Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Page 8
Einhver afskipti, meiri eða minni eftir
eðli málsins, eru höfð af reikningsskilum
yfir 400 fyrirtækja og stofnana.
Þær deildir, sem annast svokallaða al-
menna endurskoðun, hafa flestar ríkis-
stofnanirnar á sinni könnu, þar með allar
hinar svokölluðu B-hluta stofnanir. —
Með B-hluta stofnun er átt við ríkisstofn-
un eða fyrirtæki, sem stendur að öllu eða
verulegu leyti undir kostnaði við starfsemi
sína með tekjum af sölu á vörum eða
þjónustu, eða hafa starfsemi með hönd-
um, sem í meginatriðum er hliðstæð starf-
semi einkaaðila. — Hjá þeim skal eign-
færa og afskrifa efnislega fjármuni, gagn-
stætt því, sem við á um A-hluta stofnanir,
þar sem efnislegir fjármunir eru gjald-
færðir að fullu á því ári, sem þeirra er
aflað.
Þessar deildir annast því endurskoð-
un hjá langflestum rikisstofnunum og öll-
um þeim stærstu, í þeim deildum starfa
að jafnaði um 10 menn. — Vegna mann-
fæðar hefur orðið að fela löggiltum end-
urskoðendum endurskoðun nokkurra
stofnana.
í þeirri deild ríkisendurskoðunarinnar,
sem nefnd er tollendurskoðun, vinna að
jafnaði 10-12 menn. Hlutverk þeirrar
deildar er að endurskoða allar aðflutn-
ingsskýrslur yfir innflutning til landsins.
Þetta verk er framkvæmt þannig, að all-
ar aðflutningsskýrslur, sem berast utan
af landi, þ.e.a.s. frá öllum tollumdæm-
um utan Revkjavíkur, eru endurskoðað-
ar bæði efnislega og tölulega. Á aðflutn-
ingsskýrslum, sem berast frá tollstjóran-
um í Reykjavik, er framkvæmd úrtaks-
könnun, þar sem við embætti tollstjór-
ans er starfandi sérstök endurskoðunar-
deild. Þetta er mikið nákvæmnisverk og
tímafrekt, en mjög nauðsynlegt. Á ári
hverju er gerður fjöldi athugasemda við
aðflutningsskýrslur, athugasemdir, sem
bæði hafði í för með sér útgjöld og tekjur
fyrir ríkissjóð. Ennfremur ber tollendur-
skoðuninni að yfirfara allar endurgreiðslu-
beiðnir á aðflutningsgjöldum, er það
einnig mikið nákvæmnisstarf og viðamik-
ið, sérstaklega hefur það aukist eftir að
farið var að flytja út íslenskar iðnaðar-
vörur í meiri mæli en áður var. Þá hefur
einnig þetta vcrið mikilsvert atriði i sam-
bandi við stórvirkjanirnar, vegna þess að
allur innflutningur, sem til þeirra fer, er
tollfrjáls, samkvæmt sérstökum samningi
við lánveitendur, Alþjóðabankann og
fleiri.
Sú deild, er við köllum embættaeftirlit,
hefur á að skipa 7-10 mönnum. Deildin
hefur eftirlit með og endurskoðar hjá öll-
um innheimtuaðilum ríkissjóðs þ.e. hjá
svslumönnum, bæjarfógetum og lögreglu-
stjórum. Auk þess hér í Reykjavík hjá
tollstjóra, borgarfógeta og borgardómara.
Deildin fylgist með innheimtu opinberra
gjalda og annarra tekna ríkisins og skilum
þeirra í ríkissjóð.
Þessi deild annast og endurskoðun hjá
sj úkrasamlögunum.
Endurskoðunarstörfum hefur í stórum
dráttum verið hagað þannig, að þegar ár-
leg reikningsskil stofnana hafa komið
inn, hafa þau verið athuguð, svo og bók-
haldið, sem þau byggjast á. Ef endurskoð-
andinn finnur eitthvað sem hann telur
athugavert eru skrifaðar athugasemdir,
sem sendar eru viðkomandi forstöðu-
6