FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 17

FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 17
Varð að fá sendar almennilegar ullarbuxur „Ég man vel eftir því að árið 1950 var ég sendur norður í land að endurskoða Siglufjarðarbæ ásamt rafveitu og verksmiðju sem bærinn átti og sitthvað fleira. Þegar ég skoðaði aðalbókina til að sjá ársbyrjunartölurnar - þá var hún ekki til. Það var hins vegar til prentaður ársreikningur svo ég tók hann upp á ballansinn, en hann var rangur, ég varð því að fara aftur í tímann til að fá réttar tölur. Ég lenti því í miklum vandræðum með að ná þessu heim og saman en þetta blessaðist þó allt. Ég var reyndar svolítið hissa þegar bókhaldið stemmdi við sjóðseign og bankainnistæður" segir hann. Sérstaklega man hann eftir kuldanum á Siglufirði. „Það var svo kalt á skrifstofunni þarna að ég varð að fá sendar almennilegar ullarbuxur að heiman til þess að geta unnið þarna" segir hann og hristir hausinn yfir þessum minningum. Tæknin hefur breytt miklu „Mesta breytingin í faginu er tölvuvæðingin en með henni minnkuðu líka samskiptin. Það var allt miklu persónulegra hér áður fyrr og mikið atriði að geta átt góð samskipti við fólk. Fjarskiptin hafa líka breytt mjög miklu og svo tæknin eins og rafmagnsreiknivélarnar sem komu eftir stríðið og léttu mönnum lífið, eins var þetta með Ijósritunarvélarnar". Sigurði gekk reyndar mjög vel að tileinka sér tæknina enda með góðan grunn í vélritun frá Versló. Að lokum Sigurður er kvæntur Önnu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn og 12 afkomendur til viðbótar. Björg dóttir hans er endurskoðandi hjá Deloitte, annar sonurinn vinnur við bókhald og hinn er framkvæmdastjóri við skipasmíðastöð suður í Njarðvíkum. Hann stendur upp, réttir úr bakinu, tekur upp bíllyklana og kveður með þau heilræði á vörum „að endurskoðendum farnist vel ef þeir eru samviskusamir og standi fast á sínu". ÉNorræna endurskoðendasambandið Margret G. Ftóvenz er forseti NRF og löggiltur endurskoðandi hjá KPMG hf. Norræna endurskoðendasambandið (NRF) var stofnað í Ósló árið 1932 og er að líkindum elsta fjölþjóðlega félag endurskoðenda í heiminum. Félög endurskoðenda á öllum Norðurlöndunum eiga aðild að sambandinu. Þar til síðast liðið sumar voru aðildarfélögin fimm en að aðalfundi sambandsins í ágúst 2009 bættus við tvö aðildarfélög þ.e. félög skráðra endurskoðenda í Finnlandi og Danmörku. Verkefni sambandsins eru fjórþætt. f fyrsta lagi hafa norrænu endurskoðenda félögin sameinast undir nafni NRF um að tilnefna fulltrúa í nefndir og ráð á vegum alþjóðlegra samtaka endurskoðenda, fyrst og fremst Alþjóðasambands endurskoðenda (IFAC) og Evrópusambands endurskoðenda (FEE). Þessar sameiginlegu tilnefningar hafa leitt til þess að Norðurlöndin hafa átt mun fleiri fulltrúa hjá þessum stofnunum en ella. Sem stendur er einn af varaforsetum IFAC og verðandi forseti þess, Göran Tidström, tilnefndur af NRF auk þess sem Kristrún Ingólfsdóttir á sæti í menntunarnefnd IFAC sem fulltrúi NRF. Nokkuð er á brattann að sækja varðandi aðild að nefndum og ráðum beggja þessara samtaka enda hafa fulltrúar annarra heimshluta sóst í auknum mæli eftir þátttöku í alþjóðastarfi. Annað af meginhlutverkum NRF er miðlun upplýsinga á milli Norðurlandanna og hefur sá þáttur í starfseminni orðið FLE og íslenskum endurskoðendum að miklu gagni. I þriðja lagi hefur NRF unnið að ýmsum sameiginlegum verkefnum og hafa þá verið myndaðir tímabundnir vinnuhópar um þau verkefni. Nú sem stendur er vinnuhópur um endurskoðun smárra og meðalstórra fyrirtækja að störfum. Fjórða meginverkefni NRF er skipting kostnaðar en aðildarfélögin deilda með sér kostnaði við samstarfið og þátttöku í alþjóðlegu starfi. Kostnaðarhlutdeild FLE er 5%. Þessi kostnaðarskipting er ekki síst mikilvæg fyrir lítil félög eins og FLE enda hefði félagið illa bolmagn til að fjármagna setu eigin fulltrúa í alþjóðlegum nefndum að öðrum kosti. NRF hafði til skamms tíma aðsetur í Stokkhólmi en hefur nú flutt skrifstofu sína til Kaupmannahafnar. Bjöm Markland sem gengt hefur stöðu framkvæmdastjóra sambandsins um alllangt skeið lætur af störfum nú um áramótin og við tekur Jens Röder og mun hann gegna starfi framkvæmdastjóra i fullu starfi. Ekki eru fleiri starfsmenn hjá sambandinu. Aðalfundur NRF er haldinn í ágúst ár hvert og sækja hann formenn, varaformenn og framkvæmdastjórar aðildarfélaganna. Fundurinn er haldin til skiptis í löndunum fimm og kemur það í hlut FLE að halda hann á íslandi árið 2010. Formennska sambandsins færist einnig reglubundið á milli landa en forseti FLE blaðið janúar 2010 • 17

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.