Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Síða 22
þykktum félags og önnur þau
lagalegu skjöl, sem fjalla um til-
veru fyrirtækisins.
b) önnur mikilvæg lagaleg skjöl og
samninga,
c) lýsingu á fyrirtækinu og starfsemi
þess, ásamt heimilisföngum allra
þeirra staða, sem það rekur starf-
semi á,
d) skipurit, sem sýni yfirstjórn fyrir-
tækisins og skiptingu ábyrgðar,
e) nákvæma lýsingu á bókhaldskerfi
fyrirtækis og þar, sem við á, lýs-
ingu á notkun tölvu, þ.e. með
flæðiritum eða skýringum,
f) spurningalista um innra eftirlit
eða lýsingu á því, svo að styrk-
leika innra eftirlits megi meta,
einnig á þeim sviðum sem tölvur
eru notaðar.
g) bréfaskipti við viðskiptavin um
innra eftirlit,
h) upplýsingar um öll þau fyrirtæki,
sem tengd eru fyrirtæki viðskipta-
vinarins ásamt nöfnum og heimil-
isföngum endurskoðenda þeirra.
Hér mætti jafnframt greina frá
bréfaskiptum við aðra endur-
skoðendur þegar stuðst hefur ver-
ið við vinnu þeirra.
i) reikningsskilavenjur, helstu kenni-
tölur, yfirlit yfir afkomu fyrri
tímabila ásamt yfirliti um mynd-
un varasjóða,
j) lýsingu á mikilvægum málefnum,
sem upp komu í sambandi við
endurskoðun með frásögn um
hvaða ákvarðanir voru teknar og
á hverju byggðar,
k) langtímaendurskoðunaráætlun til
þess að tryggja, að á ákveðnum
fjölda ára sé nægileg og jöfn yf-
irferð í endurskoðuninni.
Vinnupappírar ársins
(Current audit file);
7. Vinnupappírar ársins eiga að geyma
upplýsingar, sem snerta þann árs-
reikning, sem er til endurskoðunar og
gætu þeir t.d. innihaldið eftirfarandi:
a) eintak af endurskoðuðum árs-
reikningi,
b) endurskoðunaráætlun þar sem
gerð er grein fyrir hvaða endur-
skoðunarstörf voru unnin,
c) sérstök yfirlit, sem hvert hefur að
geyma greiningu á hverjum ein-
stökum lið efnahags- og rekstrar-
reiknings ásamt skýrslu stjórnar.
Þessi yfirlit skulu sýna samanburð-
artölur og greina frá hvernig end-
urskoðandi sannreyndi tilveru,
eignaraðild (aðeins fyrir eignir)
og fjárhæð þeirra liða, sem fram
komu í ársreikningi. Þessi yfirlit
skulu greina frá niðurstöðum end-
urskoðandans og bera með sér til-
vísun til annarra yfirlita og utan-
aðkomandi gagna, þar sem við á.
Sérhver vinnupappír skal bera
með sér hver hafi útbúið hann,
hvenær og hver hafi farið yfir
hann.
d) frásögn af fundum og bréfaskipt-
um vegna endurskoðunarinnar,
e) úrdrátt úr efni funda hluthafa,
stjórnar eða annarra aðila, sem
við eiga,
20