Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Qupperneq 53
og skal þá til þess starfa kveðja löggiltan
endurskoðanda, ef hans er kostur.
13. gr.
Ráðherra ákveður að fengnum tillög-
um Alitsnefndar Félags Löggiltra endur-
skoðenda hvort endurskoðunarstarf sam-
rýmist öðru starfi eða starfrækslu fyrir-
tækis. Nú gegnir löggiltur endurskoðandi
öðru starfi eða rekur atvinnufyrirtæki
andstætt fyrirmælum ráðherra og getur
ráðherra þá svift endurskoðanda löggild-
ingu sinni.
14. gr.
Nú missir löggiltur endurskoðandi lög-
mælt skilyrði til löggildingar eða til end-
urskoðunarstarfa samkvæmt löggildingu,
sbr. 13. gr., og fellur þá úr gildi löggild-
ing hans, enda ber honum þá að skila
aftur löggildingarskírteini sínu. Ef hann
síðar fullnægir lagaskilyrðum skal ráð-
herra, að fengnum tillögum Alitsnefndar
Félags löggiltra endurskoðenda, veita
honum löggildingu að nýju.
15. gr.
Nú sætir löggiltur endurskoðandi á-
kæru í opinberu máli um brot á refsi-
lögum og ber þá ákvörðun um sviptingu
löggildingar hans af því efni, eftir kröfu
ákæruvalds, undir dómara þess máls.
Ákvörðun um sviptingu löggildingar
vegna atvika, sem eigi leiða til ákæru, ber
undir ráðherra. Nú vill endurskoðandi
ekki una úrlausn ráðherra og getur hann
þá borið sakarefnið undir dómstóla. Fer
um meðferð þess máls að hætti opinberra
mála. Ákvörðun ráðherra í málinu skal
halda gildi uns dómur gengur.
16. gr.
Allur kostnaður af framkvæmd laga
þessara, þ. á. m. þóknun prófnefndar-
manna, er ráðherra ákveður, greiðist úr
ríkissjóði.
17. gr.
Brot gegn lögum þessum og reglum,
sem settar verða samkvæmt þeim, varðar
allt að 1 000 000 kr. sekt til ríkissjóðs,
nema þyngri hegning liggi við að öðrum
lögum.
18. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt
falla úr gildi lög nr. 89 frá 29. desember
1953 um löggilta endurskoðendur og lög
nr. 42 frá 29. mars 1961, um breyting á
þeim lögum. Þó skulu þeir menn sem
löggiltir hafa verið sem endurskoðendur
fyrir gildistöku þessara laga halda starfs-
heiti sínu og starfsréttindum en ákvæði
7.—17. gr. þessara laga gilda einnig um
þá-
Akvœði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir gildistöku laga þessara skal
heimilt, eftir nánari fyrirmælum ráðherra,
að þreyta próf samkvæmt reglugerð nr.
217/1953 fram til ársloka 1980.
ATHUGASEMDIR VIÐ
LAGAFRUMYARP ÞETTA.
Um réttindi og skyldur löggiltra end-
urskoðenda, skilyrði til að fá löggildingu
sem endurskoðandi og fleiri ákvæði um
löggilta endurskoðendur gilda nú lög nr.
89 frá 1953. Þau lög leystu af hólmi
fvrstu lög um löggilta endurskoðendur
hér á landi, lög nr. 9 frá 15. júní 1926.
51