FLE blaðið - 01.01.2010, Qupperneq 15

FLE blaðið - 01.01.2010, Qupperneq 15
einnig ábyrgð á þeirri túlkun á stöðlum sem þeir nota í vinnu sinni. Lesandi ársreikninga í Evrópu getur því séð á árituninni hvaða endurskoðandi er ábyrgur fyrir vinnunni. Regluverkið Gagnsæi er mjög mikilvægt og áberandi í IFRS stöðlunum. Grunnhugsunin er einföld en hún gengur út á það að lesandi ársreiknings eigi að fá skv. þeim fullnægjandi upplýsingar til þess að geta tekið ákvörðun t.d. um kaup í félagi. Bandaríkin miða við sérsniðna staðla í meira mæli en IFRS sem er til komið að því að of flóknir staðlar og regluverk eru ekki alltaf til þess fallnir að koma að skýrari upplýsingum. Bandaríkjamenn hafa lært í gegnum tíðina að fullkomnari reikningsskilareglur finnast frekar í vel hugsuðum og túlkuðum markmiðum frekar en í flóknum og óskiljanlegum reglum þar sem alltaf finnast göt í regluverkinu. Ef reikningsskil eru skoðuð hér á landi þá gengur innleiðing gagnsæis frekar hægt. Endurskoðendur og stjórnendur halda oft að lesandi hér skilji meira en hann gerir. Menn eru líka hræddir við að gefa of miklar upplýsingar sem samkeppnisaðilar geti svo nýtt sér. Það er þó mikilvægt að lesandi geti fengið sem gleggsta mynd af stöðu fyrirtækisins frá skýringum skrifuðum á mannamáli svo hægt sé að meta betur áhættuna sem felst í fjárfestingum. Sem dæmi má sjá að í Bandaríkjunum eru menn oft búnir að meta áhættuna frá mörgum hliðum og taka tillit til óvissu í umhverfinu þar sem fyrirtæki starfa. En þrátt fyrir það kemur alltaf eitthvað upp sem ekki var búið að útskýra nógu vel fyrir þeim sem höfðu hagsmuna að gæta í rekstrinum. Ef skýringar gagnvart áhættu og óvissu eru ekki góðar, skiljanlegar, gildar og gagnsæjar þá rýrir það traust bæði fyrir viðskiptavininn og endurskoðunarfyrirtækið og það er slæmt. Hlutverk endurskoðenda Það fyrsta sem ég rak augun í þegar ég kom hingað heim er að hlutverk endurskoðenda er annað en í Bandaríkjunum. Mikil virðing er borin fyrir endurskoðendum þar og menn jafnvel hræðast þá svolítið. Það sýnir sig t.d. í því að þar ytra eru menn alveg tilbúnir með öll gögn sem endurskoðandinn þarf aðgang að en hér heima þarf meira að toga upplýsingar og gögn út úr viðskiptavininum. Endurskoðendur eyða því allt of miklum tíma í gagnaöflun hér heima. Viðskiptavinir hér á Islandi vilja að endurskoðendur aðstoði við gerð skýringa í reikningsskilum og vinni jafnvel líka hluta af reikningsskilunum sjálfum. Það er gott að sjá að stjórnendur virðist yfirleitt treysta endurskoðendum mjög vel hérna. Kannski líta sumir stjórnendur á okkur sem mikilvægan hluta af þeirra innri eftirliti og eru því ekki með eins virkt innra eftirlit og tíðkast í Bandaríkjunum. Þar er það yfirleitt miklu skilvirkara og innbyggt í starfsemi fyrirtækjanna í Bandaríkjunum. Endurskoðendur gefa fyrst og fremst álit á reikningsskilum en þeir byggja mun meira á úrtaksskoðunum á innra eftirliti til þess að meta það, samkvæmt þremur flokkum. Enginn vill lenda í versta flokknum en veikleiki þar getur haft áhrif á sjálft reikningshaldið. Þessir flokkar eru gerðir með gagnsæi og lesanda ársreikninga í huga. Það má segja að umræðan um innra eftirlit hafi verið dálítið langt á eftir hér á landi, en það er kannski líka ekki svo slæmt því innra eftirlit í Bandaríkjunum hefur reynst allt of kostnaðarsamt fyrir fyrirtækin, þegar Sarbanes Oxley (SOX) reglurnar tóku fyrst gildi. Þar en nú unnið að því að einfalda eftirlitið. Mikilvægast er þó að endurskoðendur kanni hvort að stjórn er að viðhalda innra eftirliti allt árið um kring. Sérhæfing í Bandaríkjunum hefur verið borin mikil virðing fyrir stéttinni sem byggð er á trausti í sérhæfingu. Þar er orðin mikil sérhæfing enda endurskoðunarstofurnar stórar, en þetta hefur líka sína galla. Flér heima finnst mér þetta að mörgu leyti vera betra. Það má líkja íslenskum endurskoðendum við svissneskan vasahníf - þeir geta gert svo margt enda látnir vinna með mörgum viðskiptavinum og að alls konar verkefnum fyrstu árin. Endurskoðandi þarf að geta sett upp marga hatta og horft á málin frá sjónarhóli lögfræði, bókarans, eftirlitsmanns og fleiri aðila. í Bandaríkjunum verða menn sérhæfðir mjög fljótt en vantar þá yfirsýn og reynslu til að ráða við önnur mál. Símenntun Löggiltir endurskoðendur þurfa ekki að skila inn endurmenntunareiningum fyrstu tvö árin eftir að þeir fá löggildingu. Menntunareiningar kallast CPE (Continuing Professional Education) og eru svipaðar og hér á landi. Fyrir utan ráðstefnur og námskeið í endurmenntun eins og má finna hér á landi þá eru í Bandaríkjunum umræðuhópar sem endurskoðendur geta skráð sig í og fengið einingar fyrir. Hóparnir eru yfirleitt fámennar eða 25 manns að hámarki. Þeir hittast reglulega og þar fer fram fagleg umræða. Þessir hópar geta stundum haft áhrif á nýjar endurskoðunar- og reikningsskilareglur með því að undirbúa sameiginlega skoðun á einhverjum tæknilegum málum sem er svo samþykkt af AICPA eða NYSSCPA (New York State Society of Certified Public Accountants) og skila til IFAC, SEC, PCAOB, o.s.frv. í New York svæðinu eru sem dæmi um það þil 20 hópar starfandi. Menn eru hvattir til þess að vera virkir í nefnd eða einhverjum hópi en þar öðlast menn reynslu, kynnast innbyrðis og mynda sambönd og tengsl. Almennt má segja að hvort heldur sem er í Bandaríkjunum eða hér heima á íslandi, þá eru þetta spennandi tímar að vinna við endurskoðun og framtíðin á þessu sviði er björt. Guðmundur Páll Atlason FLE blaðið janúar 2010 • 15

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.