Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Síða 48
3.2. Að allar birgðir í eigu fyrirtækisins, og aðeins
þær, komi fram í reikningsskilum og séu metn-
ar í samræmi við lög og góða reikningsskila-
venju.
3.3. Að eðlileg lotun hafi verið viðhöfð að því er
varðar vörukaup og vörusölu í lok reiknings-
tímabils.
3.4. Að framsetning birgða í reikningsskilum sé í
samræmi við lög og góða reikningsskilavenju og
að í þeim komi fram upplýsingar um veðsetn-
ingar og aðrar kvaðir sem á birgðum kunna að
hvfla.
4. ENDURSKOÐUN:
4.1. Endurskoðandi skal komast að rökstuddri nið-
urstöðu um áreiðanleika í skráningu. talningu
og verðlagningu vörubirgða. Hann þarf þannig
að kynna sér að þær reglur sem fyrirtækið hefur
sett um meðferð vörubirgða séu fullnægjandi og
að eftir þeim sé farið.
4.2. Endurskoðandi skal sannreyna tilvist birgða í
þeim mæli sem hann sjálfur telur nauðsynlegt.
Umfang athugana hans fer eftir innra eftirliti
fyrirtækis, áreiðanleika birgðabókhalds, gerð
vörunnar og mikilvægi vörubirgða sem liðar í
reikningsskilum. Ef endurskoðandi telur ekki
nauðsynlegt að vera viðstaddur vörutalningu
skal hann rökstyðja það í vinnuskjölum sínum.
4.3. Endurskoðandi skal kanna birgðir þcim mun ít-
arlegar sem hætta á villum eða misferli er
meiri. Ekki má þó gera ráð fyrir að aukið eftir-
lit hans geti að fullu bætt upp ágalla í innra eft-
irliti fyrirtækis.
4.4. Endurskoðandi skal ganga úr skugga um að að-
ferðir fyrirtækis við verðlagningu birgða eða
framsetning þeirra í reikningsskilum brjóti ekki
í bága við lög eða góða reikningsskilavenju.
Endurskoðandi skal sannreyna að grein sé gerð
fyrir matsaðferðum og breytingum á þeim í
skýringum í reikningsskilum.
4.5. Ef birgðir eru metnar á öðru verði en kostnað-
arverði skal endurskoðandi fullvissa sig um að
útreikningur þess sé byggður á haldgóðum
gögnum og öruggum upplýsingum.
Nóvember 1989
SKATTSTUDULL OG HÆKKUN BYGGINGARVÍSITÖLU
ÁR SKATTSTUDULL HÆKKUN VÍSITÖLU INNAN ÁRSINS MISMUNUR HLUTFALLSLEGUR MISMUNUR
1979 45,51% 54,26% 8,75 16,13%
1980 54,91% 57,29% - 2,38 - 4,15%
1981 53,49% 45,21% + 8,28 + 18,31%
1982 53,78% 63,04% - 9,26 - 14,69%
1983 71,67% 55,00% + 16,67 + 30,31%
1984 26,72% 19,35% + 7,37 + 38,09%
1985 28,68% 35,14% - 6,46 - 18,38%
1986 28,43% 17,20% + 11,23 + 65,29%
1987 17,95% 17,75% + 0,20 + 1,13%
1988 18,48% 16,22% + 2,26 + 13,93%
1989 22,24% 27,27% - 5,03 - 18,45%