Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Blaðsíða 372
1872.
3. mai.
364 ADGLÝ8ING UM PÓSTMÁL.
11. grein.
Samkvæmt þeim reglum, sem síðar skal getið, tekur póst-
stjórnin við bréfum, peningabréfum og bögglum, sem sendir verða
milli allra póstafgreiðslustaða og bréfhirðingarstaða í landinu og
til póststofunnar í Reykjavík og frá henni, flytur það og kemur
því til skila.
Ennfremur tekur póststjórnin að sér að ráðstafa innansveitar
sendingum, en það eru sendingar, sem látnar eru á pósthús, til
þess að þeim verði skilað þar móttökumönnum, sem eiga lieima
í sjálfu umdæmi þess pósthúss, og sern sækja þangað. Undir
slíkar innansveitar sendingar skal gjalda helming burðareyris þess
og gjalda þeirra, sem fyrir er mælt um almennar sendingar í til-
skipuninni um póstmál, en að öðru leyti skal farið með þær allt
að einu og hinar.
12. grein.
Með þeim hlutum, sem með öllu eru undanskildir frá því,
sem senda má með póstum (tilsk. uin póstmál, 4. gr.) skal eink-
um telja púður, efni til flugelda, hvellsilfur, skotbaðmull, fosfór,
alls konar brennisteinsspítur, skilvatn, brennisteinss}?ru, saltsýru,
aðrar etandi sýrur, jarðlýsi, sprengiolíu, og hlaðin skotvopn.
Komi upp grunur um, að í sendingu sé hlutir, sem hætta
er búin af, ef fluttir eru, mega póstþjónar neita að taka við send-
ingunni, eða kyrsetja hana, og geta krafizt þess, ef sendingin á
að veröa flutt, að sá, sem sendir, með því að skýra skriflega frá
hvað í sendingunni er, sanni, að engin liætta sé af því búin.
Verði teknar til flutnings með póstum sendingar, sem hætta
or búin af, af því að þagað hefir verið yfir innihaldinu, eða rangt.
sagt til þess, og af þessu Iilýzt tjón nokkurt, skal sá, sem sendi,
ekki að eins endurgjalda póststjórninni það fé, sem hún ef til
vill á að greiða í bætur fyrir skaða, sem aðrar póstsendingar lmfa
orðið fyrir við slík tækifæri, heldur skal hann einnig bæta þann
skaða, sem með þessu hefir orðið á herbergjum, áhöldum, flutn-
ingsgögnum o. s. frv.
Ef póststjórnin hefir tokið við ofan nefndum hlutum, sem
hætta er búin af, eða öðrum lilutum, sem með öllu eru undan-
skildir frá því, er senda má með póstum (það eru hlutir, sem