Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Blaðsíða 597
OM HEIMTINGO BRENNIVÍNSGJALDS.
589
vallarreglum tilskipunarinnar eigi verður skoðað sem flutt í land.
Aptur á móti er samkvæmt því, sem fyrir er sagt að framan,
engin heimild fyrir að greidt verði aptur það gjald, sem búið er
að borga, sökum einhverra misferla, sem v'art verður við þegar
verið er að afferma skipið. Aö eins þegar mjög sérstaklega
stendur á, t. a. m. ef skip brotnar eða verður fyrir miklu slysi,
og það vill til eptir að skipaskjölin voru sýud lögreglustjóra,
getur það komið til tals, að gjald það, sem búið er að borga,
verði goldið aptur annaðhvort allt eða að nokkru leyti, en þá
verður í hvert skipti að senda sérstaka bænarskrá um það meö
nægum skilríkjum til dómsmálastjórnarinnar.
Um 5. í 2. gr. tilskipunarinnar er sérhverjum skipstjórn-
armanni lagt fyrir að gefa skriflegt vottorð uppá sína æru og
trú um það, að ekki sé í skipinu aðrar eða fleiri af hinum nefndu
vörum, sem gjalda þarf af, en þær, sem eru ritaðar á vöruskrána
eða hina dönsku tollskrá, en það þókti nauðsynlegt að skipa svo
fyrir, til þess að bæta nokkuð úr því, sem eptirlitinu er ábóta
vant í nokkru. Með þessu virðist skipstjórnarmanni eigi vera
neinn vandi búinn fram yfir það, sem af honum verður heimtað
með sanngirni, og eins og þeir kaupmenn liafa drepið á í bænar-
skránni, getur hann firrt sig öllum vítum af þessu með því, að
láta þann, sem hefir leigt skipið undir varninginn, fá sér í hendur
skuldbindingar-skýrteini það, sem nægir í þessu tilliti. Sá, sem
hefir skip til leigu, eða skipstjórnarmaður, geta neitað að taka
við þeim vörubögglum, sem eigi eru ritaðir á vöruskrána, nema
sá, sem sendi, láti til allar þær skýrslur, sem með þarf, um
hvað í þeim sé, og sömuleiðis má heimta skýrslur þær, sem getið
er um í 2. gr. 3. lið, af þeim, sem við vörunum tekur, þegar
skipstjórnarmaður lýsir því yfir, að hann þori eigi að ábyrgjast
innihald vörubögglanna.
Um 6. Um þetta atriði skal vísað til úrskurðar dómsmála-
stjórnarinnar, 7. nóvbr. f. á., sem er prentaður í stjórnartíðindun-
um dönsku (Ministerialtidenden) fyrir 1872, A., nr. 67.,
bls. 264.1
1873.
15. marz.
') Tibindi um stjórnarmálefni íslands, III., 533,