FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 16

FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 16
Löggildingin er einhvers staðar ofan í skúffu - viðtal Sigurður Stefánsson starfaði sem löggiltur endurskoðandi 1949-1993 Hann gengur fimm kílómetra á dag, léttur í spori eins og unglamb þótt hann sé kominn vel yfir áttrætt, fæddur í júní 1923. Sigurður Stefánsson heitir hann og starfaði sem endurskoðandi frá því 1949 allt fram til sjötugs en þá fannst honum tími til kominn að gera eitthvað annað en að vinna. Hann fagnaði þeim áfanga á síðasta ári að liðin eru 60 ár frá því að hann hlaut löggildingu sem endurskoðandi. Hógværðin uppmáluð „Ég er alveg prýðilega sáttur með þetta val á ævistarfi" segir hann þegar hann er spurður út í ástæður þess að hann gerðist endurskoðandi. „ Ég fór í Verslunarskólann og var sæmilegur í bókhaldi" bætir hann við af mikilli hógværð. Reyndin er sú að hann glansaði á prófunum og fékk bókhaldsbikarinn sem veittur var þeim nemendum sem stóðu sig afburða vel. Þeir sem ráku þessar örfáu endurskoðunarstofur í landinu voru svo í sambandi við skólann og sátu fyrir þessum kláru nemendum til að fá þá í vinnu. Endurskoðunarstofan Manscher & Co. réði því Sigurð í vinnu tvítugan að loknu verslunarskólaprófi. Nám endurskoðenda Árið 1946 eða 47 var stofnuð námsbraut í viðskiptafræði HÍ fyrir verðandi endurskoðendur. í upphafi var kennt á kvöldin frá september til desember og tók námið tvo vetur. „Gylfi Þ. Gíslason kenndi bókhald og reikningsskil - hann passaði svo vel upp á brotin í buxunum sínum að hann settist varla niður" segir Sigurður og kímir svolítið við minninguna. „Það voru margir mætir menn sem kenndu þarna með honum" segir hann „og svo voru haldin munnleg og skrifleg próf" bætir hann við. Prófnefnd löggiltra endurskoðanda var þá tekin til starfa og sá um prófin og þá var vinnuskyldan á stofunum að lágmarki fjögur ár áður en hefja mátti námið. Prófin tóku tvo daga og voru haldin í ráðuneytinu. „Bjarni Benediktsson skrifaði undir mína löggildingu sem er líklega einhvers staðar niður í skúffu" svarar hann og finnst ekki mikið til um að vera handhafi elsta löggildingarleyfisins á lífi í dag. Þér um yður... „Ég var ( starfsnámi hjá Sigurði Jónssyni og Jóni Guðmundssyni í Manscher & Co. Á þessum tíma var ég annar af tveimur nemendum og á stofunni unnu sex manns fyrir utan skrifstofudömurnar. Þá var mikið lagt upp úr snyrtilegum klæðnaði og maður þurfti að þéra yfirmennina. Þeir buðu mér reyndar dús þegar hálft ár var liðið. Með þérun var hægt að halda fólki í svolítilli fjarlægð en nú þérar enginn í dag, fólk kann þetta líklega ekki lengur" segir hann og brosið nær svo sannarlega til augnanna. Allttalið með mikilli nákvæmni „Það fyrsta sem ég þurfti að gera í vinnunni hjá Manscher & Co. var að leggja saman allar sölubækur ÁTVR, en þá var öll salan færð í venjulegar nótubækur í þríriti. Svo þurfti ég að endurskoða hluta af bókhaldinu og meira að segja fara í lagertalningu um áramótin. Lagerinn var niðri á Skúlagötu og þetta var nokkurra daga vinna að telja allar flöskurnar sem stóðu í miklum trérekkum og allt var talið af mikilli nákvæmni" svarar hann þegar fyrstu verkefni ber á góma. Fengum laun eins og búðarfólk „Launin voru léleg á skrifstofunni, ég fékk nokkurs konar nemalaun sem stóðu nánast óbreytt þar til löggildingin fékkst. Þetta var svona svipað og fyrir afgreiðslu í búðum" segir hann og hristir höfuðið yfir óréttlæti heimsins. „Taxtarnir voru mjög lágir en líklega vegna þess að stéttin var að marka sér sess. Þetta var í lok stríðsins og svo fór þetta aðeins að hífast upp á við, en kúnnarnir voru svo sem ekki burðugir heldur á þessum tíma" bætir hann svo við til skýringar. Langur vinnutími „Vinnutíminn eftir áramót var frá níu að morgni til klukkan sjö á kvöldin eða lengur, sérstaklega á vorin alveg fram í júní. Þá var almennt unnið á laugardögum og oft á sunnudögum líka" segir hann og rifjar upp ferð til Danmerkur sem hann fór ásamt félaga sínum og þar var svipað fyrirkomulag. Það að vera með bókhaldsþjónustu líka jafnaði vinnutímann yfir árið því að júnímánuði loknum var svo farið í bókhaldið. Það var lítið um milliuppgjör en í þessum tveimur fyrirtækjum sem ég vann með, Vífilfelli og Kol og salt, var gert upp mánaðarlega. Það var alltaf unnið mikið um páskana en við fengum jólafrí og þriggja vikna sumarfrí" segir hann eftir að hafa útskýrt vinnufyrirkomulagið sem auðvitað ber keim af lögbundnum verkefnum enn þann dag í dag. Sérhæfður í sjávarútvegi Sigurður hætti síðan hjá Manscher & Co. árið 1952 og stofnaði eigin stofu. Hann vann aðallega fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, fiskvinnslustöðvar og útgerð um allt land. Hann þurfti því að ferðast töluvert mikið um landið en þá voru frystihúsin að byggjast upp. Því má segja með sanni að hann hafi fljótlega sérhæft sig á þessu sviði. Magnús Elíasson endurskoðandi var fyrsti starfsmaður Sigurðar og síðar meðeigandi að stofunni. 16 • FLE blaðið janúar 2010

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.