Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Síða 33
Helgi V. Jónsson, hdl., löggiltur endurskoðandi
Aðalfundur
Félags löggiltra endurskoðenda
Aðalfundur Félags löggiltra endurskoð-
enda var haldinn laugardaginn 29. nóv-
ember 1975. 42 félagsmenn mættu á
fundinum. Samþykkt var eftirfarandi
breyting á lögum félagsins:
11. gr. orðist svo:
Á aðalfundi skal kjósa til eins árs í
senn tvær fastanefndir er nefnast endur-
skoðunarnefnd og reikningsskilanefnd. í
hvorri nefnd skulu eiga sæti þrír félags-
menn. Nefndirnar kjósa sér sjálfar for-
mann. Forfallist nefndarmaður á kjör-
timabili skal stjórn félagsins skipa mann
í hans stað.
Hlutverk endurskoðunarnefndar skal
vera að gera tillögur að leiðbeinandi regl-
um um framkvæmd endurskoðunar, sem
gefnar yrðu út sem álit félagsins.
Tillögur þær, sem nefndirnar leggja
fram, skulu kynntar á félagsfundi og síð-
an sendar félagsmönnum svo þeim gefist
kostur á að koma að athugasemdum inn-
an hæfilegs frests. Að loknum þeim fresti
skulu nefndirnar taka tillögurnar fyrir að
nýju ásamt þeim athugasemdum, sem
fram hafa komið. Tillögur, sem eftir þá
athugun hljóta samþykki meirihluta
nefndarmanna, skulu teknar til afgreiðslu
á næsta aðalfundi. Þær tillögur, sem
hljóta samþykki % fundarmanna, skulu
svo fljótt eftir fundinn, sem því verður
við komið, kynntar sem álit félagsins.
11. grein sem nú er, verði 12. grein
°g breytist númer annarra greina félags-
laga í samræmi við það.
í skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 1974/
1975 kom m.a. fram, að á starfsárinu
voru alls haldnir 7 félagsfundir. Þessir
fluttu erindi á fundunum: Guðmundur
Vignir Jósefsson gjaldheimtustjóri um
innheimtu tekju- og eignarskatta, Helgi
V. Jónsson um tölvur sem stjómtæki,
Halldór Ásgrímsson um virðisaukaskatt,
Árni Vilhjálmsson, prófessor, um hug-
myndir að tilhögun endurskoðunarnáms í
viðskiptadeild, Erlendur Lárusson, for-
stöðumaður Tryggingaeftirlitsins, um
tryggingamál og starfsemi Tryggingaeft-
irlitsins og Halldór V. Sigurðsson um und-
irbúning fyrir þing norrænna endurskoð-
enda.
Sumarráðstefna félagsins var haldin að
Laugarvatni. Þar fluttu erindi Sigurbjörn
Þorbjörnsson ríkisskattstjóri um stað-
greiðslukerfi skatta, Ævar ísberg vararík-
isskattstjóri um samskipti félagsmanna og
skattyfirvalda og Tómas Gunnarsson er-
indi er hann nefndi: „Hvað getur F.L.E.
gert til mótunar stefnu í skattamálum.“
Árlegur fundur Norræna endurskoð-
endasambandsins var haldinn í Reykja-
vík 31. júlí-3. ágúst. Af hálfu félagsins
sóttu fundinn Atli Hauksson, Geir Geirs-
son og Sveinn Jónsson, en félagið hefir
tekið að sér að sjá um XI þing nor-
rænna endurskoðenda. í undirbúnings-
nefnd þingsins eru Halldór V. Sigurðs-
son, Ólafur Nilsson, Bergur Tómasson og
Atli Hauksson.
Úr stjórn félagsins áttu að ganga Atli
Hauksson, Geir Geirsson og Helgi V.
Jónsson. Formaður var kosinn Geir Geirs-
son, en aðrir í stjórnina Ólafur Nilsson og
Eyjólfur K. Sigurjónsson. Til vara var
31