Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Qupperneq 54

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Qupperneq 54
Segja má að frá því að núgildandi lög um löggilta endurskoðendur voru sett hafi orðið stórfelld breyting á skilningi manna á mikilvægi og nytsemi reiknings- skila fyrirtækja og einstaklinga sem stjórntækis við atvinnurekstur. Þá hafa síaukin viðskipti og samskipti við erlenda aðila gert mönnum ljósa nauðsyn þess að reikningsskil íslenskra aðila, bæði ríkisfyr- irtækja og einkafyrirtækja, séu þannig úr garði gerð að þeim megi treysta. Þá gera opinberir aðilar meiri kröfur til reiknings- skila en áður. Verkefni endurskoðenda verða því sífellt viðameiri, fjölbreytilegri og vandasamari. Á flestum sviðum þjóðlífsins eru gerð- ar auknar kröfur um þekkingu manna og menntun. Á það einnig við þá menn er annast bókhald, reikningsskil og end- urskoðun. Er það því ekki að ástæðulausu að meginbreyting þessa frumvarps, mið- að við núgildandi lög, er sú að lagt er til að bóklegt nám við viðskiptadeild Há- skóla íslands komi í stað námskeiðahalds þess, sem verið hefur fyrir nema í endur- skoðun. Enda þótt flestir, scm kennt hafa á námskeiðunum, hafi verið háskólakenn- arar verður námið í fastari skorðum með því að færa það inn í háskólann og gef- ur verðandi endurskoðendum kost á meiri og betri fræðslu en þeir eiga nú kost á. Erumvarp þetta, sem og eldri lög um löggilta endurskoðendur, miðar að því að tryggja að einungis hæfir menn fái lög- gildingu sem endurskoðendur og að þeir sem löggildingu öðlast, njóti réttinda og hafi skyldur eftir því sem réttmætt og eðlilegt má teljast. Áð sjálfsögðu er við það miðað að endurskoðendur, sem lög- giltir hafa verið samkvæmt eldri lögum, haldi þeim rétdndum sínum. Athlgasemdir við einstakar greinar frumvarpsins. Uin 1. gr. Þarfnast ekki skýringa. Um 2. gr. í þessari grein er þýðingarmesta breyt- ingin frá núgildandi lögum, þ.e. ákvæði um að skilvrði til að hljóta löggildingu sem endurskoðandi sé að ljúka prófi frá viðskiptadeild Háskóla íslands, með end- urskoðun sem kjörsvið. Hér er lagt til að einu kjörsviði sé bætt við síðari hluta 1 viðskiptadeildinni. Þá er hér kveðið nán- ar á um verklega menntun endurskoð- enda sem fjallað er um í 2. gr. núgild- andi laga. í núgildandi lögum eru m.a. skilyrði fyrir löggildingu endurskoðanda, að hann sé íslenskur ríkisborgari og að hann hafi náð 25 ára aldri. Ekki þvkir ástæða til þess að hafa þessi ákvæði þar sem búseta í landinu, ásamt þeim menntunarkröfum sem gerðar eru, ættu að tryggja nægjanlega vel það sem að var stefnt með þeim ákvæðum. Jafn- framt er opnaður möguleiki fyrir því að erlendir ríkisborgarar, sem búsettir væru hérlendis, gætu fengið löggildingu sem endurskoðendur væru jieir til jiess hæfir að öðru leyti. Þá er einnig opnaður mögu- leiki fvrir því að maður yngri en 25 ára geti fengið löggildingu jsótt litlar líkur séu 52

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.