Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Blaðsíða 36

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Blaðsíða 36
Frá fastanefndum FLE Menntunarnefnd FLE Starl' menntunarnefndar var meö hefðbundnum hætti á liðnu starfsári. Haldin voru námskeið um enfi tengd starfi cndurskoðenda. Eins og fram kemur í ársskýrslu stjórnar FLE hefur menntunarnefndin staðið að undirbúningi námskeiða um skattamál, endurskoðun og reikningshald. Auk þess vann nefndin að faglegum hluta hinnar árlegu sumarráðstefnu, þar sem tekin voru fyrir málefni sem tengjast viðskiptatengslum Islands við önnur lönd, um hlutabréfamarkaði, skattlagningu arðs og hlutafjáreign- ar. Framkvæmdastjóri danska endurskoðendafélagsins. Uffe Conrad. Ilutti erindi um starfsemi danska félagsins og um ábyrgð og skyldur endurskoðenda. Brotið var blað í sögu félagsins í októbermánuði s.l., er haidin var fyrsta ráðstcfna á vegum íslenskra endurskoðenda á er- lendri grund. Ráðstefnan sem var í Endinborg í Skot- landi tókst vel, en ráðstefnuefnið var undirbúið í sam- ráði við The Institute of Chartered Accountants of Scotland og voru fyrirlesarar fengnir frá þeim. Nefndin hélt marga fundi við undirbúning nám- skeiða, einnig voru haldnir fundir með fyrirlesurum eins og ástæða þótti til. Öll námskeið hafa verið vel sótt og félagsmenn með því sýnt félagsstarfinu áhuga. Ahugi félagsmanna fyrir fundum og námskeiðum á vegum félagsins undanfarin ár leiðir hugann að því hvernig best verði staðið að menntunarmálunum á komandi árum. Menntunarnefndin sem starfað hefur nú um nokkur ár hefur verið í samstarfi við stjórn fé- lagins á hverjum tíma um efni og tilgang námskeiða og hefur samstarfið gengið vel. Athuga mætti þó hvort nefndin ætti ekki að vera sjálfstæðari og ábyrg fyrir menntunarmálum á vegum félagsins. Mikilvægt er að gott samband sé á milli menntunarnefndarinnar og þeirra fagnefnda sem starfa innan félagsins. Til mikilla bóta teldi ég vera, ef skilgreint væri hvert það samband ætti að vera. Endurskoðunarnefnd og reikningsskila- nefnd vinna að ýmsum málum sem varða starf endur- skoðenda og er þá gott að kynna efnið fyrir félags- mönnum í samráði við menntunarnefndina. Það gæfi félagsmönnum tækifæri til að hafa nokkur áhrif á gang mála og kæmi í veg fyrir að menntunarnefndin væri að vinna að undirbúningi ótímabærra námskeiða um efni sem væri í skoðun og vinnslu hjá fagnefndunum. Námskeið á vegum félagsins og menntunarnefndar- innar hafa ætíð verið opin öllum félagsmönnum og hef- ur fjöldi þátttakenda ekki verið takmarkaður á þau. A undanförnum árum hafa þátttakendur verið frá 50- 120 og má segja að slíkur fjöldi setji námskeiðunum þær skorður að almenn skoðanaskipti á viðfangsefnum námskeiðanna geta ekki farið fram nema að takmörk- uðu leyti. Væri athugandi að gera tilraun með nám- skeið þar sem þátttökufjöldi væri takmarkaður en nám- skeið endurtekin eftir þörfum. Slík námskeið gæfu þátt- takendum tækifæri til virkari þátttöku. Við undirbúning og skipulag námskeiða þarf mennt- unarnefndin ætíð að vera vel meðvituð um hvaða atriði eru áhugavcrðust á hverjum tíma. Til að svo megi vera þarf nefndin að vera í góðu sambandi við viðskiptadeild Háskóla Islands svo og fræðslunefndir erlendra endur- skoðunarfélaga. Mikilvægt er að menntunarnefndin geti haft beint samband við viðkomandi og þannig fræðst af þeim um uppbyggingu og tilhögun námskeiða. Að síðustu vil ég taka fram að allir þeir sem leitað hefur verið til varðandi fyrirlestra, ábendingar og öll störf við undirbúning og framkvæmd námskeiða. hafa tekið okkur vel og ávallt verið til þjónustu reiðubúnir. Nefndin Oytur öllum viðkomandi bestu þakkir fyrir að- stoðina. Þá vil ég færa stjórninni og þó sérstaklega for- manninum þakkir fyrir s’kemmtilegt. traust og gott samstarf. Góðir félagar, starfið í nefndinni hefur verið okkur nefndarmönnum til ánægju og vonandi ykkur til nokkurs gagns, ég flyt ykkur því þakkir nefndarinnar fyrir samstarfið á liðnu ári. Reikningsskilanefnd FLE Reikningsskilanefnd Félags löggiltra endurskoðenda vill að bciðni ritnefndar Álits gera hér stutta grein fyrir því helsta sem nefndin hefur fengist við á síðast liðnu starfsári. Reikningsskilanefnd breytti ekki út frá fyrri venjum sínum á þessu ári varðandi tillögur að leiðbeinandi regl- um um gerð ársreikninga. Nefndin lagði hinsvegar á síðast liðnu hausti fram drög að tveimur álitsgerðum á sviði reikningsskila. Var það gert á mjög fjölmennri ráðstefnu sem haldin var á Akureyri í október. Önnur álitsgerðin fjallaði um bókun fjárfestinga í skuldabréfum og hlutabréfum og var í síðasta blaði Álits fjallað nokkuð um þessi drög og því óþarfi að endurtaka það hér. Hin drögin fjalla um milliuppgjör fyrirtækja. Gerð slíkra uppgjöra hefur færst mjög í vöxt á umliðnum árum. Og nú á tímum gífurlegs samdráttar í efnahagslífinu verðu krafan um gerð slíkra uppgjöra enn brýnni. Bankar og aðrar lánastofnanir krefjast orð- ið þessara uppgjöra frá fyrirtækjum reglulega og jafnvel ekkert síður en ársreikninga. Gæði þessara milliupp- gjöra hafa, fram á hin síöari ár, verið mjög mismunandi og því ekki vanþörf á að ræða þau innan félagsins. Öll- um er Ijóst að gera verður sömu kröfur til þessara upp- gjöra eins og ársreikninganna sjálfra. 36

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.