Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Síða 29
UM LESTAGJALD.
21
21. Bref dómsmálastjórnarinnár til amtmannsins yfir
norður- og austur-umdæmiuu, um lestagjald af
skipnm hins danska fiskifélags-
lítaf spurningu, sem upp liefir verið borin íyrir stjórnar-
ráðið nm það, livort greiða skuli lestagjald af skipum hins danska
fiskifélags: Thomcis Iioys, „Skallagrími” og „Garðari”, samkvæmt
lögum 15. apríl 1854 gr. 4., þarsem þau tvö skipin, sem fyrst
eru nefnd, árið 1867 sigldu frá Austfjörðum, hlaðin því, sem
fengizt hafði af livölum, og „Garðar” hlaðinn saltfiski, sem Seyðis-
firöingar höfðu aflað að nokkrum hluta og flutt nýjan út á skipin,
jafnframt og nokkrir hestar voru fluttir á Thomas Roys, lét
stjórnarráðið þaö í Ijósi í bréfl 24. desembr. 1868, að því leyti
sem það mál snertir, hvort téð verzlunarlög yflrhöfuð að tala
snerti hið danska flskifélag og að hverju leyti: að ekki bæri að
heimta lestagjald af sldpum fiskifélagsins, ef þau aðeins sé höfð
til afla, til flutnings á veiðarfærum og afianum sjálfum, og var
skorað á yður, að segja sýslumönnum til um þetta; það var og
jafnframt lagt fyrir yður, herra amtmaður, að heimta skýrslur um
þessi tilgreindu þrjú atriði frá sýslumönnum útaf því, sem stjórnari
félagsins, .Záþtainlieutenant” Hammer, liefir borið fyrir sig í
þessu efni féláginu til afsökunar.
Eptir að stjórnarráðið með bréfi yðar, herra amtmaður, dag-
settu 4. septbrm. f. á., liefir fengið skýrslur þessar, sem ranglega
byggja á því, að bréf stjórnarráðsins 24. desembr. 1868 sé ekki
endilegur úrskurður á liinni almennu spurningu í þessu máli,
sem getið er um að framan, og leiða fram þær mótbárur, er
mætti koma fram með gegn þeirri þýðingu laganna 15. apríl
1854, sem stjórnarráðið hefir framfjdgt, gefst yður hérmeð til
vitundar, yður til leiðbeiningar og svo þér kunngjörið það, að
eius og’ eklci verður heimtað lestagjald af skipunum „Skallagrími”
og Thomas Roys fyrir það, að á þeim hafi verið fluttur hvalafli,
eða af skipinu uGarðari” fyrir flutning á saltfiski, samkvæmt grund-
vallarreglunni í hinu nefnda bréfl stjórnarráðsins,' þannig mun
stjórnarráðið þeirra atvika vegna, sem stjórnari félagsins hóflr til-
fært í bænarskrá 14. nóvbr. 1868, er yður áður hefir veriö sent,