FLE blaðið - 01.01.2010, Qupperneq 20
hefur eðlilega verið í kastljósinu og mun svo verða áfram
næstu misserin og jafnvel ár. Það er því afar mikilvægt að
halda á lofti þeim gildum sem endurskoðendur standa fyrir og
að Félag löggiltra endurskoðenda standi vörð um þau.
Þrátt fyrir viðsjárverða tíma framundan, og umfjöllun
fjölmiðla um störf endurskoðenda og á stundum óvægna
gagnrýni, þá vil ég leyfa mér að horfa björtum augum fram
á við. Við ætlum okkur að efla félagið okkar og umræðan
um störf endurskoðenda, hvort sem hún hefur verið jákvæð
eða neikvæð sýnir okkur hversu mikilvægt hlutverk okkar er.
Nýtum okkur þá umræðu með jákvæðum hætti og hefjum
hlutverk okkar til vegs og virðingar.
Sigurður B. Arnþórsson
Skattadagur FLE
Skattadagur FLE, ráðstefna um skattamál var haldinn
föstudaginn 16. janúar 2009 í Gullteig, Grand Hótel
Reykjavík. Ráðstefnan var opin og tóku 224 þátt að
meðtöldum fyrirlesurum og gestum. Ráðstefnustjóri var
Árni Tómasson, endurskoðandi. Ráðstefnan gaf 4 einingar í
skatta- og félagarétti. Formaður FLE, Margret G. Flóvenz setti
ráðstefnuna, en síðan var gengið til eftirfarandi dagskrár:
■ Nýlegar breytingar á skattalögum, einnig verður
fjallað um möguleika á nýtingu taps á móti
fjármagnstekjum o.fl.
Elín Árnadóttir, hdl. hjá PricewaterhouseCoopers
hf.
■ Úrskurðir og dómar
Steinþór Haraldsson, skattstjóri í
Suðurlandsumdæmi
Skattlagning í skugga bankahruns
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri.
Skattaumhverfi atvinnurekstrar í núverandi
aðstæðum og næstu misserum
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
Milliverðlagning (Transfer Pricing)
Ágúst Karl Guðmundsson, lögfræðingur hjá
KPMG hf.
Söluhagnaður - sölutap. Eru verðmæti að fara
forgörðum?
Vala Valtýsdóttir, hdl. hjá Deloitte hf.
Endurskoðunardagur FLE
Endurskoðunardagur FLE var haldinn föstudaginn 17. apríl,
2009 í Gullteig, Grand Hótel Reykjavík. Ráðstefnan var opin og
þátttakendur voru 182 að meðtöldum fyrirlesurum og gestum.
Ráðstefnustjóri var Sigurður B. Arnþórsson, framkvæmdastjóri
FLE. Ráðstefnan gaf 4 einingar í endurskoðun. Formaður FLE,
Margret G. Flóvenz setti ráðstefnuna, en síðan var gengið til
eftirfarandi dagskrár:
■ Sviksemi
Lilja Steinþórsdóttir, innri endurskoðandi hjá Nýja
Kaupþingi
■ A new Danish audit standard for SME's ?
Jens Skovby, CEO of RevisorGruppen Danmark
Virðisrýrnunarpróf, framkvæmd endurskoðunar
Birkir Böðvarsson, hagfræðingur hjá Deloitte
Umboðsmaður viðskiptavina bankanna
Brynhildur Georgsdóttir, umboðsmaður
viðskiptavina hjá Kaupþingi.
Siðferði og óhæði
Guðmundur Snorrason, endurskoðandi hjá PwC
Breytingar á lögum um ársreikninga
Helga Harðardóttir, endurskoðandi hjá KPMG
20 • FLE blaðið janúar2010