Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Side 13
skattlagningu bifreiðareksturs en hún
er samin sem álitsgerð og hefur ekki
réttarlegt gildi auk þess sem hún
fjallar ekki nema um hluta af þeim
atriðum sem varða skattlagningu bif-
reiðareksturs. Engu að síður má gera
ráð fyrir að áiitsgerðin hafi haft tals-
verð áhrif og reglur skattyfirvalda um
skattlagningu bifreiðareksturs hafi í
verulegum atriðum verið byggðar á
niðurstöðum greinarinnar.
4. Allmörg eyðuhlöð hafa verið prentuð
fvrir skattstofur sem varða bifreiða-
rekstur. Þar er spurt um ýmis atriði
rekstrarbókhaldslegs eðlis, svo sem
eyðslu ökutækja, aksturslengd og
fleira af þessu tagi. Upplýsingar sem
nauðsynlegar eru skattyfirvöldum til
að ná tökum á viðfangsefninu. Það
er athugandi að gögn frá skattstofun-
um eru talsvert mismunandi að gerð.
5. Hagsýslustofnun fjármálaráðuneytis-
ins hefur látið bifreiðarekstrarútgjöld
ríkisins til sín taka síðan sú stofnun
hóf starfsemi. Sett hefur verið reglu-
gerð um bifreiðamál ríkisins sem er
nr. 6 1970 og gerð hafa verið eyðu-
blöð, meðal annars fyrir umsóknar
um akstursgreiðslu þar sem greint er
frá atriðum sem þar þurfa fram að
koma og eins eyðublöð fyrir samn-
inga milli ríkisstofnunar og starfs-
manns um notkun bifreiðar starfs-
mannsins í þágu ríkisstofnunarinnar.
6. Félag ísl. bifreiðaeigenda hefur tekið
saman rekstrarkostnað bifreiða miðað
við ákveðnar forsendur og gert áætl-
anir um þennan rekstrarkostnað mið-
að við ýmis tímamörk. Athyglis-
vert er hversu hár þessi rekstrarkostn-
aður er miðað við það sem almennt er
talið, að minnsta kosti í skattframtöl-
um. Það kemur t.d. fram hjá F.Í.B.
að rekstrarkostnaður Volkswagenbif-
reiðar á árinu 1971 var álitinn vera
kr. 104.850 þegar með voru taldar af-
skriftir og beinn kostnaður en þó
ekki vextir. Hinn 3. desember 1975
var árskostnaður orðinn kr. 453.949.
Þá áætlaði F.Í.B. að árlegur rekstrar-
kostnaður Rangeroverbifreiðar með
afskriftum væri, miðað við verðlag í
desember 1975, kr. 989.115, og voru
þá ekki taldir vextir sem taldir voru
kr. 163.748 á ári. Af tölum Félags ísl-
bifreiðaeigenda sést að rekstur bif-
reiða er ákaflega kostnaðarsamur og
einkaafnot sem skattyfirvöld hafa
reiknað mönnum, oft 50 eða 60 þús.
kr. stundum 100 eða 150 þús. kr., eitt-
hvað þar um bil, verða að teljast lág
miðað við tölur F.Í.B.
Dómar íslenskra dómstóla um
skattlagningu bifreiðareksturs eru
fáir og engir frá Hæstarétti sem ég
man eftir. Hæst ber nú tvo úrskurði
Fógetaréttar Kópavogs frá árinu 1975
þar sem hrundið var áætlun skattyf-
irvalda um tekjur af bifreiðaakstri.
Mun þeim málum hafa verið skotið
til Hæstaréttar.
Athyglisverðast er, þegar litið er
yfir greind gögn um rekstur bifreiða,
hversu gögnin eru takmörkuð á marg-
an veg.
11