FLE blaðið - 01.01.2010, Page 30
Fær sjaldan kvef - viðtal
Halldór Hróarr Sigurðsson er löggiltur endurskoðandi hjá KPMG hf.
Hann hallar sér afturábak í stólnum og segist vera í smáhléi frá
sjósundinu nú sem stendur. Svo upplýsir hann aö sjósund,
sem nýtur í dag vaxandi vinsælda hér á landi, felist almennt
í að synda stuttar vegalengdir og einnig að fara í sjóinn þótt
sund sé ekki aðalatriðið, en það má ef til vill frekar kalla það
sjóböð. „Svo er líka stundað langsund í sjó sem er allt annar
handleggur" segir hann og fer ekki meira út í þá sálma.
„Það var kunningi minn, sem á þeim tíma bjó á
Seltjarnarnesi, sem í upphafi bauð mér að koma með sér í
sjóinn. Hann hafði stundað sjósund um árabil og átti til dagbók
um sínar sjóferðir sem innihélt margskonar upplýsingar um
hverja einstaka ferð svo sem stað og stund, hitastig lofts og
sjávar og aðrar gagnlegar upplýsingar. Ég man að í fyrstu
ferðinni, sem var síðsumars, var lofthiti og hiti sjávar hinn sami
eða 12 gráður, er við lögðum í sjóinn skammt frá golfvellinum
á Seltjarnarnesi.
Góð aðstaða á Seltjarnarnesi
Á þessum tíma var engin aðstaða þarna, en frá bílastæðinu
er stutt yfir sjávarkambinn þar sem hægt var að geyma fötin í
stórgrýtinu. Stuttu síðar var búið að setja upp opið skýli fyrir
sundfólk skammt frá hinni fallegu gönguleið sem þarna er.
Við erum bæjarfélaginu ævinlega þakklátir fyrir þetta framtak
- sem hlýtur að vera með ódýrustu íþróttamannvirkjum á
landinu - og stuðlar að enn fjörbreyttara útilífi í þessu yndislega
umhverfi. Eftir sundið fórum við svo gjarnan í heitu pottana og
sundlaugina á Nesinu, sem hefur þá sérstöðu að nota volgan
sjó" segir hann og glottir svolítið yfir öllum þessum sjó.
Hann segist hafa stundað sund lengi, keppt lítils háttar í
skóla þegar hann var unglingur og hefur alltaf sótt laugarnar
töluvert . I gegnum tíðina oft tekið böð í köldu vatni með
göngufélögunum á bakpokaferðum víðs vegar um landið. í
sjóböðunum við strendur íslands er það ekki síst hreina
náttúran sem heillar, fuglarnir vita að þeim stafar ekki hætta af
þessum óboðnu gestum og synda rólegir sína leið eða sveima
yfir. Það er mikið útilíf á Nesinu og Seltjörnin er afar hentug
fyrir þetta sport. Áður fyrr mun hafa verið klettagarður sem
afmarkaði Seltjörnina en nú er hafið búið að brjóta garðinn
að nokkru niður svo það getur orðið töluverður öldugangur
þarna, en ströndin er hrein og þarna eru engin ræsi eða slíkt.
„Óviðjafnanlegt er að vera þarna seinni part sumars á sólríkum
degi og man ég eftir nokkrum slíkum þegar hitastig sjávar gat
nálgast 17° og við syntum þá oft út að Gróttuvitanum" segir
hann greinilega ánægður með þetta allt. Hitastig sjávar er lágt
yfir vetrartímann, en með hækkandi sól er hiti í áttina að 12
gráðum alveg ágætur.
Það er hægt að iðka sjósund hvar sem er á landinu. Halldór
hefur farið víðar í sjóinn en við Seltjarnarnes eftir því sem
tækifæri hafa gefist og nefnir Snæfellsnes, Skagafjörð og
suðurströndina.
Kuldinn bítur
„Af eigin reynslu fullyrði ég að sjósundið er gott fyrir
ónæmiskerfið, en þjálfunin felst í því að aðlagast kuldanum
eins hratt og hægt er" segir hann og lýsir svo betur hvað
í þessu felst. „Fyrst er að koma sér út í sjóinn og er það
oft töluvert sjokk fyrir líkamann, en þetta er bara hluti af
pakkanum. Best er þá að hreyfa sig sem minnst og stundum
er þetta aðeins bað í sjónum í nokkrar mínútur. Meiri hreyfing
þýðir meiri kælingu og þá eins og alltaf þurfa menn að vita sín
takmörk. Tíminn í sjónum er því mislangur eftir þvf hvað hver
einstakur þolir. Því getur verið hættulegt að fara einn í sjóinn
bæði vegna ofkælingar og einnig sjávarstrauma og alls ekki
hægt að mæla með því, auk þess sem góður félagskapur er
stór hluti af sjósundinu eins og í annarri frístundaiðkun."
„Jú, ég býð stundum vinum mínum og félögum með,
nokkrir hafa þekkst boðið og engin vinslit orðið ennþá. Þetta
getur verið dálítið tvíeggjað því fólk þarf að þekkja sín takmörk.
Oft er talið að ekki sé verra að vera í góðum holdum til að taka
á móti sjávarkuldanum" segir Halldór og kímir við en „reyndar
er talið að þetta hafi líka eitthvað með æðakerfið að gera þ.e.
hversu djúpt æðarnar liggja í líkamanum. Svo er upplifun kulda
oft bara spurning um hugarfar. Aðalatriðið er að hver og einn
stundi þessar sjóferðir með ábyrgum hætti bæði gagnvart
sjálfum sér og öðrum" segir hann að lokum.
30 • FLE btaðið janúar 2010