FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 6

FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 6
endurskipulagningar. Endurskoðendur þurfa einnig að vera á varðbergi og, eftir því sem við á, afla viðeigandi og fullnægjandi endurskoðunargagna til staðfestingar á því að ákvæðum laga og reglna hafi verið fylgt við færslu og framsetningu þessara breytinga í reikningsskilum. Hér á eftir ætla ég að fjalla í stuttu máli um nokkrar reglur alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS) sem kann að reyna á vegna endurskipulagningarfjárskulda við gerð og framsetningu reikningsskila skuldara. Þess ber að geta að jafnvel þó að skuldari beitir ekki IFRS við gerð reikningsskila sinna gæti hann verið hluti af samstæðu sem gerir það og því kann að reyna á þessar reglur við gerð samstæðureikningsskila. En jafnvel þó að IFRS sé almennt ekki beitt við gerð reikningsskila tel ég engu að síður fulla ástæðu til að veita þessum reglum athygli. Þá getur endurskipulagning fjárskulda farið fram milli félaga sem eru innan sömu samstæðu og getur endurskipulagningin þá haft áhrif að minnsta kosti á eigin reikningsskil viðkomandi félaga. Eftirgjöf kröfu Alþjóðlegi reikningsskilastaðallinn IAS 39 inniheldur þær reglur sem gilda um mat og færslu flestra fjárskulda. í staðlinum kemur meðal annars fram að fyrirtæki skal færa fjárskuld (eða hluta fjárskuldar, eftir því sem við á) úr efnahagsreikningi þegar og því aðeins að hún hafi verið ógilt, þ.e. þegar skuldbindingin, sem tilgreind er í samningnum, er gerð upp, er numin úr gildi eða rennur út. Eftirgjöf kröfu (sem frá sjónarhóli skuldara er gjarnan kallað „eftirgjöf skuldar") felur í sér að kröfuhafi afsalar sér þeim rétti sem krafan veitir honum og er skuldarinn þar með löglega leystur undan aðalábyrgð á fjárskuldinni. I þessu sambandi skiptir máli að fjárskuldin sé gefin eftir fyrir fullt og allt en ekki þannig búið um hnútana að hún geti vaknað aftur til lífsins í framtíðinni við tilteknar kringumstæður. Eftirgjöf kröfu telst til ógildingar fjárskulda samkvæmt IAS 39 og hefur hún í för með sér að skuldara ber að færa bókfært verð fjárskuldar sem gefin er eftir út úr efnahagsreikningi (í heild eða að hluta, eftir því sem við á). Mótfærslan ræðst hins vegar af því hvort kröfuhafi sé jafnframt hluthafi í skuldara eða ekki. Ef kröfuhafi er hluthafi ræðst mótfærslan af því hvort meðhöndla beri eftirgjöfina sem framlag frá eigenda eða ekki. Ef kröfuhafi er ekki hluthafi í skuldara ber skuldaranum að færa bókfært verð fjárskuldar sem gefin er eftir til tekna í rekstrarreikningi. Sama á við ef kröfuhafi er jafnframt hluthafi í skuldara en ekki er um að ræða framlag frá eiganda í formi eftirgjafar á kröfu. Sé niðurstaðan hins vegar sú að eftirgjöfin feli í sér framlag frá eiganda ber skuldara að færa bókfært verð fjárskuldar sem gefin er eftir beint á eigið fé því óheimilt er að færa í rekstrarreikning áhrif af viðskiptum við eigendur þegar þeir koma fram í viðskiptum í hlutverki eigenda (e. transactions with owners in their capacity as owners). Ákvörðunin um það hvenær hluthafi kemur fram í viðskiptum í hlutverki eiganda og hvenær ekki er háð mati sem ræðst af staðreyndum og kringumstæðum einstakra viðskipta. Breytingar á skilmálum lánasamnings Breytingar á skilmálum lánasamnings geta verið fólgnar í breytingum á lánstímanum, fjárhæð höfuðstóls, vaxtakjörum, gjaldmiðlum sem fjárskuldin er tilgreind f, tryggingum, forgangsröðun krafna við félagsslit eða viðbótarákvæðum um breytirétt fjárskuldar í hlutafé, svo eitthvað sé nefnt. Markmið þeirra er fyrst og fremst að aðlaga greiðsluþyrði fjárskulda að breyttu greiðsluþoli skuldara. Þess ber þó að geta að breytingar á tímasetningu eða fjárhæð greiðslna sem gerðar eru á grundvelli gildandi samningsákvæða, svo sem hækkun vaxta vegna lækkunar á lánshæfismati skuldara, teljast ekki til breytinga á skilmálum lánasamnings. Reikningshaldslegu álitaefnin sem vakna þegar skilmálum lánasamninga er breytt eru fjölmörg. Eitt þeirra sem getur haft töluverð áhrif á rekstrar- og efnahagsreikning skuldara er hvort breytingarnar teljast verulegar í skilningi IAS 39 eða ekki. Engu máli skiptir í þessu sambandi hvort breytingarnar stafa af fjárhagserfiðleikum skuldara eða ekki. Sé niðurstaðan sú að breytingar teljast verulegar ber skuldara samkvæmt IAS 39 meðal annars að færa upphaflegu fjárskuldina út úr efnahagsreikningi og færa nýja fjárskuld í staðinn og meta hana í upphafi á gangvirði. Mismun milli gangvirðis nýrrar fjárskuldar og bókfærðs verðs upphaflegrar fjárskuldar ber skuldara að færa sem hagnað eða tap í rekstrarreikningi (þ.e.a.s. að því gefnu að ekki sé um að ræða viðskipti við eigendur þar sem þeir koma fram í hlutverk eigenda, sbr. umfjöllun hér að framan). Gangvirði nýrrar fjárskuldar kann að vera töluvert lægra en bókfært verð upphaflegrar fjárskuldar t.d. vegna þess að staða skuldara hefur versnað töluvert frá þeim tíma þegar hann stofnaði til upphaflegrar fjárskuldar. Því getur hagnaður sem skuldara ber að færa til tekna í rekstrarreikningi vegna skilmálabreytinga verið umtalsverður. Þessi niðurstaða virðist óskynsamleg við fyrstu sýn því hún felur í sér að fyrirtæki sem er í skuldavanda getur lagað eiginfjárstöðu sína með því einu að breyta skilmálum lánasamninga. En það sem er líklegast að gerist í raun er að skuldari fái nýtt lán á kjörum sem eru undir markaðskjörum hans (með hliðsjón af slæmri stöðu hans) og að það feli í sér ávinning sem skuldara ber að færa til bókar samkvæmt reglum alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Skilmálabreytingar gætu þess vegna verið framkvæmdar með þeim hætti að skuldari afhendir kröfuhafa nýja skuldarviðurkenningu í skiptum fyrir reiðufé frá kröfuhafanum (sem samsvarar gangvirði nýju skuldarviðurkenningar) og síðan endurgreiðir skuldarinn reiðuféð til baka til kröfuhafans í formi endanlegs uppgjörs á upphaflegri fjárskuld. í slíkum viðskiptum þyrfti skuldari að færa nýja fjárskuld á gangvirði, færa upphaflega fjárskuld út úr efnahagsreikningi og færa mismuninn á fjárhæð reiðufjár og bókfærðs verðs upphaflegrar fjárskuldartil tekna í rekstrarreikningi. í raun gerir IAS 39 engan greinarmun á því hvort um sé að ræða verulegar breytingar á skilmálum gildandi lánasamnings eða skipti skuldara og kröfuhafa á skuldaviðurkenningu með verulega ólíkum skilmálum. Sömu reglur gilda um báðar þessar leiðir. Þess skal getið að skuldara ber að ákvarða gangvirði nýrrar 6 • FLE blaðiðjanúar 2010

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.