FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 24

FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 24
Lífið ein tilviljun - viðtal Ólafur Nilsson starfaði sem löggiltur endurskoðandi 1964 til 2004 „Ég tók ekki þátt í hruninu" er það fyrsta sem Ólafur Nilsson segir þegar hann mætir galvaskur til viðtals og það er erfitt að lesa úr andliti hans hvort hann er að grínast eða ekki. Ólafur Nilsson hlaut löggildingu sem endurskoðandi 1964 og starfaði sem slíkur allt til ársloka 2004. Bara átján ára stráklingur Aðspurður, af hverju endurskoðun varð fyrir valinu sem starfsvettvangur þá hafði hann ekki velt þessu mikið fyrir sér þegar Jón Gíslason skólastjóri í Versló mælti með honum þegar Björn Steffensen og Ari Ó. Thorlacius sem ráku eina af stærstu endurskoðunarskrifstofum landsins, föluðust eftir nema í vinnu til sín. „Þeir voru miklir heiðursmenn og stofan þeirra var annar grunnurinn að Deloitte í dag" segir Ólafur. „Ég var bara átján ára stráklingur þá, búsettur á Siglufirði og var í skóla í Reykjavík. Það var heilmikil ákvörðun að flytjast alfarið í bæinn þó svo að ekki væri úr svo miklu að spila fyrir norðan" segir hann og bætir svo brosandi við „þá var heldur ekki nein von á námsláni." Foreldrarnir höfðu ekki miklar áhyggjur af starfsvali hans, voru bara ánægð með að hann skyldi halda áfram í námi og geta unnið með. Þrjátíu og fimm krónur í mánaðarlaun Ólafur átti félaga sem voru að læra til endurskoðunar og ræddi málið við þá. Það voru ekki launin sem heilluðu en hann fékk í fyrstu útborgun 35 kr. í mánaðarlaun (3.500 fyrir myntbreytingu). Flann hafði áhuga á reikningshaldi og taldi því að starfið gæti hentað honum nokkuð vel. Á stofunni voru nokkrir á svipuðum aldri og hann var samferða mönnum eins og Inga R. Jóhannssyni, Jóni Fl. Runólfssyni og Eyjólfi Guðmundssyni til að nefna einhverja. Þá reyndist Gunnar Zoega honum traustur leiðbeinandi í upphafi. Flann fór svo fljótlega í námið í Hl en þá gilti það sama og nú að þriggja ára reynslutími á endurskoðunarstofu var undanfari þess að fá löggildingu. „Ég komst tiltölulega létt í gegnum námið fjárhagslega" segir Ólafur. Námið fór fram á kvöldin eftir vinnu en kennt var á laugardögum. I aðalatriðum voru kenndar sömu námsgreinar og eru samkvæmt reglugerðinni í dag eins og endurskoðun, reikningshald, skattskil, þjóðhagfræði, tölfræði og hluti í lögfræði. Þá var mikil áhersla lögð á verkefnaskil og ritgerðir. „Við fengum dóma á ritgerðir í tímum í heyranda hljóði sérstaklega frá einum kennaranum" segir hann og það var mikið af raunhæfum verkefnum eins og í reikningshaldi og endurskoðun á einstökum þáttum. Veikíndapróf á leikskóla Þarna voru ágætir kennarar eins og prófessorarnir Guðlaugur Þorvaldsson og Ármann Snævar lögfræðingur en hann hélt utan um námið. Ármann var mjög samviskusamur og eitt skipti þurfti Ólafur að fara í veikindapróf hjá honum og var Ármann að vandræðast með yfirsetu því hann var að kenna. Það endaði með því að hann fór með Ólaf á leikskólann Grænuborg þar sem konan hans vann. Þar var hann settur inn í herbergi með prófið fyrir framan sig. Um miðjan dag kom Ármann svo í eftirlitsferð og leist þá ekki á blikuna því mikill hávaði var i börnunum svo að hann fór með hann heim í stofu til sín til þess að Ijúka prófinu. Friðurinn þar varði ekki mjög lengi því fljótlega komu börnin hans heim úr skólanum. En prófinu náði hann þrátt fyrir þessar sérkennilegu aðstæður. Flugið heillar „Fyrstu verkefnin voru mest í endurskoðun en stofan hafði nokkuð mörg slík verkefni meðal annars fyrir bæði flugfélögin, Flugfélag íslands og Loftleiðir" segir hann og lyftist allur upp þegar flugið ber á góma. „Ég byrjaði í endurskoðun hjá Flugfélagi Islands og man eftir mikilli vinnu við farmiðaeftirlit sem fólst m.a. í því að stemma af flogna og óflogna miða á uppgjörsdegi" segir hann og hlær við. „Eftir þetta var ekki aftur snúið því ég var einhvern veginn alltaf bundinn fluginu. Við tókum við endurskoðun hjá Flugleiðum 20 árum seinna og síðan Arnarflugi líka. Ég fór svo að læra að fljúga og er með einkaflugmannsréttindi sem ég hef haldið við. Ég á eina flugvél að fullu og hlut í annarri" segir hann og dettur út smástund - auðsjáanlega kominn eitthvert í háloftin. Þegar hann snýr til baka þá er hugurinn kominn norður á Siglufjörð. Siglufjörður og fjölskyldan „Það er enginn af mínum nánustu sem býr á Siglufirði í dag en ég á þar frændfólk" segir hann. „Bæði flugfélögin flugu þangað á tímabili því bærinn stækkaði mikið á síldarárunurm en íbúafjöldinn fór upp í 8000 manns þarna á sumrin. Það var algjört ævintýri að alast upp á þessum stað og upplifa síldarævintýrið. Loftleiðir komu undir sig fótunum með síldarleitarflugi og gerðu út þarna fyrir norðan" bætir hann við svona eins og söguskýringu. „Ég flýg heilmikið, er með flugvél í sumarbústaðnum og flýg því mikið um Suðurlandið og stundum norður á Sigló" segir hann glaðlega. Áhugamálin eru fleiri því hann var alinn upp við skíðin og þau hefur hann stundað frá unga aldri og stundar enn þegar færi gefst. „Þá 24 • FLE blaðið janúar 2010

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.