Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Síða 28
fyrir fundinum að velja nýjan fulltrúa
fyrir Norðurlöndin í framkvæmdastjórn
UEC. Fyrir valinu varð Helge Rindal frá
Noregi.
Eins og kunnugt er starfa tvær fasta-
nefndir á vegum Norræna endurskoð-
endasambandsins, önnur um endurskoð-
un, hin um reikningsskil. Á fundinum
gerði formaður endurskoðunarnefndar,
Bertil Edlund frá Svíþjóð, grein fyrir
störfum nefndarinnar á árinu. Lokið var
tillögu um staðal að endurskoðun úti-
standandi skulda og fyrir árslok mun
einnig verða tilbúin staðaltillaga um
„grundvallaratriði endurskoðunar í hluta-
félögum". Þá hefur nefndin tekið til um-
ræðu endurskoðunaráritun og endurskoð-
unarskýrslu en þetta mál er enn á ný að
komast í sviðsljósið vegna norrænu hluta-
félagalaganna. Meðal nýrra verkefna
nefndarinnar má nefna „endurskoðun
smærri fyrirtækja“ og „afstöðuna til
skattyfirvalda“. Allar tillögur nefndar-
innar eru sendar til norrænu endurskoð-
endafélaganna, hvers um sig, þar sem
ætlast er til að þær séu teknar til athug-
unar og umræðu.
Norræna reikningsskilanefndin hélt sinn
fyrsta fund á árinu þar sem lagðar voru
línurnar um starf nefndarinnar í fram-
tíðinni.
Meðal annarra mála, sem rædd voru á
fundinum var undirbúningur norræna
endurskoðendakongressins í Reykjavík
1976 en það mál hefur þegar rækilega
verið kynnt fyrir félagsmönnum FLE.
Einnig var m.a. rætt um samstarf nor-
rænu félaganna, einstakra eða sameigin-
lega, við stofnanir eða félög endurskoð-
enda utan Norðurlandanna en oft gefst
íslenskum endurskoðendum möguleiki á
þátttöku í námskeiðum eða fundum, sem
þannig er til stofnað.
Formaður Norræna endurskoðendasam-
bandsins Eric Haglund frá Finnlandi
hafði nú lokið kjörtíma sínum og í stað
hans var kjörinn Bo Fridman frá Sví-
þjóð. Næsti fundur sambandsins verður
haldinn í Finnlandi í júní 1976.
26