Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Qupperneq 16

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Qupperneq 16
mikilvægasta undantekningin þátttöku í fiskveiöum. Gert var ráð fyrir að erlendir eignaraðilar gætu keypt hér fasteignir að svo miklu leyti, sem þær væru nauð- synlegar til viðkomandi atvinnurekstrar. Þá var gert ráð fyrir almennum íhlutunarrétti stjórnvalda varðandi er- lenda fjárfestingu. ef um stórvægilega hagsmuni þjóðar- innar væri að ræða. eða það sem í ýmsum alþjóðasamn- ingum er á ensku nefnt „ vital national interest". I frumvarpinu var byggt á því sem almennri reglu , að framkvæmdastjórar og meirihluti stjórnarmanna væru búsettir hér á landi og er það gert til að tryggja það. að hægt sé án mikillar fyrirhafnar að stefna þcim fyrir íslenska dómstóla. Síðan hefur það hins vegar gerst, að íslendingar hafa undirritað svokallaðan „Lug- ano“- samning, sem mælir fyrir um fullnægju dóma, sem kveðnir eru upp í aðildarrfkjum samningsins, þannig að fullnægja má dómi, sem kveðinn er upp hér á landi með aðstoð fógeta í Þýzkalandi og gagnkvæmt. Þessi samningur hefur enn eigi verið fullgiltur hér á landi, en verði það gert er fallin brott ein meginfor- sendan fyrir búsetu- skilmálum í sambandi við fyrir- tæki, sem eru í erlendri eigu. HEIMILD ÍSLENSKRA AÐILA TIL AÐ EIGA HLUT f ERLENDUM FYRIRTÆKJUM Um heimild íslenskra aðila til þess að eiga hlut í er- lendum fyrirtækjum er það að segja, að hún er háð sér- stökum leyfum. Slík leyfi hafa á undanförnum árum einkum verið veitt í sambandi við fullvinnslu íslenskra sjávarafurða á erlendri grund og vegna sölustarfsemi á íslenskri framleiðslu. Svo nefnd séu dæmi um þessi leyfi vil ég nefna að nokkrir aðilar hafa fengið leyfi til að fjárfesta í fisk- vinnslu- og fisksölufyrirtækjum í Skotlandi og Eng- landi, tvö útgerðarfyrirtæki eru með dótturfyrirtæki í Panama og eitt á eyjunni Antigua, Islendingar hafa lagt fram hlutafé í færeyskt skipafélag, sem einkum þjónar vöruflutningum til Austfjarða, framleiðendur voga og annars búnaðar í fiskvinnslustöðvar hafa sett á fót sölu- og þjónustufyrirtæki erlendis, Islenskir aðilar eiga og reka meðferðarstöð fyrir alkóhólista í Danmörku, ís- lenskir hvítasunnumenn eiga hlut í sjónvarpsfyrirtæki í Svíþjóð, framleiðendi fiskibáta úr trefjaplasti hefur sett upp verksmiðju í Færeyjum og líkamsræktarmaður einn hefur fengið leyfi til þess að flytja fjármagn til fjárfest- ingar í líkamsræktarstöð í bænum Inverness í Skotlandi. Þá rekur íslenskur aðili af tyrkneskum uppruna verk- smiðju í Tyrklandi. En eins og áður segir er þctta allt háð leyfum gjald- eyrisyfirvalda og hefur mér virst að veruleg forsjár- hyggja sé ráðandi þar á bæ, menn vilji verja íslenska „sveitamcnn" fyrir fjárfestingar- freistingum í útlönd- um, sem geti orðið þeim til tjóns. BREYTINGAR í VÆNDUM Ég hef hér minnst á örlög frumvarps til laga um fjár- 16 festingu erlendra aðila í atvinnurekstri á íslandi, sem dagaði uppi á Alþingi vorið 1988, en rétt er að geta þess að við höfum á síðari árum ávallt gert fyrirvara í alþjóð- legu samstarfi að því er varðar fjármagnsflutninga milli Islands og annarra landa. Má þar nefna almennan fyrir- vara okkar gagnvart reglum OECD um fjármagnsflutn- inga og fyrirvara, sem nýlega var gerður varðandi efna- hagsáætlun Norðurlandaráðs sem ráðherranefnd Norð- urlandaráðs samþykkti í nóvembcr 1988. Nú standa hins vegar yfir viðræður milli EFTA-ríkja og Evrópubandalagsins um myndun evrópsks efnahags- svæðis eða EES, en þar yrði um að ræða fríverslun með vörur og þjónustu í 18 ríkjum, þ.e. Evrópubandalags- ríkjunum 12 og EFTA-ríkjunum 6. I þessum viðræðum er mikil áhersla lögð á það af hálfu Evrópubandalagsins að aflétt verði hömlum á fjármagnsflutningum yfir landamæri og hömlum á stofnsetningu eða kaupum á fyrirtækjum og aðstöðu. sem tengjast fríversluninni. Forsvarsmönnum Evrópubandalagsins er Ijóst , að viss- ar undantekningar hljóta að verða frá sh'kri meginreglu t.d. varðandi fjárfestingu í fiskveiðum hér á landi og að í öðrum tilvikum þarf nokkurn aðlögunartíma t.d. varðandi fjárfestingu erlendra aðila í „viðkvæmum" greinum, þar sem að hálfu heimamanna er borið við því sem á enskri tungu nefnist: „vital national interest". En verði af samningum um EES, sem vissulega myndi hafa jákvæð áhrif á efnahagsþróun í öllum V-Evrópuríkjum, þyrftum við að dusta rykið af frumvarpinu fyrrnefnda og reyndar samræma það í öllum meginatriðum . því sem nefnt er „acquis communautaire", en þar er um að ræða þær reglur sem aðildarríki Evrópubandalagsins hafa þegar náð samkomulagi um. Sumir kunna að halda því fram, að við slíka breyt- ingu muni erlendir aðilar á svipstundu kaupa upp allt íslcnskt atvinnulíf, meðan að Islendingar fjárfesti helst í börum á sólarströndum. Ég held að ástæðulaust sé að óttast slíkt. Eins og arð- semi íslenskra atvinnuvega er háttað um þessar mundir er fullyrðing um fjárfestingu erlendra aðila hér á landi fjarstæða og ég hef þá trú að Islendingar muni fara sér hægt við fjárfestingar í atvinnulífi annarra ríkja, enda sýnir reynslan okkur það . Þrátt fyrir þau dæmi sem ég nefndi , hefur lítið verið leitað eftir heimildum til fjár- festinga erlendis. Ég tel því . að við venjulegar aðstæð- ur myndi fjárstraumar í báðar áttir verða hægir. Það sem við þurfum fyrst og fremst að varast , er að verða einhvers konar „hráefnisnáma" fyrir erlend fyrirtæki, sem síðan hirða virðisaukann af fullvinnslu og sölu ís- lenskra afurða á erlendri grund. En á mörgum sviðum gctum við haft verulegan hag af fjárfestingu erlendra aðila og þeirri yfirfærslu tækni- og markaðsþekkingar, sem fjárfestingunni er samfara. Fyrir nokkrum árum var mikið rætt um fjárfestingu Bandaríkjamanna í Evrópu. Franskur athafnamaður og ritstjóri skrifaði metsölubók um hina „bandarísku ógn- un“, þar sem hann varaði við því að allt atvinnulíf í

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.