Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Blaðsíða 360
352
UM BÆJAIiSTJÓliN í BEYKJAVÍK.
1872.
20. apríl.
19. Jingið áleit að eigi væri ástæða til, að bæjavstjórnin
skyldi kjósa sér sérstaklega oddvita, þá er Inín skyldi leggja
úrsknrð á ársreikning kaupstaðarins, heldur gæti bæjarfógeti eins
verið oddviti bæjarstjórnarinnar þá, eins og endrarnær, og stakk
því uppá, að fella úr 29. grein orðin: ((sem sérstaklega til þessa
er kjörinn”.
20. í sömu grein vildi þingið að ákveðið yrði, hversu lengi
mætti fresta prentun á reikningi kaupstaðarins, þá er hann væri
úrskurðaður, því annars mætti draga hana úr hó'íi, og lagði
þingið því til, að bætt yrði við aptan við greinina orðunum: l(innan
tveggja mánaða”.
21. þinginu fannst frumvarp þetta vera svo mikil réttarbót,
að það taldi æskilegast, að tilskipun þessi næði sem allra fyrst
fullu gildi, enda væri ekki Ijóst, hversvegna hún ætti að verða
að lögum fyrst 1. aprílm. 1872. þingið stakk því uppá, að sett
yrði í 32. grein í staðinn fyrir (tl. aprílm.”: jtl. dag janúarm.”,
er þvi virtist eðlilegast, að gildi tilskipunarinnar byrjaði með
áriuu.
Konungsfulltrúi gat þess í álitsskjali sínu um breytingu þá
við 3. grein, sem nefud er í 1. atriði, að þingið hefði ekki gáð að,
að bæjarstjórnin að eins hefði rétt til, en væri ekki skyld til, að
fola öðrum bæjarbúum, sem eigi hefði sæti í nefndinni, að fram-
kvæma sérstök bæjarstörf, en með því honum fyndist, að það kæmi
uppá sama, livort væri, þótti honum ekki vera ástæða til að mæla
ámóti þessari breytingu á frumvarpinu. Iíonungsfulltrúi mælti
jafnframt með breytingum þeim, sem nefndar eru í 2. (við 5 gr.),
3. (við 5. gr.), 4. (við 8. gr.), 5- (við 8. gr.), 7. (við 14. gr.),
8. (við 15. gr.), 10. (við 18. gr.), 11. (við 20. gr.), 13- (við 22.
gi\), 14. (við 23. gr.), 19. (við 29. gr.), 20. (við 29. gr.)
og 21. atriði (við 32. gr.); um liina síðast nefndu gat hann þess, að
reikningsár kaupstaðarins næði frá nýjári til nýjárs, og þó svo
yrði ákveðið, að tilskipunin skyldi öðlast fyr gildi, en til ætlað
hefði verið í upphafi, mundi samt verða nægur tími til undir-
búnings. Aptur á móti réði konungsfulltrúi frá því, að þær breyt-
ingar, sem nefndar eru í 6. (við 13. gr.), 9. (við 17. gr.), 15. (við
23. gr.) og 16. atriði (við 24. gi\), yröi teknar til greina; Um breyt-