Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Qupperneq 16
óhæfilegar kröfur til gjaldenda um
margvísleg framtalsgögn en það er
eðlilegt að helstu atriði, sem varða
rekstur bifreiðanna, bæði fjárhags-
leg og rekstrarleg, komi fram í fram-
talsgögnum, svo sem gerðar eru kröf-
ur nú um. í gildandi lögum um
tekjuskatt og eignarskatt virðist rík-
isskattstjóri og skattrannsóknarstjóri
og þeir menn, sem þeir fela rann-
sóknarstörf, hafa víðtækari heimildir
til upplýsinga öflunar en önnur skatt-
yfirvöld. Mismunun af þessum toga
virðist ekki réttmæt. Er ástæða til að
þau skattyfirvöld, sem hafa á hendi
rannsóknir á efnahag og rekstri gjald-
enda, hafi víðtækar heimildir til
upplýsingaöflunar þar um.
C. Þvingunarúrræði
í þeim tilvikum að upplýsingar um
bifreiðareksturinn berist ekki skatt-
yfirvöldum greiðlega er nauðsyn að
þau eigi greiðan aðgang að stofnun-
um, og þar er átt við dómstóla, til að
þvinga fram þessar upplýsingagjöf og
að þvingunarúrræði dómstóla, sér-
staklega viðurlög, séu það þung og
það skjót að gjaldendur sjái sér hag
í því að láta upplýsingar strax í té,
þannig að til sérstakra upplýsingaað-
gerða af hálfu skattyfirvalda þurfi
ekki að koma nema í algerum und-
antekningartilvikum.
Ekki er auðvelt að segja hvernig
þessari starfsemi verður best fyrir
komið en ljóst er að dómstólar verða
að bregðast miklu fyrr við í skatta-
málum en gert hefur verið til þessa
og skattyfirvöld verða að eiga miklu
greiðari aðgang að, sérstaklega upp-
lýsingaöfluninni, en þau hafa hingað
til virst eiga.
Á þessu stigi er ekki vert að gera
kröfur fyrir hönd skattyfirvalda um
jafngreiða upplýsingaöflun og t.d.
manni virðist eiga sér stað um land-
helgisbrot þar sem dómarar eru ræst-
ir út á laugardögum og sunnudögum.
En það virðist alger forsenda fyrir
skikkanlegri framkvæmd skattamála
og raunar margra annarra mála að
skattyfirvöld og þeir aðilar, sem hlut
eiga að máli, geti með litlum fyrir-
vara fengið aðstoð dómstóla til þess
að afla upplýsinga um þau atriði sem
þeir eiga rétt á að fá upplýsingar
um. Þar sem öflun upplýsinga um
skattamál eru sérhæfð að verulegu
leyti er spurning hvort upplýsinga-
öflun um þau og skyld mál, er varða
bókhald og gjaldþrotaskipti og ann-
að þess háttar er ekki best fyrir kom-
ið þar sem fyrir hendi er sérþekking
manna til að fjalla um þessi mál.
Það virðist undarlegt ef ekki er hag-
kvæmt að nota menn með sérþekk-
ingu á bókhaldi og skattamálum til
að vinna þessi verk en frekar fengnir
menn sem ekki hafa sérþekkingu á
málunum.
D. Reglur um skattlega meðferð
bifreiðarekstursliða
Fjórða forsenda þess að skattlagning
bifreiðareksturs takist bærilega er sú
að til séu ítarlegar skráðar reglur um
skattalega meðferð á tekjum og
14