Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 624
616 KONUNGLEG AUGLÝSING TIL ALÞlNGIS.
200 rd. og 500 rd., verði það nú látið vera 150 rd. og 300 rd.;
aptur ámóti heíir eigi orðið álitið, samkvæmt því, sem stipts-
yfirvöldin liafa skýrt frá í áliti sínu, að færðar yrðu niður nú
sem stendur neinar af hinum öðrum upphæðum, sem hingað til
iiafa verið tilteknar í þessum kafla fjárhagsáætlunarinnar.
Um e. Um þetta atriði virðist nægja að vísa til þess, sem
getið er að framan um það, að öll skuldaskipti milli Danmerkur
og íslands sé með lögum 2. janúar 1871 á enda kljáð.
2. í þegnlegri bænarskrá hefir alþingi beiðzt þess, að engin
sala né skipti á neinum opinberum eignum megi fram fara, nema
með ráði og samþykki alþingis.
En þar sem alþingi með þessu fengi það vald, sem því,
eius og getið er að framan, eigi ber eptir hinum gildandi stjórn-
arskipunarlögum, er téð bænarskrá eigi þess eðlis að hún verði
tekin til greina, en samt er eigi með þessu loku fyrir það skotið,
að álits alþingis geti orðið og verði leitað um, að selja opinberar
eignir á Islandi, ef sérstök ástæða virðist til þess.
3. Útaf þegnlegri bænarskrá alþingis um liækkun eptir-
launa fyrverandi amtmanns J. P. Havsteins, skal þess getið, að
þó fallast megi á þá skoðun alþingis, að ákvörðunin í 4. gr.
lagaima 19. janúar 1863 sé fremur óeðlileg, og að það ætti vel
við, að ákvörðun þessari, sem hefir það alveg sérstaka einkenni,
að lmn er sett um stundar sakir, yrði breytt, ef gjörð yrði al-
menn tilhögun á þeim málum, sem snerta laun og eptirlaun ís-
leuzkra embættismanna, hefir samt eigi fundizt ástæða til, að því
leyti, er snertir fyrverandi amtmann Havstein, aö gjöra sérstakar
ráðstafanir til þess að hækka lögleg eptirlaun hans, þegar tillit
er tekið til þeirra kringumstæða og atvika, er honum var vikið
frá embætti fyrir.
4. Eptir skýrslum þeim, sem fengizt hafa viðvíkjaudi
þegnlegri bænarskrá alþingis um, að höfnin við Stapa í Snæfells-
nessýslu verði löggilt til uppsiglingar fyrir verzlunarskip, og
einkanlega vegna þess, hvernig ástatt er í sveitinui þar í kring,
hefir eigi þótt nægilegt tilefni til að taka téða bænarskrá til
greina.