Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Blaðsíða 23
VALDIMAR GUÐNASON löggiltur endurskoðandi
SKATTLAGNING ERLENDRA AÐILA,
TVÍSKÖTTUNARSAMNINGAR O.FL.
Grein þessi er að mestu samhljóða erindi sem flutt var á
skattaráðstefnu FLE í janúar 1989
Hér á eftir verður leitast við að gera grein fyrir helstu
lagaákvæðum og reglum sem gilda um fulla og ótak-
markaða skattskyldu annars vegar og takmarkaða
skattkyldu hins vegar. Pá mun fjallað nokkuð um áhrif
ákvæða tvísköttunarsamninga á takmarkaða skatt-
skyldu og loks gerð grein fyrir tvísköttunarsamningum
almennt.
UM ÁKVÆÐI TEKJUSKATTSLAGANNA UM
FULLA OG ÓTAKMARKAÐA SKATTSKYLDU
Um skattskyldu manna er fjallað í 1. gr. laganna en þar
segir að skyldu til að greiða tekjuskatt af öllum tekjum
sínum. hvar sem þeirra er aflað, og eignarskatt af öllum
eignum sínum, hvar sem þær eru. hvíli á þessum mönn-
um:
I fyrsta lagi bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu
þeir sem heimilisfastir eru hér á landi. Hér undir falla
ísl. ríkisborgarar sem hér eiga lögheimili sbr. lög nr. 35/
1960 um lögheimili. Ennfremur ísl. ríkisborgarar sem
flust hafa hingað til þess að setjast hér að þó svo þeir
séu ekki búnir að fá sér lögheimili hérlendis. Þá falla
hér undir ísl. ríkisborgarar sem starfa erlendis fyrir ís-
lenska ríkið eða alþjóðastofnanir. Ennfremur teljast
menn sem dveljast erlendis við nám hafa heimilisfesti
hérlendis í skilningi skattalaga á meðan á námi stendur
sbr. 10. gr. lögheimilislaganna.
í öðru lagi bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu
þeir sem heimilisfastir hafa verið hér á landi en flutt úr
landi og fellt hafa niður heimilisfesti sitt hér, nema þeir
sanni að þeir séu skattskyldir í öðru rfki á sama hátt og
mcnn heimilisfastir þar og hafi fullnægt þar skattskyld-
um sínum. Skattskylda þessi gildir þó aðeins í þrjú ár
frá næstu áramótum eftir brottflutning.
í þriðja lagi bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu
þeir sem dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á
sama almanaksári, þar með talin eðlileg fjarvera héðan
af landinu vegna orlofs og þess háttar.
Hér er þess að gæta að útlendingur sem væri ríkis-
borgari ríkis sem gert hefur tvísköttunarsamning við ís-
land gæti verið vegna slíkra samninga undanþeginn
skattlagningu hérlendis af einhverjum hluta tekna
sinna. Þannig myndi t.d. Dani sem hér starfaði lengur
en í 183 daga á sama almanaksári verða skattskyldur
hér af launatekjum sem hann fengi vegna starfa sinna
hérlendis, en ekki af tekjum sem hann hlyti af fasteign
sinni í Danmörku.
Öðru máli gegnir um menn frá ríkjum sem ekki hafa
gert tvísköttunarsamninga við Island. Þeir bera fulla og
ótakmarkaða skattskyldu af öllum sínum tekjum og
eignum ef þeir dvelja hér lengur en 183 daga á sama
almanaksári.
Þó er heimilt gagnvart slíkum aðilum að beita ákvæð-
um 3. málsgr. 117. gr. tekjuskattslaganna en þar segir
m.a. að sé eigi fyrir hendi samningur við annað ríki um
að komast hjá tvísköttun á tekjur og eignir og skattað-
ili, sem skattskyldur er hér á landi skv. 1. og 2. gr.,
greiðir til opinberra aðila í öðru ríki skatta af tekjum
sínum og eignum sem skattskyldar eru hér á landi og er
þá ríkisskattstjóra heimilt, samkvæmt umsókn skatt-
aðila eða ábendingu skattstjóra, að lækka tekjuskatt og
eignarskatt hans hér á landi með hliðsjón af þessum
skattgreiðslum hans.
Loks bera í fjórða lagi fulla og ótakmarkaða skatt-
skyldu þeir sem ekki falla undir 1.-3. tl. en starfa sam-
tals lengur en 183 daga á sama almanaksári, þar með
talin eðlileg fjarvera frá starfi vegna orlofs og þess hátt-
ar, um borð í loftfari eða skipi sem skráð er hér á landi.
Samskonar ákvæði og getið var um hér að framan í
tvísköttunarsamningnum og í 3. málsgr. 117. gr. gilda
um þessa aðila.
23