FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 32
Nýjar siðareglur fyrir endurskoðendur
Guðmundur Snorrason er formaður siðanefndar FLE
og löggiltur endurskoðandi hjá PwC hf.
Á aðalfundi Félags löggiltra endurskoðenda (FLE) þann 14.
nóvember síðastliðinn voru samþykktar nýjar siðareglur sem
gilda munu fyriralla endurskoðendur á íslandi.
Þessar reglur byggja á siðareglum alþjóðasamtaka
endurskoðenda (IFAC) „Code of Ethics for Professional
Accountants" frá júní 2005 ásamt breytingum á óhæðiskafla
reglnanna sem siðanefnd IFAC samþykkti í janúar 2008.
FLE er aðili að IFAC en tilgangur samtakanna samkvæmt
stofnskrá er „þróun og efling endurskoðendastarfsins á
heimsvísu með samræmdum stöðlum til að geta veitt sem
besta þjónustu í almannaþágu." í þessu skyni er starfandi
sérstök siðanefnd IFAC til að þróa og gefa út í sínu nafni
siðareglur fyrir endurskoðendur um allan heim. Sem
aðildarfélag að IFAC ber FLE að stuðla að upptöku siðareglna
þeirra sem samtökin gefa út og ekki setja sér vægari viðmið en
þar er lýst.
Siðanefnd er ein af fastanefndum FLE og hefur það
hlutverk að fylgjast með þróun siðareglna endurskoðenda á
alþjóðavettvangi og gera tillögur að breytingum á siðareglum
félagsins þegar tilefni er til. Það varð því hlutverk nefndarinnar
að þýða siðareglur IFAC.
Samkvæmt lögum um endurskoðendur sem tóku
gildi 1. janúar 2009 skulu allir endurskoðendur á íslandi
fylgja siðareglum sem settar hafa verið af Félagi löggiltra
endurskoðenda. Með samþykkt aðalfundar FLE á siðareglunum
og að fenginni staðfestingu ráðherra á þeim, öðlast þær
formlega gildi.
Þessar nýju reglur ákvarða siðferðilegar kröfur til
endurskoðenda. Aðalsmerki endurskoðenda er að starfa með
hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi og felst ábyrgð þeirra því
ekki eingöngu í því að uppfylla þarfir einstaks viðskiptavinar eða
vinnuveitanda. Við störf sín skal endurskoðandi virða þessar
siðareglur.
Siðareglurnar skiptast í þrjá hluta:
• A hluti - Almenn notkun reglnanna (tekur til allra
endurskoðenda)
• B hluti - Endurskoðendur sem starfa við endurskoðun
■ C hluti - Endurskoðendur sem starfa við annað en
endurskoðun
í A-hluta er lýst grundvallaratriðum siðareglna endurskoðenda
og úrlausnaraðferðum við beitingu þeirra. Úrlausnaraðferðirnar
eru leiðbeiningar um beitingu grundvallarreglnanna.
Endurskoðendum er skylt að beita þessum úrlausnaraðferðum
til að greina og meta vægi ógnana sem geta leitt til þess
að þeir nái ekki að fylgja grundvallarreglunum. Ef slíkar
ógnanir eru aðrar en greinilega óverulegar þá skulu þeir beita
varúðarráðstöfunum til að eyða þeim eða draga úr þeim svo
þær verði ásættanlegar þannig að eftir grundvallarreglunum sé
farið.
í B- og C- hluta reglnanna er lýst hvernig beita á
úrlausnaraðferðum við tilteknar aðstæður. Þar eru gefin dæmi
um viðeigandi varúðarráðstafanir til að bregðast við ógnunum
við fylgni við grundvallarreglurnar. Lýst er aðstæðum þar sem
varúðarráðstafanir eru ekki tiltækar til að bregðast við ógnunum
sem af þeim leiðir og hvernig komast má hjá verkefni eða
sambandi sem skapar viðkomandi ógnanir. B-hlutinn á við
endurskoðendur sem starfa við endurskoðun. C-hlutinn gildir
um endurskoðendur sem starfa við annað en endurskoðun. Við
tilteknar aðstæður getur verið viðeigandi fyrir endurskoðendur
að nýta sér leiðbeiningar í C-hluta reglnanna.
Ahluti: Almenn notkun reglnanna
í þessum hluta eru settar fram grundvallarreglur sem allir
endurskoðendur skulu hlíta.
Heilindi - Endurskoðandi skal vera hreinskiptinn og heiðarlegur
í öllum samskiptum.
Hlutlægni - Endurskoðandi skal ekki láta hlutdrægni,
hagsmunaárekstra eða óviðeigandi áhrif annarra ráða
dómgreind sinni.
Fagleg hæfni og varkárni - Endurskoðanda er ætíð skylt
að viðhalda faglegri þekkingu sinni og hæfni til að tryggja
að viðskiptavinur eða vinnuveitandi fái fullnægjandi faglega
þjónustu. Endurskoðandi skal starfa af kostgæfni og í samræmi
við viðurkennda staðla þegar hann veitir faglega þjónustu.
Trúnaður - Endurskoðandi skal gæta trúnaðar í faglegum
og viðskiptalegum samskiptum og ekki veita þriðja aðila
upplýsingar án sérstakrar heimildar nema það sé skylt
samkvæmt lögum eða faglegum kröfum. Slíkar upplýsingar
skulu hvorki notaðar í eigin þágu endurskoðandans né þriðja
aðila.
Fagleg hegðun - Endurskoðandi skal fara að lögum og
reglugerðum og forðast allt sem kastað gæti rýrð á orðspor
endurskoðendastéttarinnar.
32 • FLE blaðið janúar 2010