAKAUP A KLAUSTURJÖRÐ.
187
hefir ekki sjálfur efni til að kaupa jiau, og hefir umboðsmaðurinn
mælt fram með þessu. Um þetta efni lieíir amtið getið þess,
að það mundi ábatasamast fyrir hið opinbera, að taka húsin, sem
eru nauðsynleg fyrir jörðina, og samkvæmt skoðunargjörð, sem
fram hefir farið, eru metin uppá 150 rd., af þeirri ástæðu
að hús þessi, sem hinn fyrri leiguiiði hefir byggt, þá er þessi
jörð var skilin frá jörðunni Klausturseli, að öðrum kosti mundu
rifin, og jörðin ylirgeíin, og þá mundi litlar líkur til, að jörðin
yrði byggð nokkrum, og væri hætt við, að hið opinbera hefði í
mörgum greinum skaða af þessu. Jafnframt og þess er getið,
að afgjaldið af jörðunni, er hun var byggð út í fyrsta skipti, var
30 álnir á ári, en að amtmaður Havstein gagnstætt tillögum
lilutaðeiganda umboðsmanns hækkaði afgjaldið til 50 álna, þegar
jörðin var byggð þeim leiguliða, sem nú situr á henni, hefir
amtið stungið upp á, að verja megi 150 rd. úr umboðssjóðnum
til þess að kaupa húsin, og að enn fremur verði lagt til jarðar-
innar Va kúgildi eða 3 ær, sem mundi kosta 20 rd., en þá
mundi afgjaldið af jörðunni geta orðið 50 áln., og leigan 10 áln.,
eða í peningum 15 rd. á ári, þegar hver meðalalin er talin 24 sk.
Utaf þessu gefst yður, herra amtmaður, til vitundar, að
stjórnarráðið fellst á uppástungu yðar, þannig, að ábúandinn
taki við húsunum, haldi þeim við og skili þeim aptur í fullu standi,
og skal hann gjalda í landskuld 50 áln., og í leigu 10 áln.
44. Bréf dómsmálastjórnarinnar til amtniannsins yfir
norður- og austurumdæminu, um skuldir umboðs-
manns Sveins Þórarinssonar.1
Með bréfi 28. febr. þ. á. hefir amtið sent hingað aðalreikn-
ing yflr þrotabú umboðsmanns Sveins lieitins Jórarinssonar, og
sést af honum, að skuldakröfur hins opinbera í búinu verða borgaðar
‘) Tibíndi um stjórnarmálefni Islands, III., 7(3.
Tíb. um stjórnarmál. III. 13
1871.
15. júní.
16. júni.