Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Page 27
Geir Geirsson, lögg. endurskoðandi
Fundur norræna
endurskoðendasambandsins í Reykjavík
Um mánaðamótin júlí-ágúst s.l. var
haldinn í Reykjavík hinn árlegi fulltrúa-
fundur Norræna endurskoðendasam-
bandsins. Fundinn sátu átján fulltrúar frá
Norðurlöndunum fimm. Fulltrúar Félags
löggiltra endurskoðenda voru Atli Hauks-
son, Geir Geirsson og Sveinn Jónsson.
Fundurinn var haldinn að Hótel Holti
föstudaginn 1. ágúst og laugardaginn 2.
ágúst. Meðan íundir stóðu var farið með
konur þátttakenda í kynnisferðir um
Reykjavík og nágrenni. Að kvöldi laugar-
dags var haldið lokahóf fundarins að
Hótel Sögu en daginn eftir flogið til
Vestmannaeyja og skoðaðar afleiðingar
jarðeldanna á Heimaey og uppbygging
staðarins. Rómuðu hinir norrænu gestir
mjög móttökurnar á fslandi og skipulagn-
ingu fundarins en undirbúningur undir
hann hvíldi að langmestu leyti á for-
manni FLE, Atla Haukssyni.
Að venju lágu fyrir fundinum skrifleg-
ar skýrslur frá meðlimafélögunum um
það helsta, sem gerst liafði eða væri að
þróast á starfs- og áhugasviði endurskoð-
enda í hverju landi fyrir sig. Varðandi
norrænu hlutafélagalögin kom fram, að
búist er við að þau taki gildi í Sviþjóð
og Noregi í ársbyrjun 1977 og í Finnlandi
sennilega ári síðar. Lögin eru þegar í
gildi í Danmörku. íslenska frumvarpsupp-
kastið mun vera til athugunar í viðskipta-
ráðuneytinu en ekki er ennþá ljóst hve-
nær það verður lagt fyrir Alþingi.
A fundinum var kynnt nýtt tímarit,
sem sænska félagið hóf að gefa út á ár-
inu. Einnig kynntu íslensku fulltrúarnir
tímarit Félags löggiltra endurskoðenda en
l^að hafði ekki áður verið gert.
Fram kom að víða er unnið að nýjum
samskiptareglum endurskoðenda. Norskir
endurskoðendur hafa samþykkt frumvarp
að nýjum samskiptareglum og í danska fé-
lagsmannablaðinu voru í sumar kynntar
fyrirhugaðar breytingar á þeirra reglum.
í Svíþjóð er einnig unnið að þessu sama.
Á fundinum skýrðu finnsku fulltrúarn-
ir frá breytingu á lögum um löggilta end-
urskoðendur í Finnlandi þess efnis að lög-
gilding félli niður við sjötíu ára aldur hins
löggilta endurskoðanda. Ætlað er að þessi
skerðing starfsréttinda vegna aldurs komi
til með að ná til fleiri starfsstétta t.d. mál-
færslumanna o.fl. Ekki vissu fundarmenn
til þess að svipaðar ráðstafanir væru
nokkurs staðar í undirbúningi í öðrum
löndum.
Norðurlöndin hafa samstarf sín á milli
að því er varðar þátttöku í Evrópusam-
bandi endurskoðenda, UEC. Þau eiga
sameiginlega fulltrúa í framkvæmda-
stjórn UEC og hefur Carl-Henrik Witt
frá Svíþjóð gegnt því starfi undanfarið.
Carl-Henrik Witt mætti á fundinum í
Reykjavik og gerði þar grein fyrir starfi
UEC. Evrópusambandið rekur skrifstofu
í Múnchen i Þýzkalandi, gefur út tíma-
rit og heldur fundi og ráðstefnur, svo sem
ráðstefnuna í Belgrad á þessu hausti. Þá
starfa 10 fastanefndir á vegum UEC um
hin margvíslegustu málefni. Þess má geta
að nefndin sem fjallar um endurskoðun
hefur nýlega látið frá sér fara tvö „state-
ment“ annað um „The Audit Report“ og
hitt um „The Use of Another Auditor’s
Work“.
Carl-Henrik Witt var á síðasta fulltrúa-
fundi UEC kjörinn forseti þess og lá nú
25