Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Blaðsíða 17

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Blaðsíða 17
Evrópu yrði í bandarískum höndum innan skamms tíma . Bókin féll vel að skoðunum ýmissa evrópskra þjóðernissinna. sérstaklega þó í Frakklandi, þar sem af- staða ráðamanna og almennings gagnvart hinum eng- ilsaxnesku þjóðum hefur um alllangt skeið einkennst af einhvers konar minnimáttarkennd. En eins og Frakk- inn benti á, þá byggðist fjárfestingin ekki nema að hluta á bandarísku fjármagni. Verulegur hluti fjármagnsins kom frá bankastofnunum og verðbréfamörkuðum í Evrópu. Yfirburðir Bandaríkjamanna voru fyrst og fremst fólgnir í tækniþekkingu og stjórnunarháttum bandarískra stórfyrirtækja. En hrakspárnar rættust ekki og nú er bókin að mestu gleymd. Það sem gerðist var nefnilega, að Evrópumenn tileinkuðu sér hina nýju þekkingu og nú eru það evrópsk fyrirtæki, sem ásamt Japönum eru að kaupa upp allt sem arð gefur í Banda- ríkjunum. Ognunin hefur snúist við og nú eru það bandarískir þjóðernissinnar sem láta ófriðlega og krefj- ast þess að hömlur séu settar á fjárfestingu erlendra að- ila í landinu. En staðreyndin er sú að bæði Evrópumenn og Bandaríkjamenn hafa stórlega hagnast á þeim fjár- straumum sem verið hafa yfir Atlantshafið og sama er að segja um þá fjárfestingarstrauma, sem eru grundvall- aratriði innan Evrópubandalagsins. Frjálst flæði fjár- magns hámarkar afrakstur í atvinnulífinu og veitir jafnt framleiðslu- sem þjónustufyrirtækjum þá ögrun. sem þau þarfnast til þess að leysa hlutverk sitt í samfélaginu vel af hendi. Það er líka eftirsóknarvert að erlent áhættufé geti komið í stað erlends lánsfjár, sem lánveit- endur lána oftast hingað án nokkurrar áhættu vegna milligöngu ríkisbanka og opinberra sjóða. Þessa staðreynd verðum við íslendingar að þekkja. Við eigum að notfæra okkur það jákvæða við fjárfest- ingu erlendra aðila hér á landi um leið og við eigum að endurvekja þann Væringjaanda, sem forfeður okkar dáðu . Við eigum því einnig í auknum mæli að gera út- rás og notfæra okkur þau tækifæri , sem gefast á er- lendri grund. til þess að afla þjóðinni tekna með fram- leiðslu eða sölu vöru og þekkingar. Niðurlag Ég hef hér reynt að gera umræðuefni mínu nokkur skil að því er varðar staðreyndir . Ég tel æskilegt að opin- ber umræða um þetta mál aukist í samfélaginu, en án slíkrar umræðu munum við búa við óbreytt ástand enn um sinn , sem í raun er óviðunandi. Ég tel að nauðsyn- legt sé að fá hér heildstæða löggjöf um fjárfestingu er- lendra aðila í atvinnurekstri á Islandi og sömuleiðis opnari heimildir fyrir íslenska aðila að fjárfesta í at- vinnurekstri í öðrum löndum. Okkur skortir í raun ákveðnari stefnumörkun löggjafans um fjárfestingar- strauma til og frá landinu, þar sem almennar reglur komi í stað undanþága og leyfisveitinga. Það er mér því ánægjuefni að að fá að ræða um þetta efni á ráðstefnu endurskoðenda og ég vona að það leiði til aukins skiln- ings á nauðsyn breytinga á þessu sviði. 17

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.