Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 88
-
1870-
9. júlj'.
80 UM STIPTSBÓKASAFNIÐ.
69. Bréf kirkju- og kennslustjórnarinnar til stiptsyfir-
valdanna á íslandi, uni styrk handa stiptsbóka-
safninu.
Um leið og þér, herra stiptamtmaður, og þér, háæruverðugi
herra, með bréii, dagsettu 23. marzm. þ. á., haflð sent hingað
bænarskrá, þar sem stjórn stiptsbókasafnsins í Eeykjavík sækir um
500 rd. styrk til aö stækka húsrúm safnsins og búa til skrá yfir
bækur þess, hafið þér getið þess, að með því að safniö hafi stækk-
að svo mjög á hinum síðustu 20 árum, aö það sé nú komið upp
í hérumbil 15,000 bindi úr hérumbil 6000 bindum, þá sé þörf á
sumpart að stækka rúm það á dómkirkjuloptinu, sem safnið hefir
hingað til verið geymt í, og búa til útlánsherbergi lianda bókaverði,
en til þessa mundi þurfa 200—220 rd., sumpart að samin verði
skrá yfir bækur þær, sem til fengnar eru síðan 1851, er síðasta
bókaskráin var tilbúin, og þessi skrá svo prentuð, en til þessa
mundi ganga 500—600 rd., það er segja 250—300 rd. í þóknun
fyrir að taka saman skrána, og jafnmikið til prentunar-kostnaðar.
jiareð allar árstekjur safnsins ganga í þau útgjöld, sem venjulega
koma uppá, af því það er fyrir skipað í stofnunarbréfi safnsins, að
annaðhvort ár eigi að kaupa konunglegt skuldabréf með 4 rd.
vöxtum af 100, til þess að auka hinn fasta sjóð safnsins, hafið
þér, herra stiptamtmaður, og þér, liáæruverðugi herra, mælt fram
með, að þessi 500 rd. styrkur til að stækka húsnæði safnsins og
búa til bókaskrá verði tekinn af því fé, sem með fjárhagslögunum
er veitt til óvissra útgjalda, og honum skipt uppá tvö ár, þannig,
að 350 rd. verði veittir á þessu fjárhagsári, en það er svo mikið,
sem mundi nægja til að stækka húsakynni safnsins og greiðahelm-
ing af laununum fyrir að semja bókaskrána; hinn helmingurinn
af laununum, 150 rd., verður þá borgaður á fjárhagsárinu 1871
—72, allt með þeim skilmála, að verkinu verði lokið á árunum
1870 og 1871. En hvað snertir kostnaðinn við prentun bóka-
skrárinnar hafið þér farið þess á leit, að leyft verði að leiða hjá
sér boð stofnunarbréfsins, það er fyr var getið, um árin 1870—
1874, og verja fé því, sem með þessu móti safnast, til prentunar-
kostnaðar. Að ondingu hafið þér mælt fram meö því, aö gefa