Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Blaðsíða 660
652
0M FANGAVÖKÐ VIÐ HEGNINGABHÚSIÐ.
1873.
8. ágúst.
falin á hendur fang-averöinum eða öðrum, en að því leyti, sem
þér, herra landshöfðingi, höfðuð mælt ámóti því, að fela fanga-
verðinum á hendur að sjá fyrir viðurværi handa föngunum, þar
sem hann eigi mundi geta keypt mikinn forða að í einu, sem
því mundi verða honum dýrari, og jafnframt lakari, er þess getið,
að síður mun á þessum annmarka bera, ef kaupin yrði gjörð
fyi’ir hönd hegningarhússins sjálfs, og svo þau föng, sem keypt
væri, yrði fengin fangaverðinum í hendur sem borgun fyrirfram,
og skyldi hann svo gjöra reikning við og við. Að endingu hefir
faugelsisskrifstofan látið í ljósi, að ekkert mundi vera því til
fyrirstöðu, að fangavörður sá, sem skipaður yrði, kæmist að á
hegningarhúsi hér, til þess að kynna sér störf þau, sem yrði
stöðu hans samfara, og er álitið, að hegningarhúsið í Vébjörgum
sé bezt til fallið, með því þar eru bæði fangar, sem sitja saman,
og fangar, sem eru í kompum sér, og vinnan þar að nokkru
leyti er tóvinna. þareð umsjónarmennirnir í Vébjörgum fá
eigi viðurværi í hegningarhúsinu, yrði sá, sem í hlut á, sjálfur
að sjá fyrir því, en þaö mun kosta 1 rd. á dag; aptur á móti
má við því búast, þótt eigi verði sagt með vissu, að honum verði
útvegaður bústaður í hcgningarhúsinu, en það kemur eigi til
tals, að honum verði veitt laun.
Af þeim ástæðum, sem fangelsisskrifstofan hefir borið upp,
verður stjórnarráðið að álíta það síður hagfellt, að verkstjórn og
ráðsmennska gangi á kostnað af opinberu fé, en það þykir eiga
betur við, að hvorttveggja sé falið fangaverðinum á hendur,
þannig, að ágóðinn gangi upp í laun hans eða yröi talinn með
þeim. Aður en fullnaðar ákvörðun verður gjörð um þetta, mæl-
umst vér samt til, að þér, herra landshöfðingi, látið til enn álit
yðar, og skal því bætt við, að sá, sem skipaður verður fangavörð-
ur, má búast við að fá 200 rd. styrk til kostuaðar við ferðina
hingað og 4 mánaða veru við hegningarhúsið í Vébjörgum í
fyrnefndu skyni.