FLE blaðið - 01.01.2010, Qupperneq 21
Reikningsskiladagur FLE
Reikningsskiladagur FLE var haldinn föstudaginn 18.
september 2009 í Gullteig, Grand Hótel Reykjavík undir
yfirskriftinni: Fjármálakreppan á Islandi - brást umgjörö
reikningsskila? Ráðstefnan var opin og þátttakendur voru
232 að meðtöldum fyrirlesurum og gestum. Ráðstefnan gaf
4 einingar í reikningsskilahlutann. Ráðstefnustjóri var Hildur
Árnadóttir endurskoðandi. Formaður FLE Margret G. Flóvenz
setti ráðstefnuna, en síðan var gengið til eftirfarandi dagskrár:
• Hlutverk fjölmiðla
Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri KOM
• Hlutverk hins opinbera
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
• Hlutverk endurskoðanda
Ólafur Kristinsson, endurskoðandi hjá
PricewaterhouseCoopers
• Siðferði í reikningsskilum
Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við
Háskóla íslands
• Fjármálakreppan á íslandi - ýmis
reikningsskilamál
Jóhann loan Constantin Solomon,
endurskoðandi hjá KPMG hf.
Ráðstefnan var vel sótt enda efnið áhugavert.
Birt með leyfi Péturs G. Kristjánssonar Ijósmyndara.
• Áhrif fjármálakreppunnar á alþjóðlega
reikningsskilastaðla
Stig Enevoldsen, formaður ráðgjafarhóps
framkvæmdastjórnar ESB um reikningsskil
(EFRAG)
Haustráðstefnan 2009
Haustráðstefna FLE var að þessu sinni
haldin á Akureyri dagana 13.-14. nóvember.
Dagskráin var undirbúin af norðanmönnunum
Davíð Búa Halldórssyni, Arnari Árnasyni
og Hólmgrími Bjarnasyni í samstarfi við
Menntunarnefnd félagsins. Dagskráin tók
mið af landsbyggðinni og stöðu atvinnulífsins
til sjávar og sveita. Rúmlega eitt hundrað
endurskoðendur skráðu sig til leiks og í það
heila þótti ráðstefnan takast vel samkvæmt
niðurstöðum könnunar þar sem rúmlega 70%
þátttakenda mátu hvernig til hafði tekist.
Hólmgrímur Bjarnason stjórnaði ráðstefnunni
með glæsibrag.
FLE blaðið janúar 2010 *21