Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Side 310
DM PÓSTMÁL Á ÍSLA' 01.
302
4\
1872. leggur út' frá, og til þeirrar hafnar á íslandi eða erlendis, er það
26- febrúar. á að fara til og nefnd er í leiðarbréfi skipsins.
IComi sú áskorun til skipstjórans við sérstakt tækifæri, eða
ef hún er opinberlega birt fyrir þau skip yfirhöfuð, er eiga leiðir
á tiltekna staði, þá ber skipstjóranum að segja til þess í tækan
tíma á póst.húsi þess staðar, og í seinasta lagi 24 stundum áður,
hvaða dag og stund hann ætlar sér að halda í burt,'og má hann
þá ekki fyrri fara, nema póstsendingarnar sé á skip komnar;
skulu þeim þá fylgja tvær sendingaskrár samhljóða, og fær póst-
stjórnarmaðurinn aðra þeirra aptur með kvittun skipstjórans, en
hinni heldur hann eptir.
Á leiðinni er skipstjóri skyldur að geyma póstsendingarnar
á þeim stað í skipinu, þar sem þeim er óhultast og bezt fer um
þær, og annast um þær sérílagi, þegar eitthvað ber að höndum.
Neyðist skipstjórinn til að leita hafnar á öðrum stað, en
þeim, er leiðarbréf lians vísar til, skal hann segja til á pósthusinu
þar, að hann hafi póstsendingar meðferðis, eða ef þar er enginn
póstembættismaður eða póstþjónn, láta þann embættismann vita
það, er hann annars kann að hitta, svo ráðið verði af, eptir
kringumstæðum, livort beint, skuli fyrir sendingunum með öðru
móti.
þegar skipstjórinn kemur þangað, sem ferð lians var heitið,
skilar hann tafarlaust af sér póstsendingunum á pósthúsinu, er
hann er lagztur við akkeri.
]oað, sem hér er sagt, varðar og þau skip, er til flutninga
eru liöfð frá höfn á íslandi; en þó skulu jiessi skip skyld að
taka það til flutnings, sem nefnt er í 2. grein, b. og c. Póst,-
stjórnin má og festa upp á þessum sldpum, þarsem hentugast er
og hægast til að ná, læsta kassa til að láta í bréf; um kassana
og sendingarnar verður svo skipt á þeim stöðum, er skipin koma
við á. Útgjörðarmaður eða skipstjóri þess skips, er senda á í
flutningaferðir, er skyldur í tækan tíma, og í seinasta lagi sam-
tíða hinni fyrstu auglýsingu sinni um ferðirnar, að segja póst-
stjórninni t.il um leið skipsins, viðkomustaði, burtsiglingar- og
tilkomutíð, og eins um sérhverja þá breytingu, sem á ferðum
þessum verður gjörð síðar.